beach
« Fimm dagar... | Aðalsíða | Theo Walcott vill fara til Liverpool »

18. janúar, 2006
Hvað þarf Liverpool til að verða Englandsmeistari?

Nú þegar annað tímabil Rafael Benítez er meira en hálfnað er ljóst að Liverpool hefur tekið miklum framförum undir hans stjórn. Evrópumeistaratitill segir meira en mörg orð um það.

Samt sem áður hefur liðið ekki gert atlögu að Englandsmeistaratitlinum sem virðist vera að fara til Chelsea annað árið í röð.

Það er draumur allra stuðningsmanna Liverpool að sjá Steven Gerrard lyfta Englandsmeistaratitlinum á Anfield, en hvað þarf til þess að Liverpool taki eitt skref áfram og unnið titilinn?

Það er alls ekki mikið sem þarf til.

Rafa hefur komið með nýtt hugarfar inn í liðið. Nýtt skipulag. Nýtt líf. Hann hefur verið klókur á leikmannamarkaðnum og liðið er nú, fullyrði ég, betur mannað en manchester united en aðeins á eftir Chelsea sem eytt hafa stjarnfræðilegum upphæðum í lið sitt.

Það eru þrjár stöður á vellinum sem mér finnst að þurfi að bæta til að liðið geti hampað Englandsmeistaratitlinum. Augljóslega hægri kantur auk vinstri bakvarðar og sóknarmanns.

Rafa hefur leitað lengi að hægri kantmanni. Simao Sabrosa virðist vera á leiðinni en þó ekki fyrr en næsta sumar. Það vita allir að það er þörf á hægri kantmanni og það verður góð viðbót við liðið. Meira þarf varla að fjölyrða um nauðsyn á að kaupa hægri kantmann.

En hvað um hinar stöðurnar? Byrjum á vinstri bakvörðum Liverpool í dag:

Djimi Traore: Mér finnst Traore vera meiri miðvörður heldur en bakvörður. Hann tæklar mjög vel, er ágætis skallamaður en er frekar lamaður sóknarlega. Stór og sterkur en er einnig nokkuð mistækur og þessi summa ætti að vera nóg til að gera hann að fjórða miðverði Liverpool eins og staðan er í dag.

Stephen Warnock: Hann á ekki að vera efnilegur lengur enda að verða 25 ára gamall. Mér fannst hann vera góður en hefur ekki alveg náð að fylgja fínum leikjum eftir og fest sig í sessi í byrjunarliðinu. Að mínu mati, fínn sem annar til þriðji bakvörður en hefur þó hæfileika til að vera í byrjunarliðinu, EN þá þarf hann að bæta sig og það nokkuð en ég vil samt nýjan mann.

John Arne Riise: Norðmaðurinn sýndi mér það í leiknum gegn Tottenham að hann er bara ekki nógu góður. Að minnsta kosti í þrígang komust leikmenn gestanna í færi eftir að hafa farið á Riise og hann gerði fleiri mistök. Ekki nógu góður varnarlega en er vissulega fínn fram á við en er algjörlega einfættur. Hann getur komið með ágætis fyrirgjafir þrátt fyrir að skot hans rati sjaldan á markið þó föst séu. Mín skoðun: Fínn sem backup á vinstri helmingi vallarins.

Niðurstaða: Mig langar í nýjan vinstri bakvörð!

Ef við lítum á okkar helstu andstæðinga þá langar mig í alla vinstri bakverðina þar held ég: Gabriel Heinze (Man U), Ashley Cole (Arsenal), Asier Del Horno (Chelsea), sérstaklega þá tvo fyrrnefndu og auk þess á Chelsea Wayne Bridge. Ég vona að Rafa kaupi nýjan vinstri bakvörð næsta sumar og hann þarf að vera eins og Finnan. Það er ekki að ástæðulausu að Tottenham ákváðu að fara frekar upp hægri helming vallarins.

Liverpool voru sterklega orðaðir við Patrice Evra sem fór að lokum á tombóluverði til manchester united sem gerðu þar góð kaup þrátt fyrir að vera með besta vinstri bakvörð deildarinnar í sínum röðum. Næstur Gabriel Heinze er svo Ashley Cole. Liverpool þarf mann sem lokar þessari vörn sem Rafa er að búa til og gerir mönnum það ekki kleift að ákveða að fara upp hægri kantinn af því þar er “lélegur” varnarmaður.

