30. janúar, 2006
Ég rak í gærkvöld augun í góðan spjallþráð á RAWK, þar sem rætt er um hvort leikjafjöldinn sé farinn að segja til sín á þessu langa tímabili Liverpool. Eins og kemur fram í fyrsta póstinum á þessum þræði, þá er janúarmánuður nú búinn hvað leiki varðar og Liverpool-liðið er þegar búið að leika jafnmarga leiki á þessu tímabili, í janúarlok, og Tottenham Hotspurs munu spila allt tímabilið. Liðið mun í marsbyrjun vera búið að ná þeim leikjafjölda sem það lék á öllu síðasta tímabili, og ef framganga okkar manna í Meistaradeildinni og FA Bikarkeppninni nær eitthvað lengra en 16-liða úrslitin þá verður þetta opinberlega orðið lengsta tímabil sem nokkurt enskt lið hefur átt!
Við þetta bætist svo að töluverður fjöldi leikmanna liðsins er á leiðinni á HM í sumar og þá er ljóst að sú hætta að menn brenni yfir er veruleg.
Liðið hefur átt frábært tímabil enn sem komið er og sérstaklega voru nóvember og desember frábærir mánuðir. Liðið hefur aðeins hikstað í janúar og í gær fannst mér ég einfaldlega vera farinn að sjá bera á þreytu í nær hverjum einasta leikmanni liðsins. Enda, ef við skoðum leiki liðsins síðustu þrjá mánuðina þá má sjá að Rafa hefur verið að stilla upp meira og minna sama liðinu í öllum leikjum, í öllum keppnum:
Reina
Finnan - Carragher - Hyypiä - Riise
Gerrard - Sissoko - Alonso - Kewell
Crouch - Cissé/Morientes
Þessir leikmenn, allir með tölu, eru einfaldlega orðnir þreyttir. Læt Reina kannski vera, þar sem markmenn hlaupa ekki jafn mikið, en hinir ellefu útispilararnir sem ég taldi þarna til eru orðnir þreyttir. Ég meina, hvers vegna haldið þið að þeir Gerrard, Riise, Alonso og Sissoko á miðjunni hafi verið nær algjörlega bitlausir í gær? Og Cissé og Morientes voru eiginlega bara ráðvilltir í þessum leik, á meðan Peter Crouch hefur virkað mjög þreyttur á mig í síðustu þremur eða fjórum leikjum og fékk langþráða hvíld í gær. Þetta eru allt leikmenn sem hafa verið lykilmenn í velgengni okkar í vetur en það er alveg ljóst að þeir þurfa hvíld - sumir meiri hvíld en aðrir - og því verðum við að horfast í augu við það að aðrir leikmenn þurfa að draga vagninn næstu vikurnar. Þeir leikmenn sem undanfarið hafa staðið utan við aðalliðið okkar eru í þann mund að verða mikilvægustu leikmenn liðsins:
Jan Kromkamp & Daniel Agger: Nýju varnarmennirnir tveir verða ómetanlegir fram á vorið. Við sáum strax í gær hversu góð innkoma Kromkamps er, því með tilkomu hans var hægt að leyfa Steve Finnan að hvíla í 75 mínútur og gefa Steven Gerrard um 10 mínútna hvíld. Agger hins vegar verður gríðarlega mikilvægur fyrir liðið, því mest allra þurfa þeir Jamie Carragher og Sami Hyypiä á því að halda að fá smá hvíld. Við munum öll hvað gerðist í fyrra, þegar Mauricio Pellegrino leysti Hyypiä af í miðverðinum í nokkrum leikjum. Pellegrino var ekki nógu góður leikmaður fyrir Liverpool, en það verður aldrei tekið af honum að hans framlag var mikilvægt í sigrinum í Meistaradeildinni, því þökk sé honum fékk Hyypiä langþráða hvíld og var því eins og endurfæddur leikmaður í stórleikjunum í Evrópu. Agger gæti veitt bæði Carra og Hyypiä slíka hvíld í vetur.
