beach
« Tvær breytingar á byrjunarliðinu | Aðalsíða | 7 dagar »

14. janúar, 2006
Liverpool 1-0 Tottenham

Glæsilegt mark Harry Kewell skilaði þrem stigum í hús í dag. Robbie Fowler skoraði síðasta mark Manchester City sem unnu manchester united örugglega, 3-1. Það þýðir að við erum aðeins einu stigi frá öðru sætinu og eigum tvo leiki til góða.

Leikurinn fór rólega af stað en Crouch fékk fyrsta færið þegar hann henti sér fram og skallaði aukaspyrnu frá Gerrard á markið en Paul Robinson varði vel í markinu. Skömmu síðar fékk Morientes hálffæri sem hann náði ekki að nýta áður en fyrsta hættan við okkar mark leit dagsins ljós en þá skallaði Michael Dawson langt framhjá.

Okkar menn báru höfuð og herðar yfir Tottenham í fyrri hálfleik og oft sköpuðust hættur við mark þeirra. Tottenham menn komust lítt áfram gegn þéttri miðju okkar manna og sterki vörn auk þess sem Reina var mjög öruggur í markinu og greip vel inní allan leikinn.

Morientes átti frábæra sendingu á Gerrard sem síðan sendi fyrir á Nando, hann skallaði boltann sem skoppaði ofan á þverslánni og Crouch tók síðan frákastið en hitti boltann ekki úr sannkölluðu dauðafæri. Maður beið í rauninni bara eftir markinu en það kom ekki í fyrri hálfleik þar sem staðan var markalaus.

Síðari hálfleikur byrjaði ekki nægilega vel, Tottenham menn voru betri og Robbie Keane fékk mjög gott færi eftir fyrirgjöf en Reina gerði vel, lokaði á hann og skotið frá Keane fór framhjá markinu. Riise var í miklum vandræðum á tímabili og mér leist ekkert á blikuna og geri varla enn, Riise var ekki nógu góður í þessum leik.

Crouch átti síðan skalla eftir horn sem Robinson varði vel en þessi markmaður var klárlega besti maður Tottenham í leiknum.

Þá var komið að stórkostlegri stund. Steve Finnan fékk boltann úti á kanti, þrumaði fyrir þar sem Harry Kewell tók við boltanum og þrumaði honum á lofti glæsilega í netið og loksins var markið komið. Kewell var frábær í leiknum og skoraði þarna sitt fyrsta mark í 13 mánuði og gamli góði Kewell er svo sannarlega kominn aftur. Það eru bara frábær tíðindi og mark sem kemur klárlega til greina sem mark leiktíðarinnar!

Strax eftir markið gerði Reina svo vel í markinu þegar hann varði frá Mido og Liverpool bakkaði of mikið eftir að við komumst yfir. Tottenham voru mikið með boltann, fengu mörg horn en sköpuðu einfaldlega ekki nóg til að skora. Þess í stað voru okkar menn líflegir í skyndisóknum og eftir eina slíka þegar Kewell var að sleppa í gegn braut Paul Stalteri á honum og fékk beint rautt spjald. Mér fannst þetta vera réttur dómur enda var hann að sleppa einn innfyrir og ekkert annað í stöðunni en að reka hann útaf.

Cisse kom inná fyrir Crouch og sýndi ágætis takta en mér fannst sá síðarnefndi alls ekki vera nógu góður. Hann vann jú nokkra skallabolta og fékk færi í byrjun leiks en átti annars erfitt uppdráttar. Sissoko virðist hafa leitað til Cisse varðandi hárgreiðslur en báðir skörtuðu þeim skemmtilegum í dag. Verður athyglisvert að fylgjast með þessari “baráttu” þeirra!

Annars kláraði Liverpool leikinn bara örugglega þrátt fyrir að Reina hafi í tvígang verið tæpur að mínu mati, fyrst kom hann langt út úr markinu og kýldi boltann beint á Tottenham mann sem var með opið mark en reyndar var búið að dæma rangstöðu. Svo sparkaði hann illa frá þegar hann fékk sendingu til baka en átti annars mjög góðan leik.

