13. janúar, 2006
Theo Walcott til Arsenal skv. BBC (uppfært S'ton neita)
BBC staðhæfa það að Theo Walcott sé á leið til Arsenal fyrir 15 milljónir punda. Við höfum áður fjallað um Walcott og mál hans t.d. hér.
Ég verð að játa að ég á afskaplega erfitt með að skilja þetta ef rétt er. Arsenal þarf unga leikmenn álíka mikið og okkur vantar fleiri markmenn. Það að Arsenal ætli að eyða 15 milljónum punda í 16 ára gamlan framherja (ábyggilega fer upphæðin að stóru leyti eftir leikjafjölda og slíkt) á meðan að miðjan hjá þeim er í rugli í dag, er frekar óskiljanlegt að mínu mati.
Ég hef ekki séð Walcott spila, en skiljanlega hefur maður orðið spenntur af öllu hype-inu í kringum hann. En BBC hafa svosem haft rangt fyrir sér í svona staðhæfingum, þannig að ekkert er öruggt.
Uppfært (9.30) - EÖE: Rupert Lowe, stjórnarformaður Southampton hefur NEITAÐ þessum staðhæfingum BBC. Hann segir:
‘Clive Woodward and I visited Arsenal’s training ground today just to look at their facilities which are magnificent. Maybe that has caused some crossed wires? But we have not agreed to sell Theo, we want to keep him.
BBC hafa þó ekki enn breytt sinni frétt.
Guardian halda því einnig fram að Walcott sé á leið til Arsenal, en þeir nefna 10 milljónir punda.