Djimi Traoré & Stephen Warnock: Ef Warnock getur spilað betur en hann gerði í gær þá verður hann meira með í vor en hann hefur verið undanfarið, og svo býst ég fastlega við að við förum að sjá Traoré spila fleiri leiki í byrjunarliðinu á næstunni. Riise og Kewell hafa leikið nær alla leiki okkar vinstra megin undanfarið og þurfa bráðum á hvíld að halda (sér í lagi Riise sem hefur leikið manna mest fyrir Liverpool sl. tvö ár) og þar verða þeir Traoré og Warnock mikilvægir.
Dietmar Hamann, Viktor & Luis García: Dietmar Hamann mun sennilega gegna mikilvægasta hlutverki þessara leikmanna á næstunni. Þeir Gerrard, Alonso og Sissoko eru búnir að byrja nær alla leiki sl. þrjá mánuði og munu því eflaust þurfa hvíld á næstunni. Það versta sem gæti komið fyrir liðið er ef þeir þreytast allir á sama tíma, og því tel ég líklegt að Hamann komi inn í liðið ekki seinna en í næsta leik. Verður sennilega meira og minna í liðinu fram á vorið. Að sama skapi mun hinn nýji Viktor - ef/þegar þau kaup ganga í gegn í dag - reynast okkur mikilvægur því þá getur Gerrard fengið meiri hvíld, sem og einbeitt sér aðeins aftur að miðjunni. Sá þriðji hér, Luis García, er meiddur en þegar hann kemur inn úr meiðslunum þá verður það eins og að fá nýjan leikmann. Við vitum öll hvað García getur og það verður flott að fá hann inn, sérstaklega með hvíld fyrir Harry Kewell í huga, ferskan og hungraðan.
Robbie Fowler & Florent Sinama-Pongolle: Framherjarnir okkar, ef þið hafið ekki tekið eftir því, virðast hafa gleymt því í janúarmánuði hvernig á að skora mörk. Auðvitað er sú umræða til staðar hvort nokkur þeirra Crouch, Morientes og Cissé séu nógu góðir fyrir Liverpool og allt það, og auðvitað er þreyta engin afsökun, en hún er engu að síður staðreynd. Cissé var vanur að skora mark í sirka öðrum hverjum leik í haust en hefur ekkert skorað nú í langan tíma. Morientes virtist hafa fundið sitt gamla form aftur í nóvember/desember en er nú meira fyrir en eitthvað annað inná vellinum, á meðan Crouchie er sýnilega þreyttur og kraftlaus þessa dagana. Ég vona að Flo-Po verði ekki lánaður á næstu tveimur dögum því við þörfnumst þess sem hann býður upp á næstu misserin - sjáið bara innkomuna hans gegn Luton Town - og mikilvægi þess að fá hungraðan og heilan heilsu Robbie Fowler inn verður ekki ofmetið. Ef Fowler getur sýnt eitthvað af sínum gömlu töktum - og það er vissulega stórt EF á þessari stundu - þá gæti það riðið baggamuninn á 8-liða úrslitum eða undanúrslitum í Meistaradeildinni, öðru eða þriðja sæti í Úrvalsdeildinni.
Sem sagt, framundan er mikil leikjahrina hjá okkar mönnum í febrúar sem lýkur með því að Meistaradeildin byrjar að rúlla á ný, svona til að gera tímabilið enn strembnara, og því skuluð þið alveg búast við því að fá að sjá þá Daniel Agger, Jan Kromkamp, Stephen Warnock, Djimi Traoré, Dietmar Hamann, Victor, Luis García, Florent Sinama-Pongolle og Robbie Fowler töluvert mikið í sviðsljósinu fram í maí. Sumir þeirra eru kannski nógu góðir fyrir Liverpool og sumir ekki, en sú umræða verður hreinlega að bíða þangað til í sumar. Þeirra er þörf þangað til.