En hverjir standa til boða? Ég hef ekki heyrt neina vinstri bakveri orðaða við Liverpool lengi en maður eins og Fabio Aurelio hjá Valencia, sem þekkir Rafa jú vel, gæti til að mynda verið álitlegur kostur. Gianluigi Zambrotta væri minn draumur en hann er líklega ekkert á leiðinni frá Juventus auk þess sem hann yrði ansi dýr. Einhverjar hugmyndir?


Hægri kantur er alveg ljóst að við þurfum. Gerrard hefur leyst þessa stöðu með stakri prýði eins og hann myndi reyndar leysa allar stöður en hann er samt bestur inni á miðjunni og liðið þarf einfaldlega að hafa hann þar. Luis Garcia finnst mér ekki vera þessi týpíski kantmaður og hlífið mér við því að sjá Pongolle eða Cisse þar.

Niðurstaða: Við þurfum nýjan hægri kantmann, og það hreinræktaðann.

En hverjir koma til greina? Það er ljóst að Simao Sabrosa er fyrsti valkostur Rafa enda var hann nálægt því að koma til liðsins síðasta sumar. Aðrir sem hafa verið orðaðir við Liverpool eru Daniel Alves hjá Sevilla og Joaquin sjálfur sem leikur með Real Betis.

Ég held að Joaquin sé ekkert inni í myndinni. Hann er of dýr auk þess sem mér sýnist hann vera svona “stjörnuleikmaður”, þrátt fyrir að hafa lítið annað en tilfinningu mína fyrir því. Auk þess er hann ekki fjölhæfur en hann er mjög teknískur og kemur bolta vel frá sér hvort sem það eru stuttar sendingar eða fyrir markið.

Alves þekki ég minna til en hef heyrt að hann sé mjög góður leikmaður.

Simao finnst mér vera besti kosturinn. Hann er fljótur, hefur góða tækni, spyrnir vel er einnig aukaspyrnusérfræðingur og er fyrirliði Benfica og hefur því leiðtogahæfileika sem nýtast mjög vel. Ég vona að hann komi en þó verður það líklega ekki fyrr en í sumar, því miður. Ekkert hefur heyrst frá Benfica né Liverpool um málið en ljóst er að viðræður eru vel á veg komnar, en stranda líklega á okri í forráðamönnum Portúgalska liðsins.


Þá er komið að sókninni. Liverpool er með fimm sóknarmenn í dag, Djibril Cisse, Peter Crouch, Fernando Morientes, Florent Sinama Pongolle og Neil Mellor. Sá síðastnefndi er eflaust á leiðinni frá félaginu nú í janúar og þá eru fjórir eftir.

Ef við lítum á markahæstu menn ensku úrvalsdeildarinnar, þar sem mörk í Super Cup og undankeppni Meistaradeildarinnar eru EKKI talin með, má sjá sjokkerandi staðreynd. Markahæsti leikmaður Liverpool er miðjumaðurinn Steven Gerrard og ENGINN sóknarmanna Evrópumeistaranna kemst á topp 30 yfir markahæstu menn deildarinnar þegar hún er rúmlega hálfnuð! Annað en Milan Baros og Michael Owen sem hafa skorað fimm og sjö mörk.

Sóknarmenn Chelsea, þeir Hernan Crespo og Didier Drogba hafa skorað samtals 15 mörk, Drogba 7 og Crespo 8 og Frank Lampard heil 13. Ruud van Nistelrooy hefur skorað 16 og Wayne Rooney 10. Thierry Henry hefur skorað 13.

Cisse er með fjögur mörk, Crouch með þrjú og Morientes þrjú. Pongolle hefur enn ekki skora. Framherjar okkar hafa því skorað tíu mörk samtals sem er jafn mikið og Wayne Rooney einsamall og svo bætis við sextán mörk frá Ruud van Nistelrooy.

Liverpool hefur skorað 29 mörk í deildinni
Chelsea hefur skorað 48 mörk í deildinni
Manchester United hafa skorað 41 mark í deildinni

Niðurstaða: Okkur vantar ennþá 20 marka mann!

Ég held að sá maður gæti til dæmis verið Dirk Kuyt leikmaður Feyenoord sem ég vil hiklaust sjá koma í sumar, væri hægt að losna við Dudek í leiðinni til Hollands meira að segja. En þá þyrfti væntanlega einn framherji að fara ekki rétt? Cisse hefur verið orðaður við brottför frá liðinu en ég held að það verði Pongolle sem fari eftir tímabilið.

