05. janúar, 2006
Samkvæmt danska blaðinu DR Sport, þá er Daniel Agger búinn að semja um kaup og kjör við Liverpool. Blaðið heldur því þó fram að Liverpool og Bröndby eigi enn efir að semja um kaupverð (það er ef danskan er ekki að bregðast mér). B.T. slá þessu líka uppá forsíðu á netútgáfunni sinni
Þetta ætti bara að staðfesta það, sem við töluðum um í gær, það er að Agger yrði orðinn Liverpool leikmaður fyrir helgi. Virkilega gott mál.
Uppfært (Aggi): Ég tók smá upplýsingar um Agger af heimasíðu Brøndby IF.
Nafn: Daniel Agger
Fæddur: 12.12.1984
Hæð: 189 cm
Þyngd: 80 kg
Leikir: 49/5 fyrir Brøndby. 4 landsleikir.
Fyrri félög: Rosenhøj
Var tekinn inní aðalliðið um sumarið 2004 og hefur tekið gríðarlega miklum framförum frá því tíma. Er stór og sterkur örfættur varnarmaður sem bæði getur spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður. Hefur þótt eitt mesta efni Dana í knattspyrnu um undanfarin misseri. Þykir fastur fyrir, fer óhikað í tæklingar og góður að dekka. Umfram allt er hann klókur varnarmaður sem les spil andstæðingana vel sem bætir upp þann ókost að hann er alls ekki sá fljótasti. Hefur gefið gott orð af sér sem framsækinn varnarmaður og skorar ósjaldan þegar hann fer fram í föstum leikatriðum,
bæði með skalla og föstum vinstri fótarskotum.