beach
« Daniel Alves vill fá að fara til Liverpool. | Aðalsíða | Daniel Agger á leið til Liverpool - Staðfest! (Uppfært) »

11. janúar, 2006
Rafa stendur fastur á sínu (uppfært x3)

agger12.jpg Uppfært kl. 15:49 (Aggi): Það er reyndar ekki kominn formleg staðfesting á því að Agger sé orðinn Liverpool leikmaður en ég tel það næstum frágengið. Það kemur fram á öllum vefmiðlum að það sé tímaspursmál hvenær allt er frágengið. Hins vegar er Rafa búinn að tjá sig um drenginn og segir m.a. þetta:

“We scouted Daniel for a long time but then he picked up an injury. When he returned to fitness we watched his first game back and we knew he was at the kind of level we require, even though he played only 25 minutes.”
“People will remember he played particularly well in an international against England earlier this season. We’d already watched and asked about the player before then” “That match surprised a lot of people, but it confirmed to us he could play at a particularly high level, which is why we’ve continued to follow him.”


Uppfært kl. 12:29 (Kristján Atli): Jæja, Liverpool Echo hafa staðfest það sem við biðum eftir: Daniel Agger er staddur á Anfield í dag til að standast læknisskoðun og undirrita samning við Liverpool!

Þetta eru að sjálfsögðu frábærar fréttir, loksins er kominn klassaleikmaður í þessa stöðu og hann er ungur, sem er flott, því það þýðir að Sami og Carra fá hvíld en þó liggur ekkert á að skipta þeim út. Frábært mál!

Hér fyrir neðan er upprunalega fréttin frá því í morgun …


Rafa ætlar sér að kaupa Daniel Agger. Nei, ég meina, hann ætlar sér að kaupa hann. Vandamálið er bara það að akkúrrat núna eru Liverpool bara tilbúnir að bjóða 5.5 milljónir punda í hann, en Bröndby eru með þrjósku og vilja fá 7 milljónir punda, sem verður að teljast fáránleg upphæð miðað við það að strákurinn á bara 18 mánuði eftir af samningi sínum. Ef hann leikur eitt tímabil í viðbót með Bröndby má hann semja frítt við hvaða lið sem er eftir tæpa tólf mánuði, þannig að mér þykir þeir góðir að ætla að fá sjö milljónir fyrir óreyndan strák.

Rafa kann hins vegar að leika þennan leik og sýnir hvergi á sér bilbug. Hann tjáði sig um Cesar og Coloccini hjá Deportivo við spænska fjölmiðla í gær:

“We have targeted Coloccini and Cesar of Deportivo La Coruna and we are just about to obtain if they want to sell.”

Sko, Rafa tjáir sig aldrei um þá menn sem hann ætlar að kaupa áður en það er nánast frágengið að þeir komi. Þannig að ég túlka það að hann tjái sig um Cesar og Coloccini þannig að:

a - hann er alveg við það að semja við annan hvorn þeirra, eða hreinlega bara báða.
b - hann er að láta Bröndby vita að hann sé með önnur járn í eldinum, sjá hvort þeir láti ekki undan.

Hvort skyldi það vera? Það verður að koma í ljós, en það eru enn tveir/þriðju af þessum félagaskiptaglugga eftir, þannig að nógur er tíminn til að redda þessu.

Einnig: Rafa ætlar að ræða við Sinama-Pongolle um framtíð framherjans unga. Rafa segir:

“We have to come to a decision which is good for him and good for the club. I will be talking to him about the situation, we’ll analyse it together and then decide what the best solution is.

Sometimes with young players it’s better if they play regularly, but if we keep winning games and stay in the FA Cup and Champions League then we will play more matches and need more players.”

Þetta, fyrir mér, hljómar eins og Rafa vilji setjast niður með Flo-Po og segja honum að hann ætli sér að nota hann fram á vorið, að hann vilji hafa hann í hópnum þangað til í sumar, og svo muni þeir setjast niður og sjá til með framhaldið. En það kemur náttúrulega bara í ljós - ég veit allavega að ég vill ekki fyrir nokkurn mun missa Flo-Po á þessu stigi tímabilsins. Hann á heilmikið inni.


Uppfært (Kristján Atli): Sumir (mis)áreiðanlegir netmiðlar eru farnir að segja frá því að Daniel Agger hafi í dag dregið sig í hlé frá æfingabúðum Bröndby-liðsins á Spáni og muni fljótlega fljúga yfir til Liverpool-borgar, þar sem hann muni gangast undir læknisskoðun um leið og liðin tvö komast að endanlegu samkomulagi. Ef þetta er satt þá er mjög stutt í að Liverpool og Bröndby gangi frá öllum lausum endum sín á milli, og bendir þetta til þess að samkomulag hafi nást um kaupverðið.

Vonandi koma frekari (og áreiðanlegri) fréttir af þessu síðar í dag eða á morgun. Við munum fylgjast með.

.: Kristján Atli uppfærði kl. 08:36 | 753 Orð | Flokkur: Slúður
Ummæli (17)

Mirror segja núna frá því að Tottenham séu að reyna að stela honum á síðustu stundu. Þeir segja að á meðan Liverpool hafi verið að teygja lopann síðustu daga í þeirri von að Bröndby-menn lækki verðið á honum hafi Martin Jol skotið sér á milli og boðið uppsett verð í hann.

Ef hann var fjarverandi í flugvél Bröndby-manna í morgun vegna þess að hann er að fara til Tottenham í læknisskoðun í staðinn fyrir Liverpool, þá verð ég brjálaður ... vona að þetta sé ekki satt, en ef satt reynist erum við algjörir aular í leikmannakaupum, ekkert minna.

Sjáum til.

Kristján Atli sendi inn - 11.01.06 10:35 - (Ummæli #5)

Svo er í Echo núna ágætis viðtal við Rafa, þar sem hann tjáir sig um kaupin og af hverju hann hefur verið að eltast við Agger. Fróðlegt viðtal.

Einar Örn sendi inn - 11.01.06 15:53 - (Ummæli #15)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Heimsmeistarakeppni Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Luton 3 - Liverpool 5
·Bolton 2 - L'pool 2
·Liverpool 1 - W.B.A. 0
·Everton 1 - L'pool 3
·Liverpool 2 - Newcastle 0

Síðustu Ummæli

Umminn: T.V. 2 her i baunalandi var med frett nu ...[Skoða]
Hafliði: :-) ahhh....er ekki að koma stað ...[Skoða]
Einar Örn: Svo er í Echo núna ágætis viðtal við Raf ...[Skoða]
Aggi: Arnar, ég sagði þetta nú aðallega vegna ...[Skoða]
Hannes: Trausti, þeir spila nú ekki beint sömu s ...[Skoða]
Arnar: Af hverju spáirðu því Aggi er hann einhv ...[Skoða]
trausti: já svo getur maður borið saman kaup. man ...[Skoða]
Aggi: þetta er hið besta mál og ég hlakka miki ...[Skoða]
Chris: Jæja, núna bíður maður spenntur yfir að ...[Skoða]
Hannes: jibbí!!! :-) ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Lið Ársins 2005 - þú getur valið!
· Agger kominn (STAÐFEST - Official) - (uppfært)
· Daniel Agger á leið til Liverpool - Staðfest! (Uppfært)
· Rafa stendur fastur á sínu (uppfært x3)
· Daniel Alves vill fá að fara til Liverpool.
· Mellor á leið til Hearts og fleiri varnarmenn tengdir við okkur.

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License