Einhver órói var í kringum Cisse en ég vil halda honum og bæði hann og Rafa hafa lýst yfir vilja sínum að vera áfram og halda honum. Hann hefur mikla hæfileika en þarf kannski aðeins að hugsa meira um fótboltann en hárið á sér. Ég held að það sé ekki lausnin að fá Robbie Fowler til liðsins, nema þá sem fimmta framherja, standard liðsins er einfaldlega of hár….

Ósk mín væri því sú að kaupa góðan vinstri bakvörð, hægri kantmann og framherja. Rafa langar í Dirk Kyut og Simao og er því ekki ólíklegt að þeir gætu komið en hvað vinstri bakvörð varðar er erfitt að segja.

En hverjir mega fara? Ljóst er að Jerzy Dudek fer frá liðinu. Svo má að mínu mati selja: Traore, Mellor, Pongolle og lánsmennina Cheyrou, Le Tallec, Kirkland og Diao. Fyrir þessa menn ætti að fást eins og 12-15 milljónir punda og fyrir það er hægt að kaupa Simao og rúmlega það.

Kuyt færi líklega á eins og 12 milljónir og vinstri bakvörður gæti kostað um 5 milljónir punda. Sá peningur er alveg til, það er ljóst. Það átti að eyða 8 í Simao og liðinu gengur vel í Meistaradeildinni og verður þar líklega á næsta tímabili og því eru til peningar auk þess sem eigendurnir leggja sitt af mörkum.


Leikmannahópur Liverpool í dag og staða þeirra á næsta tímabili eins og ég sé þetta fyrir mér:

Markmenn:
Pepe Reina - Aðalmarkmaður
Scott Carson - Varamarkmaður
Jerzy Dudek - Seldur

Hægri bakverðir:
Steve Finnan – Aðal hægri bakvörður
Jan Kromkamp – Vara hægri bakvörður

Miðverðir:
Daniel Agger - Byrjunarliðsmaður
Jamie Carragher - Byrjunarliðsmaður
Sami Hyypia – Vara miðvörður
Zak Whitbread - Vara miðvörður

Vinstri bakverðir:
Nýjan mann takk - Byrjunarliðsmaður
John Arne Riise – Vara vinstri helmingsmaður
Djimi Traore – Seldur eða varamiðvörður
Stephen Warnock – Vara vinstri bakvörður

Hægri kantmenn:
Simao Sabrosa – Byrjunarliðsmaður
Enginn annar að mínu mati en líklega er í lagi að hafa Garcia þarna hálfan og kannski Potter

Miðjumenn:
Steven Gerrard – Byrjunarliðsmaður
Xabi Alonso – Byrjunarliðsmaður
Dietmar Hamann – Vara miðjumaður
Momo Sissoko – Vara miðjumaður
(Luis Garcia) – Vara allsherjarmaður, í allar stöður fram á við

Vinstri kantmenn:
Harry Kewell - Byrjunarliðsmaður
Boudewijn Zenden – vara vinstri kantmaður

Framherjar:
Dirk Kyut - Byrjunarliðsmaður
Djibril Cisse - Byrjunarliðsmaður
Peter Crouch - Varaframherji
Fernando Morientes - Varaframherji
Neil Mellor - Seldur
Florent Sinama Pongolle – Seldur/lánaður?

Í láni:
Bruno Cheyrou - Seldur
Anthony Le Tallec - Seldur
Chris Kirkland - Seldur
Salif Diao – Seldur

Byrjunarliðið yrði því:

Reina

Finnan - Agger - Carragher - ?????

Simao - Gerrard - Alonso - Kewell

Kuyt - Cisse

Varaliðið:

Carson

Kromkamp - Hyypia - Traore - Warnock

Garcia - Hamann - Sissoko - Zenden

Crouch - Morientes

Þetta er mín skoðun, hvað finnst ykkur?

.: Hjalti uppfærði kl. 02:05 | 1630 Orð | Flokkur: Vangaveltur
Ummæli (18)

Gaman að geta lesið eitthvað svona nýtt og ferskt þegar maður er andvaka um miðja nótt.

Auk þess er flest af þessu hjá þér eins og mælt úr mínum munni!

