19. janúar, 2006
Jæja, þá erum við einum framherjanum færri. Það gerðist sem margir voru búnir að spá að einn framherji myndi yfirgefa okkur í janúarmánuðinum, en það kemur hins vegar sumum á óvart að hér er ekki um að ræða einn af þeim Djibril Cissé, Fernando Morientes og Florent Sinama-Pongolle. Nei, þess í stað hefur Liverpool lánað Neil Mellor til spútnikliðsins Wigan Athletic. Hann er náttúrulega ekkert búinn að spila í nærri því ár vegna meiðsla og er enn bara að koma sér í form að ég held, en um leið og hann kemst í eitthvað leikform er vonandi að hann nái að spila einhverja leiki fyrir Wigan-liðið. Það yrði allavega forvitnilegt að sjá hann spila með þeim, þó ekki væri nema nokkra leiki, sem mælikvarða á getu hans eftir meiðslin.
Paul Jewell, Scouser með meiru og framkvæmdarstjóri Wigan, er allavega hæstánægður með að fá drenginn í sínar raðir:
“Hann mun koma með nýja vídd í leik okkar og auka samkeppnina innan hópsins, sem er eitthvað sem við þörfnumst núna.
Neil er góður, ungur framherji sem vill sanna sig á nýjan leik í fremstu röð. Hann er ungur, hæfileikaríkur og með gott auga fyrir mörkum. Ég er hæstánægður með að fá hann til Wigan.”
Vonandi nær stráksi að sanna sig hjá Wigan. Hann mun sennilega aldrei spila mikið, eða nokkuð, með aðalliði Liverpool aftur en ég vona samt að honum gangi vel í framtíðinni … nema á móti okkur, að sjálfsögðu.