29. desember, 2005
Uppfært (EÖE) BBC hafa tilkynnt að Liverpool og Villareal hafi komist að samkomulagi um skipti á Josemi og hollenska landsliðsmanninum Jan Kromkamp.
Villareal hafa gefið út yfirlýsingu:
“We have reached an agreement with Liverpool for the transfer of Jan Kromkamp and the arrival of Josemi.
“The agreement is between the clubs and must be agreed by both players.”
Án þess að ég viti mikið um Kromkamp þá virðist þetta meika FULLKOMIÐ sense fyrir bæði lið. Villareal fá Josemi, bakvörð sem spilaði virkilega vel í spænsku deildinni en náði sér aldrei á strik fyrir Liverpool. Við fáum í staðinn hollenskan landsliðsbakvörð, sem er eflaust líklegri til að ná árangri hjá Liverpool en Josemi vinur okkar. Samkvæmt BBC hefur Kromkamp leikið 8 landsleiki fyrir Holland. Gott mál!
Ég held þó örugglega að Kromkamp hafi spilað með Villareal í Meistaradeildinni og geti því ekki spilað með okkur þar.
En það er oft magnað hvað hlutirnir gerast hratt. Við lifum í mánuði með slúður um suma leikmenn, en svo ná sum kaup að ganga nær algjörlega í gegn án þess að fjölmiðlar hafi nokkra hugmynd um. Hvað ætli sé meira í gangi?
Upphaflega færslan: Það er ansi erfitt að gera sér grein fyrir því hvað er að gerast í kringum mál Josemi hjá Liverpool.
Einsog flestir vita, þá hefur Josemi verið orðaður sterklega við Sevilla á Spáni. Það er allt gott og vel. Josemi er fínn leikmaður, sem hefur ekki fundið sig nógu vel hjá Liverpool og því eðlilegt að hann fari aftur til Spánar. En Rafa Benitez er ekki fábjáni og því fer hann ekki inní janúarmánuð með bara einn hægri bakvörð.
Það er þá spurning ef að Josemi fer, hver kemur í staðinn. Um þetta virðast menn ekki vera sammála.
Sky hafa eftir spænskum fjölmiðlum að Liverpool séu að íhuga að skipta á Villareal um bakverði. Villareal fái Josemi, en við á móti hollenska bakvörðinn Jan Kromkamp. Hann er 25 ára og hefur leikið 2 landsleiki fyrir Holland, en hefur ekki átt fast sæti í liði Villareal.
Hins vegar hafa aðrir miðlar orðað Josemi sterklega við Sevilla en að sögn misfróðra manna, þá er það óskastaður Josemi. Hjá Sevilla er það fyrst og fremst Daniel Alves sem gæti vakið áhuga Rafa Benitez, en Sevilla á víst að hafa hafnað okkar tilboði í brassann síðasta sumar. Echo greindu m.a. frá því í sumar að skiptidíll með Josemi og pening til Sevilla og Alves tilbaka, hefði verið ræddur.
Það verður fróðlegt að fylgjast með þessu áfram.