Ég væri reyndar til í að selja Traoré strax í dag og fá nýjan mjög góðan vinstri bakvörð. Ég er enn að svekkja mig á að Evra hafi farið til United fyrir slikk. Í sumar myndi ég síðan vilja selja Riise og jafnvel Warnock líka og fá annan mjög góðan vinstri bakvörð.

Á hægri kantinn vil ég fá einn mjög góðan núna strax og annan í viðbót í sumar. Það er kannski til fullmikils ætlast? García gæti kannski dugað. En ég held að Potter sé nú sem betur fer farinn til Hearts.

Varðandi framherjana þá mætti Neil Mellor fara núna en allir hinir halda áfram. Jafnvel þótt verði e.t.v. keyptur nýr framherji fyrir næsta tímabil myndi ég ekki vilja missa Sinama-Pongolle, nema þá í mesta lagi í láni út næsta tímabil. Hann væri góður ef hann fengi að spila reglulega núna og verður frábær í framtíðinni! Sanniði til!

Minn hópur fyrir næsta tímabil yrði semsagt (raðað eftir mikilvægi):

Markmenn: Reina, Carson og ungu strákarnir
Miðverðir: Carragher, Agger, Hyypia og Whitbread.
Hægri bak: Finnan og Kromkamp
Vinstri bak: Tveir nýir leikmenn.
Miðja: Gerrard, Alonso og Sissoko.
Hægri kantur: Tveir nýir leikmenn og læt García hérna líka.
Vinstri kantur: Kewell og Zenden.
Framherjar: Nýr leikmaður, Cissé, Morientes, Crouch og Pongolle(e.t.v. í útláni).

Þá væru farnir: Dudek, Riise, Traoré, Warnock, Hamann, Mellor og allir þeir sem eru í útláni, fyrir utan Whitbread.

Einhverjum gæti fundist skrýtið að ég vilji láta Hamann fara en er ekki bara kominn tími á hann? Hvað þá á næsta tímabili. Ég hefði miklu frekar viljað halda Diarra áfram en að semja við Hamann á ný fyrir þetta tímabil. Þar er á ferðinni ungur og sterkur varnarsinnaður miðjumaður sem er að stimpla sig inní franska landsliðið.

En eftir allt saman þá hlýtur Benítez samt að vita miklu betur en ég hvað er réttast að gera! Hann hefur allavega ekki klikkað hingað til. ..Ha? Josemi hvað? :-)

Hannes sendi inn - 18.01.06 03:55 - (
Ummæli #3)

Fínar pælingar Hjalti - ég ætla samt að leyfa mér að vera mjög ósammála.

Þetta með að Riise hafi gert 3 mistök á móti Tottenham tel ég rangt. Að mínu mati, eftir að ég sá leikinn aftur, var hann mjög góður í leiknum - sérstaklega sóknarlega. Hann komst nokkrum sinnum upp að endamörkum auk þess að eiga skot á markið sem hefði legið í netinu ef Hyypia hefði ekki verið fyrir. Warnock finnst mér mjög góður og vil ekki missa fyrir mitt litla líf. Traore má fara.

Mig langar að bæta því við varðandi vörnina að þá er hún mjög góð. Mér finnst reyndar Finnan veikasti hlekkurinn en hvorki hann né Riise, né Hyypia verða leystir af nema með toppklassa leikmönnum sem kosta mikla peninga. Menn eins og Bridge tel ég útilokað að komi til með að styrkja liðið.

Varðandi Hyypia þá er hann að mínu mati einn af fimm bestu varnarmönnum í heiminum í dag. Í fyrra fannst mér vanta hraða í vörnina. Ég er ekki þeirrar skoðunar í dag. Við þurfum því annsi öflugan mann til að leysa Hyypia af. Hvort þessi Agger sé maðurinn get ég ekki dæmt um. Ég veit hins vegar að hann þarf að fá alvöru leiki til að sanna sig. Leikir með varaliðinu duga ekki eins og hefur marg oft sínt sig.

Varðandi hægri kanntinn þá er hann ekki vandamál að mínu mati. Ég er ósammála þeim sem segja að besta staðan hans Gerrard sé inn á miðjunni. Gerrard er að mínu mati náttúrutallent sem þarf að hafa frjálst hlutverk inn á vellinum. Staða miðjumanns verður að mínu mati aldrei frjáls vegna þess varnarhlutverks sem þeir þurfa að gegna. Liðinu hefur líka aldrei gengið betur en með Gerrard á kanntinum og hann er í besta formi lífs síns eins og hann segir sjálfur. Reyndar tel ég að Gerrard geti spilað allar stöður á vellinum og verið bestur. Hann og Kewell eiga mínu mati að geisast fram um leið og þeir fá boltann - reyna að sóla menn og skapa eitthvað - án þess að þurfa að bruna aftur í vörn um leið og liðið missir boltann.

