beach
« Cisse færðu til yfirheyrslu. | Aðalsíða | Portsmouth í bikarnum á morgun! »

27. janúar, 2006
Victor á leiðinni til Liverpool!

victor.jpg Samkvæmt Sky mun Liverpool festa kaup á spænska hægri kantmanninum Sanchez Victor frá Deportivo La Coruna.

Victor ferðaðist ekki með Deportivo í dag og mun vera á leiðinni til Liverpool þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun og væntanlega skrifa undir samning við Liverpool.

Victor er 29 ára gamall og er mjög reyndur leikmaður. Hann lék m.a. 65 leiki fyrir Real Madrid þar sem hann var uppalinn.

Frá Real fór hann til Racing Santander og þaðan til Deportivo la Coruna, þar sem hann hefur verið síðan. Hann hefur leikið með Deportivo gegn Liverpool í Meistaradeildinni og við höfum fjallað um hann á þessari síðu áður.

Ekkert kemur fram í fréttinni um kaupverð, en ég verð að játa það að mér líst nokkuð vel á þetta. Victor er verulega sterkur leikmaður, sem hefur verið lykilmaður í liði Deportivo og hefur spilað með spænska landsliðinu (þó aðeins 3 leiki).

Hann verður sennilega aldrei aðal hægri kantmaðurinn okkar, en hann ætti að vera góð viðbót við hópinn og okkur veitir svo sannarlega ekki af því að styrkja hægri kantinn hjá okkur.

Það verður gaman að sjá hvort þetta gangi í gegn á sunnudaginn.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 21:14 | 190 Orð | Flokkur: Leikmannakaup
Ummæli (12)

já, sama hvað fólk var að tala um að við værum nokkuð vel mannaðir með Garcia og Gerrard á hægri (ásamt mögulega flo-po og cisse í neyðartilvikum) þá held ég að Liverpool vanti þennan klassíska kantara, sem er með góða krossa og ágætur að taka menn á ásamt smá markheppni.

held að þessi maður sé akkúrat svona maður, þó hann sé kannski ekki besti kantmaður í heimi á hann eftir að nýtast við ákveðnar aðstæður. Sama hvað sagt er um gerrard og garcia þá er ljóst að þeir eru vanari að leita meira inn á miðju en hitt.

t.d. á móti man.usa um daginn þá held ég að það hafi vantað púra kantara sem gat skilað góðum boltum inn í teiginn fyrir framherjana. Sérstaklega var mikilvægt í þeim leik að ,,ráðast á" nýja manninn, Evra en það var lítið reynt á hann, bara sótt inn á miðjuna

einnig tel ég að betra sé að hafa Steven Gerrard í miðri miðjunni þar sem ég tel að það auki sóknarþunga Liverpool töluvert. að vera með tvo sókndjarfa kantmenn (kewell+victor) ásamt mjög sókndjörfum miðjumanni (gerrard) og svo varnarsinnuðum miðjumanni sem er þó mikilvægur í sóknartilburðim vegna sendinga/skotgetu (alonso) í stað tveggja sókndjarfra kantmanna (kewell+gerrard) ásamt tveimur varnarsinnuðum miðjumönnum (sissoko+alonso).

svo er hægri kanturinn hjá okkur stundum svolítið ,,ber" þar sem Gerrard er oftast út um allan völl. ef við erum með ,,fastan" kantmann þá er það í raun betrs cover fyrir Finnan

sem sagt frábær kaup ef af verður :-)

SG sendi inn - 28.01.06 02:05 - (
Ummæli #5)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·MUFC 1 - LFC 0
·Liverpool 1-0 Tottenham
·Luton 3 - Liverpool 5
·Bolton 2 - L'pool 2
·Liverpool 1 - W.B.A. 0

Síðustu Ummæli

Krizzi: Ég verð nú að viðukenna að ég er ekki ei ...[Skoða]
Arnor: Ég held að við fáum hann mjög ódýrt þar ...[Skoða]
Hannes: Nei, held að Gonzalez sé farinn til Real ...[Skoða]
Fowler: Kemur hann ekki í skiptum fyrir Mark Gon ...[Skoða]
Fowler: Kemur hann ekki í skiptum fyrir Mark Gon ...[Skoða]
Davíð Már: Ég tel engar líkur á því Stefán Þór að h ...[Skoða]
Stefán Þór: Mér finnst frábært að kantabreiddin sé a ...[Skoða]
SG: já, sama hvað fólk var að tala um að við ...[Skoða]
Kristján Atli: Bíddu, maður má ekki líta af netinu í no ...[Skoða]
Aron: Reikna fastlega með að hann komi á frjál ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Rafa ánægður með liðsandann.
· Portsmouth í bikarnum á morgun!
· Victor á leiðinni til Liverpool!
· Cisse færðu til yfirheyrslu.
· FOWLER??? (uppfært: BÚINN AÐ SKRIFA UNDIR!!!!!!! - staðfest! - uppfært x4)
· Tap hjá Chelsea

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License