26. janúar, 2006
Simao kemur ekki í janúar.
Þá virðist ljóst að Simao kemur ekki í janúar frá Benfica en skv. forseta félagsins hafa ekki nægilega góð tilboð borist í kappann núna í janúar.
“The only thing we can say with certainty is that Simao will remain at Benfica until the end of the season.”
Reyndar taldi ég ljóst að hann myndi ekki koma til okkar þegar Benfica lokaði á samninginn á síðustu stundu í ágúst. Ég vona samt að við fáum einhvern klassa hægri kantmann til okkar fyrir lokin á janúar en ekkert hefur verið sagt né skrifað undanfarið frá því að Agger kom til okkar.