12. janúar, 2006
EÖE: Jæja, við höfum núna ákveðið að taka inn fjórða pennann hér á Liverpool blogginu. Hann heitir Hjalti Þór Hreinsson og hefur m.a. skrifað reglulega á fótbolta.net.
Við bjóðum Hjalta velkominn í hópinn og erum sannfærðir um að hann muni styrkja síðuna verulega. En leyfum honum að kynna sig:
Nota bene, fyrsta færslan hans er hérna fyrir neðan: Agger í skýjunum
Ég heiti Hjalti Þór Hreinsson og fæddist á því herrans ári 1984 líkt og Daniel Agger og Florent Sinama Pongolle. Ég hef haldið með Liverpool frá því ég byrjaði að taka eftir enska boltanum á eftir barnaefninu í æsku en reyndar er nokkuð ósætti um það hvernig ég byrjaði að halda með liðinu. Systir mín og pabbi minn vilja bæði eigna sér það en ég held því fram að ég hafi tekið upp leik með Liverpool algjörlega óvart, einmitt á eftir barnaefninu! Eftir að hafa horft á barnaefnið aftur og aftur horfði ég svo á leikinn aftur og aftur…..
Í fyrstu hélt ég mikið upp á Ian Rush og John Barnes. Þeir voru mínir uppáhaldsleikmenn og ég “var alltaf þeir” þegar ég var sjálfur að sparka á mínum miður stutta knattspyrnuferli. Mér varð fljótlega ljóst að knattspyrnan var mér ekki í blóði borin þrátt fyrir að eiga rætur að rekja til Akraness og lagði ég því skóna á hilluna fljótlega eftir það enda var það augljóst mál að hlutskipti mitt í lífinu var ekki að spila fótbolta heldur einungis að fylgjast með honum.
Ég get ómögulega gert upp á milli leikmannanna í dag en ef einhver sígur framúr aðeins meira en hinir þá er það Jamie Carragher, af nokkuð augljósum ástæðum.
Ég er sem stendur í Háskóla Íslands þar sem ég er að fara í fjölmiðlafræðinám. Ég lauk stúdentsprófi frá FB árið 2004 af upplýsinga- og tæknibraut og fór síðan um hríð í Iðnskólann í Reykjavík áður en ég fór í HÍ.
Ég var ritstjóri á heimasíðunni Fótbolti.net í tvö ár en lagði þann penna á hilluna í byrjun árs 2006 og kvaddi ég síðuna með söknuði. Þar skrifaði ég um 3750 fréttir af ýmsu tagi og skipar síðan stóran sess í mínu lífi. Meðal annars varð hún til þess að ég ákvað að fara ekki í arkitektanám heldur feta á fjölmiðlafræðibrautina.
Auk þess að skrifa á Fótbolti.net skrifaði ég um hríð fyrir Liverpool.is en þó ekki mjög lengi. Ég skrifa einnig núna á Leiknir.com en það er mitt lið á Íslandi og fylgi ég því í gegnum súrt og sætt.
Í byrjun síðasta ár fór ég að vinna á Blaðinu sem þá var nýstofnað. Þar fékk ég góða reynslu en ég skrifaði eingöngu íþróttafréttir þar. Í haust bauðst mér svo helgarvinna á Fréttablaðinu sem ég þáði með þökkum. Þar er ég að vinna í dag og skrifa um íþróttir um helgar auk þess sem ég fer á leiki enda hef ég áhuga á öllum íþróttum og hef meðal annars æft þær átta!
Ég er í skýjunum með að hafa fundið nýjan vettfang fyrir skrif mín og er ánægður með að fá tækifærið með að bætast í þann góða hóp penna sem haldið hafa þessari frábæru síðu úti en ég hef verið daglegur gestur frá upphafi.
Hjalti Þór Hreinsson
E-mail – hjalti84@hotmail.com