18. janúar, 2006
Úfff…. ég ætlaði nú varla að tíma að skrifa þetta til að taka ekki athyglina af þeim langa pistli sem ég skrifaði um
Hvað þarf Liverpool til að verða Englandsmeistari? en það er að sjálfsögðu skyldulesning, hann er hér fyrir neðan.
En ég rak augin í orð Ian Rush á Liverpool.is um heitasta unglinginn á Englandi í dag, Theo Walcott. Hann er líklega að fara frá Southampton en þar sem hann hefur ekki skrifað undir atvinnumannasamning, enda enn 16 ára, mun dómstóll ákvarða kaupverð hans.
Þá upphæð hafa Dýrlingarnir blásið upp í 15 milljónir punda sem er líklega ekki nálægt því sem raunverulegt kaupverð yrði.
Rush segir meðal annars þetta um Walcott:
Það sem gladdi mig mest var hvernig hann talaði um Liverpool. Hann dýrkar félagið. Ég grínaðist með það við hann að hann ætti að ganga til liðs við okkur. Hann viðurkenndi að hann myndi gjarnan vilja það einn góðan veðurdag.
Rafa hefur verið duglegur að sanka að sér ungum leikmönnum og hefur sagst vilja fá enska leikmenn til sín. Því spyr maður, af hverju ætti Liverpool ekki að bjóða í hann?
Ég þekki að vísu ekki reglurnar með þenna dómstól (tribunal fee, kallast það) en það væri spennandi að sjá þennan strák spila á Anfield á næsta tímabili…