30. desember, 2005
Rafa hefur staðfest skiptidílinn á milli Villareal og Liverpool.
Hann segir m.a.
“Josemi is a right full-back who has had problems speaking English, Kromkamp is a right full-back whose had problems with Spanish.”
“He is an offensive full-back who likes to get forward and is very strong in attack. He can operate as a full-back in a line of four or as a wing-back in a line of five. He’s a good player but I’d rather not talk too much about him until the deal is finalised.
“As both players have discovered, it is difficult to play in an other country. Josemi has tried to learn English and he’s improved a lot but for him and his family it has been hard. Kromkamp has suffered the same in Spain. He speaks English but at Villarreal almost everyone speaks Spanish so it was not an ideal situation for him.
“I have been talking with Josemi and we think it is a good idea for him to return to Spain. Sevilla were interested but now Villarreal have come in for him and this dealseems right for all parties.”
Semsagt, við erum að skipta á leikmönnum útaf tungumálaerfiðleikum(!)
Við hérna á Liverpool blogginu höfum varið Josemi gegn ansi óvæginni gagnrýni, sem hann fékk á sig á tímabili. Við héldum því aldrei fram að hann væri að leika vel fyrir Liverpool, en gagnrýnin sem Josemi fékk var samt komin út fyrir öll eðlileg mörk.
Það var alveg ljóst að honum gekk ekki að aðlaga sig að Englandi og enska boltanum, en ég er sannfærður um að hann eigi eftir að standa sig vel á Spáni og við vonum svo sannarlega að hann nái sér á strik þar.
Það verður hins vegar spennandi að sjá hvort að Kromkamp (hvað ætliði að gera í þessu nafni?) nái sér á strik hjá okkur.
Já, og því miður þá mun Fernando Morientes missa af leikjunum um áramótin, þar sem hann er meiddur. Þannig að Crouch og Cisse fá að spreyta sig áfram og einnig væri gaman að sjá Sinama Pongolle fá að spreyta sig, t.d. í leiknum á morgun gegn W.B.A.
Einnig er athyglisvert að Benitez tjáir sig opinberlega í Echo um tvo leikmenn, Coloccini og Cesar. Hann segir:
“We’ve looked at Coloccini and Cesar from Deportivo and we’re close to making something happen. We will have to wait and see.
“There are 24 games minimum left, and hopefully around 34. We still need a lot of players for this and still need more balance in the squad.”
Fróðlegt. Hann tjáir sig samt ekkert um hægri kantinn. Það er spurning hvort eitthvað verði gert í þeim málum víst að Simao er ekki líklegur til að koma (að mínu mati) og Gerrard hefur verið að leika frábærlega á kantinum. Og svo erum við náttúrulega með manninn, sem sló Joaquin útúr spænska landsliðinu, Luis Garcia.