27. desember, 2005
Smá tölfræði úr leiknum í gær.
Skot: Liverpool: 19, Newcastle: 1
Með boltann: Liverpool: 62%, Newcastle: 38%
Þetta er magnað.
Já, og Gerrard er fúll yfir púinu á Owen í leiknum í gær. Ég hefði persónulega ekki púað á Owen, en ég skil þó ágætlega þá, sem það gerðu. Það er ekki einsog Owen hafi verið alsaklaus í þessu máli öllu, því hann lét samninginn sinn renna út og fór svo til Real til að vinna titla.
Hins vegar er Owen búinn að taka út sína refsingu fyrir þá heimsku. Það er nógu slæmt að hann hafi þurft að horfa á Istanbúl leikinn í sjónvarpinu, heldur þarf hann núna að spila með Newcastle. Maðurinn hefur þurft að þjást nógu mikið.