30. janúar, 2006
Eins og bent var á í ummælunum við síðustu færslu, þá virðast kaupin á Victor hafa lent í erfiðleikum, svoleiðis að nú er ljóst að hann kemur líklegast ekki. Skv. fréttinni þá vill Victor víst lengri samning við Liverpool en klúbburinn er reiðubúinn að veita honum, auk þess sem hann á í erfiðleikum með að semja um lausn undan samningi við Deportivo La Courna.
Oh jæja. Kromkamp, Gerrard, Cissé, García og Pongolle verða þá bara að skiptast á að kóvera þessa stöðu fram á sumarið. Einhverra hluta vegna örvænti ég ekki jafn mikið yfir skorti á alvöru vængmanni nú og ég gerði í haust, sem er sennilega því að þakka að Gerrard hefur spilað þar undanfarið, en þetta er samt ekki nógu gott mál.
Vonandi verður biðin þess virði og sá rétti kemur í sumar. Vonandi.