27. janúar, 2006
GUÐ ER KOMINN HEIM!!!!!!
Á forsíðu Sky Sport akkúrat NÚNA: Fowler in shock Anfield link
A move down The Premiership or even to The Championship had been suggested, but now Liverpool are reported to be showing a shock interest in their former darling.
Á öðrum vefsíðum eru menn að halda því fram að Robbie hafi verið á æfingasvæði Liverpool í morgun. Sumar vefsíður ganga svo langt að halda því fram að þetta sé FRÁGENGIÐ! Þetta gæti allt verið bull, en þetta er núna fyrsta frétt á Sky, svo þetta er verulega athyglisvert!
Uppfært (EÖE) (17:05):
Robbie Fowler er BÚINN AÐ SKRIFA UNDIR!!!
Uppfært aftur (EÖE) (17.14): Samkvæmt Soccernet, þá er Fowler búinn að skrifa undir lánssamning til loka tímabilsins, með möguleika á því að hann skrifi undir samning við Liverpool í sumar. JA HÉRNA!
Uppfært (aftur EÖE: 17.35): Á Official vefnum: PRODIGAL SON FOWLER REJOINS THE REDS :
Liverpool Football Club are delighted to announce that Robbie Fowler has rejoined the club on a free transfer from Manchester City until the end of the season when the situation will be reviewed.
Fowler, 30, completed the formalities of what is a sensational move this afternoon.
The Manchester City striker is ineligible to play in Sunday’s FA Cup tie against Portsmouth but could make an emotional reappearance in front of the Kop against Birmingham City on Wednesday.
Hólí mólí! Fowler er kominn heim! Hæ hó jibbí jei og jibbí jei!!!
Uppfært (EÖE) kl 18.30: Rafael Benitez tjáir sig um endurkomu Fowler:
“We have signed a player with so much passion for this football club and I think he will act as an example to every player here in how much he loves Liverpool.
“It is a boost for the team, a boost for the supporters and a boost for Robbie himself. I’m not sure I’ve ever seen a player quite so happy to be joining a club before.
Og einnig:
“He hasn’t been signed because he loves the club; he’s been signed because he’s one of the best goalscorers ever to play in the Premiership and he can score goals for us right now. He’s got a wealth of experience and he gives us more attacking options. He’s a different kind of striker to what we have at the club and that is good for the team.
Frábært mál!
Einnig er hérna pistill frá Paul Tomkins, sem gerir að mínu mati alltof mikið úr áhættunni við að fá Fowler til liðsins: Prodigal Son Returns - a Great Gamble.
Ég hef verið að ræða þetta í gegnum síma við Kristján Atla og Agga og ég er sannfærður um að “upside” við þennan samning er svo miklu meira en hugsanleg áhætta. Við erum að fá reyndan framherja, sem hefur skorað haug af mörkum í Úrvalsdeildinni fyrir akkúrat 0 pund.
Robbie Fowler er þriðji markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Aðeins Alan Shearer og Andy Cole hafa skoraði fleiri mörk. Hann verður brjálaður í að sanna sig fyrir Liverpool og kommentin hans Rafa staðfesta að hann þráir ekkert heitara en að spila aftur fyrir Liverpool. Ef þetta gengur ekki upp, þá fer Robbie Fowler til annars liðs í sumar. Ef þetta gengur hins vegar upp erum við komin með toppframherja, sem elskar Liverpool, ókeypis!
Plús það hvað það verður yndislegt að sjá Fowler aftur á Anfield. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að Fowler verður vinsælasta nafnið aftan á nýjum Liverool treyjum á næstu mánuðum.
Hérna er líka fyrsta viðtalið við Robbie. Hann er greinilega í skýjunum.
Einnig: Roy Evans og Jamie Redknapp tjá sig um málið.