beach
« 7 dagar | Aðalsíða | Könnun »

15. janúar, 2006
Hugmynd?

Sko, við notumst aldrei við Koptalk í okkar fréttaflutningi. En ég bara verð…

Ritstjóri Koptalk, sem er ekki í miklum metum hjá okkur kemur nefnilega með athyglisverðan punkt í ritstjórnapistli sínum. Ég hef hugsað aðeins um þetta og ég verð að játa að mér finnst þetta alls ekki vera svo vitlausar pælingar.

Okkur vantar nefnilega tilfinnanlega fleiri markaskorara. Í sumar er einn reyndasti markaskorari í ensku deildinni samningslaus. Og hann gæti vel passað inní þetta Liverpool lið. Hann er reyndur og myndi sennilega sætta sig við að vera mikið á bekknum, en myndi koma hungraður inná í leikjum. Hann hefur líka sérstaklega gaman af því að skora gegn liðum, sem okkur þykja leiðinleg.

fowler-fagn.jpg/

Robbie Fowler!

Greinin á Koptalk er svosem ekki merkileg, en þó er pælingin athyglisverð

You must know what you’re talking about if you say that Robbie Fowler has lost a yard of pace and could no longer cut it at Anfield. Well you don’t need a degree to work out that Robbie Fowler is no longer the young terror that he was but I think it’s nonsense to suggest he could no longer ply his trade in a Liverpool shirt.

If you disagree with me you’re saying that Neil Mellor, Florent Sinama-Pongolle and Fernando Morientes are all more capable than he is.

Er þetta svo galin hugmynd?

Fyrir það fyrsta þá er alveg fullkomlega augljóst að hugur Robbie Fowler liggur bara hjá einu liði. Hann elskar Liverpool og ég held að það sé augljóst að hann myndi gera allt til að koma aftur.

Á sínum tíma var ég fullkomlega sammála því að Robbie Fowler yrði seldur. Ég var ekki jafn brjálaður Fowler aðdáandi og margir í kringum mig. Var hrifnari af Michael Owen. Fowler átti erfitt með að sætta sig við að hann væri ekki númer 1, heldur númer 3 og það var skiljanlegt að hann væri seldur, þar sem hann var á allra besta aldri.

En hann er annar maður í dag og myndi alls ekki koma til liðsins sem stjarna númer 1. Hann myndi eflaust sætta sig við miklu minna hlutverk í liðinu í dag, líkt og hann gerir hvort eð er hjá Manchester City. Hann yrði aldrei aftur striker númer 1, því sá tími er liðinn. En hversu gott yrði það að geta haft Robbie Fowler á bekknum? Hvaða framherja væri hægt að fá ókeypis, sem hefði meiri reynslu og væri jafn líklegur til að skora en Fowler?

Robbie Fowler gæti komið ókeypis til Liverpool. Hann er 30 ára gamall og gæti átt einhver tvö fín ár hjá Liverpool. Hann yrði fáránlega vinsæll og ég veit ekki um einn Liverpool stuðningsmann í þessum heimi, sem myndi ekki gleðjast yfir því að sjá Fowler aftur í rétta búningnum. Ég er ekki með neinar grillur um að hann yrði sami gamli Fowler en sem framherji númer 4, þá get ég ekki ímyndað mér betri mann í starfið.

Hvað finnst ykkur? Reynum að horfa framhjá því að sumir menn myndu vilja fá Fowler jafnvel þótt hann væri 300 kg. Reynum að horfa á þetta frá fótboltasjónarhorni og raunsætt. Hvað mælir gegn því að Fowler komi til Liverpool? Ég veit ekki hvernig hann hagar sér utan vallar í dag, en Houllier hafði áhyggjur af hans áhrifum. Ég held þó að Fowler myndi gera allt til að sanna sig hjá Liverpool og hann myndi taka til í þeim málum ef það þýddi að hann gæti komið aftur heim. Ég hef allavegana heyrt margar mun verri hugmyndir.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 18:40 | 578 Orð | Flokkur: Vangaveltur
Ummæli (17)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·WBA 0 - L'pool 2
·Liverpool 3 - Everton 1
·Birmingham - Liverpool 0-7
·Newcastle 1-3 Liverpool
·L'pool 5 - Fulham 1

Síðustu Ummæli

Hjalti: Bendi mönnum á að bókin hans Fowlers er ...[Skoða]
Kristján Atli: Sko, Fowler er víst breyttur maður í dag ...[Skoða]
Kristinn: Spurning, ég væri til í að fá hann á pay ...[Skoða]
Gummi H: Já, ég væri til í að lesa hana. Best að ...[Skoða]
Mummi: Ég er að lesa bókina hans Fowlers þessa ...[Skoða]
Gummi H: Salan á Fowler á sínum tíma var góður bi ...[Skoða]
Dóri: Þetta er alls ekki vitlaus hugmynd að fá ...[Skoða]
Svavar: Auðvitað væri geggjað að fá Guð heim aft ...[Skoða]
Aggi: Ég tel að það hafi komið vel fram að ég ...[Skoða]
Bjarki Balvinsson: Heldur þú að Fowler myndi bara koma til ...[Skoða]

Síðustu færslur

· ?
· Molar og mylsna
· ...dream of a team of Carraghers...
· Lið helgarinnar.
· ... og meira af Fowler.
· Fowler hefur skorað meira en Dalglish.

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License