17. janúar, 2006
Fimm dagar...
Enn styttist biðin í stærsta leik tímabilsins hingað til hjá okkar mönnum, gegn manchester united
á Old Trafford. Og í dag, á þriðjudegi, höfum við bæði góðar og slæmar fréttir fyrir okkur Púllara.
Góðar fréttir: Cristiano Ronaldo og Ruud van Nistelrooy slógust á æfingu hjá MU í gær og varð að skilja þá í sundur. Svo virðist sem ekki sé allt með felldu í Helvíti …
Slæmar fréttir: Dómari leiksins á sunnudaginn? MIKE fokking RILEY …
Svo er það bara alfarið ykkar að gera upp hvort þetta séu á heildina litið slæm eða góð tíðindi? Hvort vegur þyngra, dómari sem elskar að veita manchester united
vítaspyrnur á Old Trafford, eða ósætti innan vébanda andstæðinganna? Hmmm?