10. janúar, 2006
Daniel Alves vill fá að fara til Liverpool.
Liverpool er skv. SkySports búið að bjóða 8 milljónir punda í Alves en Sevilla neitaði því og segja að hann sé meira virði. Alves segist hafa mikinn áhuga á því að leika fyrir Liverpool því hann sé metnaðarfullur leikmaður og hafi áhuga á að tryggja sér sæti í brasilíska landsliðinu fyrir HM í sumar.
Alves er 23 ára gamall og hefur verið hjá Sevilla síðastaliðinn 4 tímabil. Hann hefur spilað hægra megin á miðjunni eða sem hægri kantur hjá Sevilla.
Ef samningar nást við Sevilla um raunsætt verð á drengnum þá er hægri kanturinn hjá okkur í góðum gír. Er meira spenntur fyrir þessum dreng en Simao. Sjáum hvað gerist á næstu dögum.