Svo finnst mér eins og þú hreynlega gleymir Garcia. Hvar er hans besta staða nema á hægri kanntinum. Garcia hefur margoft sínt að hann er frábær leikmaður. Þó að hann geti leyst margar stöður frábærlega þá er hann best geymdur að mínu mati á hægri kanntinum. Ég vil líka benda á að hann var tekinn fram yfir Joaqin í Spænska landsliðinu. Það eitt og að vera valinn í Evrópuúrvalið sínir styrk hans. Þá er hann, eins og Gerrard og Kewell alltaf líklegur til að skora mörk.

Þá er miðjann hjá okkur líka afar vel mönnuð með þá Alonso, Hamann og Sissoko. Það að setja Gerrard inn á miðjuna þýðir að tveir af þessum þrem detta úr liðinu og að mínu mati veikir það liðið.

Ég er svo sammála þér með framherjana Hjalti. Í dag er ég hrifnastur af Morientes sem að mínu mati er að ná fyrri styrkleika. Vona bara að hann fái að byrja inn á í næstu leikjum. Crouch og Cisse eru bara ekki alveg nógu góðir þó Crouch hafi vissulega komið mér á óvart. Hann er bara ágætis leikmaður sem getur nýst liðinu vel. Cissi hefur bara ekki hæfileikana til að spila í ensku deildinni að mínu mati. Það er ekki nóg að vera fljótur. Þú þarft líka að vera klókur og góður spilari. Hann hefur reyndar bætt attitjútið hjá sér og ég vil ekki missa hann frá liðinu strax. Kannski á hann líka eitthvað inni. Þarna vildi ég helst styrkja liðið og það núna í janúar. Ég sé enga ástæðu að bíða til sumarsins.

Áfram Liverpool!

Hössi sendi inn - 18.01.06 09:20 - (
Ummæli #6)

Ég geri mér grein fyrir því að margir vilja sjá Cisse fara EN, hann kom til liðsins fyrir tveimur árum, fótbrotnaði illa og á núna möguleika á að spila sitt fyrsta heila tímabil fyrir liðið. Hann hefur skorað mörg mörk í öllum keppnum, og er dýrasti leikmaður liðsins frá upphafi. Hann hefur spilað mun reglulegra en Pongolle á tímabilinu en hann var vissulega meiddur.

Ég tel Cisse vera betri leikmann en Pongolle ef við eigum að bera þá tvo saman og vil frekar halda Cisse heldur en ungstirninu ef ég þyrfti að velja. Samt vil ég lána Pongolle frekar en að selja hann...

Pongolle og vinur hans Le Tallec voru á sínum tíma taldir vera efnilegustu leikmenn Evrópu. Houllier krækti í þá en í dag kemst Le Tallec varla í lið hjá lang lélegasta liði ensku úrvalsdeildarinnar. Allavega hefur hann ekki spilað alla leiki liðsins í ár....

Pétur - Ég er að tala um næsta tímabil og tel aðAgger verði kominn í byrjunarliðið þá. Ég hef mikla trú á honum og hann mun eflaust næla sér í nokkra leiki á þessu tímabili og síðan gera harða hríð að stöðunni á því næsta og ég tel að hann hirði hana.

Kuyt er mjög sterkur líkamlega og er target center. Hann er sterkur skallamaður og er markaskorari af Guðs náð....

Hannes - Hamann verður nú varla látinn fara í sumar. Hann er enn sterkur leikmaður auk þess sem hann er mikilvægur fyrir liðið utan vallar líka...

Hössi: "Varðandi Hyypia þá er hann að mínu mati einn af fimm bestu varnarmönnum í heiminum í dag."

Er Liverpool þá með tvo bestu miðverði i heiminum í dag eða er Hyypia kannski betri en Carragher?

Og ég held að það sé ljóst að Gerrard og Alonso eru okkar bestu miðjumenn. Sissoko þarf meiri reynslu og að laga sendingar sínar umtalsvert áður en hann getur orðið byrjunarliðsmaður eins og Alonso. Hæfileikum Gerrard er ekki sóað á hægri kanti, en þeir eru heldur ekki best nýttir þar.

