12. janúar, 2006
Jæja, þetta verður ekki mikið staðfestara. Af LFC.tv: REDS COMPLETE AGGER DEAL .
Agger hefur skrifað undir 4,5 ára samning. Hann verður kynntur seinni partinn í dag.
Uppfært 11:12 (Aggi): Daniel Agger mætti stundvíslega með umboðsmanni sínum kl:11 á Melwood (æfingasvæði Liverpool) og fór í gegnum aðra lækniskoðun áður en hann skrifaði undir samninginn. Agger mun spila númer 5, gamla Baros númerið. Liverpool vill ekki gefa upp kaupverðið en talið er víst að það sé í kringum 65 mill. dkr. (5.8 mill. punda) en hluti af samningnum er að Liverpool mætir Brøndby í æfingaleik í Danmörku með sitt sterkasta lið.
Per Bjerregaard, framkvæmdastjóri Brøndby, var ánægður með samninginn fyrir hönd þeirra en sagði að það hefði verið vilji Brøndby-manna að halda lengur í Agger. Hann viðurkennir að LFC sé langtum stærra félag en Brøndby hins vegar sé margt líkt með félögunum og að Agger hafi fundið rétta framtíðarfélagið fyrir sig.