01. febrúar, 2006
Búið að loka félagsskiptaglugganum.
Á endanum fengum við Agger, Krompkamp og Fowler í janúar á meðan Josemi fór frá okkur í skiptum fyrir Kromkamp. Ennfermur fór Mellor á lán til Wigan út tímabilið, Pongolle til Blackburn á lán, Raven til Tranmere á lán og Potter til Southampton á lán.
Er þetta nóg? Enginn hægri kantur kom en á móti má segja að Garcia og Gerrard hafa spilað vel í þeirri stöðu í vetur. Betra að kaupa engann en að kaupa einhvern bara til að kaupa hægri kantmann. Lengi vel leit út fyrir að Victor myndi koma til okkar en það náði ekki í gegn. Ég hefði vel verið til í að fá hann en ég satt að segja lifi það vel af þótt hann hafi ekki komið. Ég vil fá TOPP KLASSA hægri kantmann og það í sumar.
Það varð aldrei þannig að stór nöfn skiptum um lið í janúar og líklega það stærsta var fyrrum Liverpool leikmaðurinn Danny Murphy sem fór frá Hemma Hreiðars. og co í Charlton til erkifjendana í Tottenham.
Ég er mjög ánægður með þá leikmenn sem Rafa verslaði og hef mikla trú á þeim öllum. Ég hef séð Agger spila og er þess fullviss að hann sé framtíðarleikmaður í vörn Liverpool sem og hann getur lært mikið á næstu 6 mánuðum. Kromkamp ER betri en Josemi og mun styrkja hópinn. Fowler er leikmaður sem er elskaður og dáður hjá Liverpool og núna er undir honum komið að eignast nýja Liverpool stuðningsmenn með nýjum afrekum. Flestir eru ánægðir með að fá Fowler aftur en sumir segja þetta vitleysu. Ég hef trúa á Rafa og Fowler og að þessi “kaup” munu skila sér á þessu tímabili. Hvort sem hann muni skora í kvöld eður ei þá líður ekki á löngu þangað til að hann skori. HANN SKORAR ALLTAF.
Orðrómur hefur verið á netinu að Liverpool hafi reynt að kaupa Defoe frá Tottenham og gefið í skyn að bein skitpi á Cisse og Defoe hafi verið nefnd. Ég tek þessu með fyrirvara og í raun segi þetta slúður. Ef Cisse nær sér ekki á strik það sem eftir er tímabilsins þá fer hann til Frakklands, ég tel það næstum 100%. Hvort Defoe komi þá kemur í ljós í sumar en hann er alla vega ekki sóknarmaður númer eitt né 2 hjá Martin Jol.
Framundan er leikur gegn Birmingham í kvöld og ég verð á Anfield (Kennedys á Gl. Kongevej) í kóngsins að bíða eftir Fowler. Hvar verður þú?