Ég er ekki að gleyma Garcia. Ég talaði um að hann væri ekki náttúrutalent á hægri kantinn og að mér fyndist hann vera betri í stöðunni fyrir aftan framherjana en hann er vissulega kostur á hægri kantinum.

Mark Gonzales gleymdi ég alveg! :-) Annars man ég ekki hvað er nýjast að frétta af honum.... vonandi sjáum við hann koma í janúar!

Hjalti sendi inn - 18.01.06 17:59 - (Ummæli #16)

Jaháá Hjalti, Þú ert nú meira he**

Nahh :-)

Það er eiginlega voðalega erfitt að gagnrýna þetta hjá þér. Echo-ar svona nokkur veginn það sem maður er að spá.

Ég er ekki sammála þó með Evra. Fínn leikmaður og allt það, en eftir að hafa skoðað þetta betur í vetur, þá tel ég hann ekki hafa passað því sem Rafa er að sækjast eftir. Ég er sammála með Traore, vill að hann verði 4 miðvörður, er ekki á því að við eigum að selja hann. Tel hann vera talsvert fremri í dag heldur en Zak. Ég vil aftur á móti halda Warnock. Tel að þó hann sé þó orðinn þetta gamall, þá er hann með rétta attitudið í þetta og er hæfileikaríkur. Hann mun berjast um þessa stöðu áfram. Sammála þó með Riise, gæti vel hugsað mér betri mann í stöðuna inn og reyna í kjölfarið að fá slatta af penge fyrir hann.

Varðandi þessa stöðu hjá hinum liðinum, þá hefur Del Horno ekki heillað mig. Heinze er jú góður, en að mínum dómi ekki jafn góður og menn hafa af látið. Cole er öflugur, en mér finnst þeir ekki vera þessum víddum fyrir framan okkar menn. W.Bridge finnst mér þó ákaflega vanmetinn leikmaður. Hef lengi fylgst með honum, og tel ennþá hann vera einn af þeim bestu í stöðunni og ef ekki þann besta. Já, takk.

Hægri kantur er svo málið í dag. Ég vil sjá Stevie með Xabi á miðjunni. Minn fyrsti kostur er ennþá Simao. Það virðist þó ætla að verða erfitt. Vonum það besta þar, en að öðru leiti alveg sammála því sem þú segir.

Frammi? Vil ekki fyrir mitt litla líf missa Sinama. Ekki heldur Cissé, ekki Nando og ekki Crouch. Hvað er þá til ráða? Vil fá Kuyt, en þeir þrífast ekki allir saman, eða hvað? Sumir þeirra geta spilað aðrar stöður, og því ekki að vera bara með þá alla. Svo kemur bara í ljós hver þeirra gefst upp fyrstur og fer í fýlu, þá er bara orðið ljóst hver þeirra á ekki heima þarna :-)

SSteinn sendi inn - 18.01.06 18:40 - (Ummæli #17)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liverpool 1-0 Tottenham
·Luton 3 - Liverpool 5
·Bolton 2 - L'pool 2
·Liverpool 1 - W.B.A. 0
·Everton 1 - L'pool 3

Síðustu Ummæli

Hössi: Hjalti - mér finnst bæði Hyypia og Carra ...[Skoða]
SSteinn: Jaháá Hjalti, Þú ert nú meira he** Nah ...[Skoða]
Hjalti: Ég geri mér grein fyrir því að margir vi ...[Skoða]
Lárus: Ekki séns að sinama verði seldur!! ég vi ...[Skoða]
Hössi: Neibbs - Pétur - það þýðir ekki að hann ...[Skoða]
Eiki Fr: Ég veit hvað þarf! Að fá fleiri stig en ...[Skoða]
Aggi: Þessi grein er skemmtileg lesning og er ...[Skoða]
JayMatteo: Hjalti þú virðist alveg gleyma Mark Gonz ...[Skoða]
Pétur: Hössi... Luis Garcia, eins góður og hann ...[Skoða]
Hannes: Ég tek ekki mark á mönnum sem segja Finn ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Viðtal við Spánverjana
· Theo Walcott vill fara til Liverpool
· Hvað þarf Liverpool til að verða Englandsmeistari?
· Fimm dagar...
· Lið ársins hjá UEFA
· Finnan fær hólið sem hann á skilið.

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License