Maður leiksins: Þetta er ekki einfalt val. Mér finnst baráttan vera á milli Mohammed Sissoko og Fernando Morientes ásamt Kewell. Ég ætla þó að velja Sissoko. Hann var alveg magnaður á miðjunni, vann hvern boltann á fætur öðrum og gafst aldrei upp. Nando vann einnig mjög vel, þrátt fyrir að það hafi dregið aðeins af honum í síðari hálfleiknum og Kewell sýndi skemmtilega takta og skoraði auðvitað frábært mark. Gerrard skilaði sínu vel og Alonso var traustur á miðjunni.

Frábær sigur staðreynd gegn erfiðu Tottenham liði og tólfti leikurinn í röð sem Liverpool tapar ekki. Næsti leikur í deildinni er svo gegn manchester united og mann er strax farið að hlakka til!

Liverpool: Reina, Riise, Hyypia, Carragher, Finnan, Kewell, Alonso, Sissoko, Gerrard, Morientes, Crouch. Varamenn: Carson, Kromkamp, Cisse, Sinama Pongolle, Warnock

Tottenham: Robinson, Lee, King, Dawson, Stalteri, Davids, Jenas, Carrick, Tainio, Keane. Varamenn: Cerny, Defoe, Lennon, Brown, Gardner


Rafa eftir leikinn:

Ef þú vilt vinna leik 1-0 þá viltu skora svona mark. Það var mjög mikilvægt fyrir Harry að skora fyrir framan Kop stúkuna eftir vandræði hans á síðasta tímabili og þetta var fullkomin afgreiðsla. Hann verðskuldaði að skora og það var ótrúlegt að sjá hann skora í Kop-endanum. Harry æfir vel á hverjum degi og stendur sig vel leik eftir leik. Hann finnur ekkert til og er núna að spila eins og hann gerði áður en hann lenti í þessum vandræðum.

Orð á sönnu hjá Rafa og það er eins og að fá nýjan leikmann að sjá Kewell í þessu formi. Hann hefur verið mjög góður í síðustu leikjum og verðskuldaði svo sannarlega þetta mark í dag. Um leikinn sjálfann sagði Rafa svo:

Þetta var mjög góður sigur fyrir okkur og það var erfitt að skora gegn þessu góða liði sem spilaði vel. Þeir voru mikið með boltann og átty dauðafæri í byrjun síðari hálfleiks eftir mistök að okkar hálfu, en við héldum áfram og sköpuðum nokkur fín færi. Við spiluðum ekki stjórkostlegan fótbolta í dag en liðið er að þroskast núna til að vinna leiki og það leggur hart að sér og spilar eins og lið.

Aftur hitti Rafa naglann á höfuðið…..

.: Hjalti uppfærði kl. 16:52 | 915 Orð | Flokkur: Leikskýrslur
Ummæli (17)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Pompey 1 - L'pool 2
·MUFC 1 - LFC 0
·Liverpool 1-0 Tottenham
·Luton 3 - Liverpool 5
·Bolton 2 - L'pool 2

Síðustu Ummæli

Guðrún: Liverpool eru lang bestir!!!! ...[Skoða]
alexander guðbrands: áfram LIVERPOOL ...[Skoða]
Ingi: Já þetta er magnað hjá okkar mönnum. Nú ...[Skoða]
Aggi: Klassa sigur... gott mark og sanngjarnt. ...[Skoða]
Beggi: Hvað skal segja liðið er á þvílíkri sigl ...[Skoða]
Andri: Frábært að ná í 3 stig, liðið heldur áfr ...[Skoða]
Kristinn J: Annars var Kromkamp eiginlega maður leik ...[Skoða]
Svavar: Sjitt hvað liðið okkar er stabílt og sty ...[Skoða]
Kristinn J: Heilt yfir fannst mér þetta fínasti knat ...[Skoða]
Kristján Atli: Missti af síðustu 20 mínútum leiksins ve ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Þreyta
· Pompey 1 - L'pool 2
· Rafa ánægður með liðsandann.
· Portsmouth í bikarnum á morgun!
· Victor á leiðinni til Liverpool!
· Cisse færðu til yfirheyrslu.

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License