13. janúar, 2006
Nýr markvörður kominn til Liverpool.
David Martin samdi við Liverpool í gær eftir að hafa verið til reynslu fyrir jól. Hann spilaði áður með MK Dons (fyrrum Wimbledon), er enskur og verður 20 ára gamall 22. janúar. Hann er vitanlega afar ánægður með að vera kominn til Liverpool og segir m.a. sjálfur:
“Þetta er mikil áskorun fyrir og Liverpool hefur gefið mér þetta einstaka tækifæri. Ég vil endurgjalda greiðann með að æfa eins mikið og ég get”
Núna er Liverpool með Reina, Dudek, Carson, Paul Willis, Chris Kirkland og núna David Martin eða alls 6 markmenn sem eru eldri en 20 ára. Ég tel þar með ljóst að dagar Dudek og Kirkland eru taldir hjá Liverpool.
Þess má geta að Liverpool samdi einnig við 15 ára gamlan danskan markmann frá Brøndby, Martin Hansen að nafni og kemur hann í sumar þegar hann er orðinn 16 ára. Umboðsmaður Hansen segir m.a.:
“Hugmyndin með að fá Martin Hansen er að fá í fyrsta skipti markmann sem gengur í gegnum allt ferlið hjá Liverpool þ.e. frá Akademíunni uppí aðalliðið.”
.: Aggi uppfærði kl.
20:23
|
171 Orð
|
Flokkur:
Leikmannakaup
Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".
Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote
Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.