beach
« Liverpool 1-0 Tottenham | Aðalsíða | Hugmynd? »

15. janúar, 2006
7 dagar

Jæja, þá eru 7 dagar í mikilvægasta leik tímabilsins hingað til.

Ég held að við getum nokkurn veginn gleymt því að Chelsea liðið hrynji uppúr þessu og því er vonin um annað sætið sennilega okkar helsta takmark og svo vonandi að ná að komast langt í FA Cup og Meistaradeildinni.

En við hreinilega verðum að ná öðru sætinu. Við erum núna einu stigi á eftir manchester united og eigum 2 leiki til góða. Ef við myndum vinna á Old Trafford, þá værum við komnir tveim stigum á undan manchester united með tvo leiki til góða. Það væri algjörlega frábært. Næsta lið er svo Tottenham, sem við erum 4 stigum á undan og eigum samt tvo leiki á þá líka.

Ég verð að játa að ég skil ekki alveg þetta manchester united lið. Ég hef horft á nokkra leiki með því í vetur og hefur fundist þeir vera langt frá því að vera sannfærandi. Ég veit að það eru mér margir ósammála, en mér finnst framherjaparið hjá manchester united vera það besta í ensku úrvalsdeildinni. Wayne Rooney hefur leikið frábærlega (og í raun sá eini, sem gæti ógnað því að Steven Gerrard verði valinn leikmaður ársins í ensku deildinni að mínu mati) og svo skorar Van Nilsteroy alltaf sín mörk.

Fyrir utan þessa leikmenn, þá er þetta manchester united lið hins vegar miðlungslið. Vörnin er hriplek með ofmetnasta varnarmann heims, Rio Ferdinand í fararbroddi. Kantmennirnir eru hæfileikaríkir, sérstaklega Ronaldo, en það kemur lítið úr þeim. Park hefur lítið fengið að sýna sig og Ryan Giggs er ekki jafn góður og hann var einu sinni.

Miðjan er svo hreinlega í molum hjá liðinu. Fyrir utan Paul Scholes, sem er kominn af sínu besta skeiði, þá eru hinir mennirnir hálfgerir brandarar. Já, Alan Smith, Fletcher og co eiga öðru hvoru góða leiki, en þeir eru samt ekki í sama stjörnukerfi einsog Gerrard, Lampard, Makalele og Alonso.

En þrátt fyrir þetta allt, þá er þetta manchester united lið samt að vinna leiki og þeir fóru í gegnum 11 leikja prógramm án þess að tapa. Þeir eru gríðarlega sterkir á heimavelli og eru eina liðið, sem hefur unnið Chelsea. Þess vegna er ég pínu hræddur.

En samt, þá er ég aðallega spenntur. Við erum í fyrsta skipti í mörg, mörg ár með sterkara lið en manchester united og eigum að geta klárað þá á Old Trafford.

Einsog hefð er fyrir, þá leyfum við hér á Liverpool blogginu okkur að vera eins ómálefnalegir og við viljum vikuna fyrir leiki gegn Man U. :-)

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 14:23 | 417 Orð | Flokkur: Vangaveltur
Ummæli (5)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liverpool 1-0 Tottenham
·Luton 3 - Liverpool 5
·Bolton 2 - L'pool 2
·Liverpool 1 - W.B.A. 0
·Everton 1 - L'pool 3

Síðustu Ummæli

Andri: Það er hægt að fara að kalla þetta Chels ...[Skoða]
Gummi H: Ég held að það verði jafntefli í þessum ...[Skoða]
L.Á.: Þyrftum helst að kaupa Danny Murphy til ...[Skoða]
Hjalti: Því miður þá unnu Chelsea 2-1 og eru því ...[Skoða]
Páló: Sunderland komið yfir :-) vonandi ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Finnan fær hólið sem hann á skilið.
· Lið vikunnar
· Könnun
· Hugmynd?
· 7 dagar
· Liverpool 1-0 Tottenham

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License