Ég sé ekkert að svæðisvörninni sem slíkri. Vandamálið með hana, ef vandamál mætti kalla, er það að að hún er háð þeim leikmönnum sem eru að verjast. Rétt eins og einstakir leikmenn geta klikkað í mann-á-mann varnarkerfi, þá geta menn líka klikkað í svæðisvörninni.
Dæmi: Kromkamp og Alonso rekast saman gegn United, þannig að Kromkamp nær ekki að dekka sitt svæði nógu vel og Rio Ferdinand skorar. Það er varla hægt að skamma Kromkamp fyrir þetta, þetta var slysalegt og óheppni, en svona er þetta samt. Ekkert að kerfinu, bara mannleg mistök.
Dæmi: Boltinn kemur út í teiginn úr hornspyrnu Chelsea, þar sem Ricardo Carvalho skallar hann í átt að marki. John Arne Riise, eins og nokkrir samherja hans, gerir þau mistök að stíga út úr sinni stöðu þar sem boltinn er dottinn niður talsvert utar en hann er staddur, og hann er svona ósjálfrátt að fylgja boltanum á leið sinni út úr teignum. Þannig að þegar boltinn dettur skyndilega til baka og niður á svæðið sem Riise átti að dekka er hann ekki þar. Mark.
Eins og Howard Wilkinson skýrir frá í þessari grein hér að ofan, þá eru rétt um þrjú af hverjum hundrað mörkum sem skoruð eru úr föstum leikatriðum, skoruð í fyrstu tilraun. Þ.e.a.s., þrjú af hverjum hundrað eru skoruð með þeim hætti að boltinn kemur inní teiginn og einhver skallar/skýtur honum að marki og skorar. Sem þýðir að hin 97 mörkin af hverjum 100 eru skoruð úr fráköstum eftir fyrstu tilraun að marki. Hugmyndafræðin að baki svæðisvörn er að láta bestu skallamennina dekka mestu álagssvæðin, og láta svo hina setja allt sitt í að vernda markið fyrir öllum lausum boltum í teignum. Þannig að sama hvar boltinn detti niður laus eftir t.d. skallaeinvígi, þá er alltaf Liverpool-leikmaður á því svæði til að hreinsa hann frá.
Ricardo Carvalho á fyrsta skallann, fyrstu tilraun að marki, og William Gallas á síðan seinni tilraunina. Riise gerir þau mistök að hætta að verjast eftir fyrstu tilraun, og vernda ekki sitt svæði fyrir annarri tilrauninni. Það má ekki gerast.
Þannig að, það er ekkert að kerfinu þótt við höfum fengið á okkur tvö mörk úr föstum leikatriðum undanfarið. Mark Rio Ferdinand kom til vegna óheppilegs slyss sem gerði Kromkamp ókleift að verja sitt svæði, á meðan Gallas skoraði vegna mistaka eins leikmanns.