beach
« Newcastle á morgun! | Aðalsíða | Liðið gegn Newcastle »

26. desember, 2005
Vidic og Shepherd í jólaskapi

Jæja, menn voru ekki fyrr búnir að kyngja jólasteikinni að þeir hentu af sér rauðu húfunum og silkihönskunum og hófust handa við að gera Liverpool lífið leitt. Eða reyna það, allavega. Freddy Shepherd er t.d. brjálaður út í Rafa Benítez, sem vogaði sér að segja í síðustu viku að hann vildi ekki útiloka það að Michael Owen kæmi aftur til Anfield í framtíðinni.

Shepherd er ekki sáttur við þessi ummæli og finnst þau bera vott um virðingarleysi og eitthvað slíkt. En hann veit sannleikann jafn vel og við: Rafa gaf bara pólitískt svar við oft spurðri spurningu. Hann var spurður út í Owen og hann sagði einfaldlega, “anything is possible.” Eða eitthvað á þá leið, en þetta var allavega pólitískt svar. Hann sagði ekki, “nei hann kemur ekki til okkar,” og hann sagði heldur ekki “við viljum fá Michael Owen.” Bara að allt væri opið, sem er pólitískt svar við erfiðri spurningu.

Shepherd veit hins vegar vel sem er að þótt hann útvegi Owen 68 nýjum hreinum meyjum í hverri viku og gefi honum jagúar í morgunmat alla daga ársins, þá mun sá knái ekki hika við það í framtíðinni að ganga til liðs við Liverpool, gefist honum færi á því. Með fullri virðingu fyrir Newcastle og Freddy Shepherd, þá er Liverpool einfaldlega betra lið í dag og Owen veit það. Og með rétt tæplega hálfri virðingu fyrir Graeme Souness, þá á hann ekki einu sinni skilið að vera nefndur í sömu andrá og Rafa Benítez.

Shepherd og Owen munu fá vísbendingu #1 um það hvar framtíð Owen liggur síðdegis í dag.

Æjá, og við getum gleymt Nemanja Vidic, miðverðinum hjá Spartak Moskvu. Þrátt fyrir að vera orðaður við alvöru klúbb eins og Liverpool sýndi hann fram á skort sinn á heilastarfsemi og gekk til liðs við manchester united … sem þýðir að hann er ekki nógu gáfaður til að spila við hlið Sami og Carra. Þannig að gangi honum vel að berjast við Rio “show me the money!” Ferdinand um sæti.

Jæja, leikur framundan … verður spennandi að sjá.

.: Kristján Atli uppfærði kl. 12:13 | 342 Orð | Flokkur: Enski Boltinn
Ummæli (4)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Luton 3 - Liverpool 5
·Bolton 2 - L'pool 2
·Liverpool 1 - W.B.A. 0
·Everton 1 - L'pool 3
·Liverpool 2 - Newcastle 0

Síðustu Ummæli

Klaki: Þetta er alveg rétt hjá Vidic að velja M ...[Skoða]
Svavar: Heyrðu og eitt sem ég gleymdi að nefna á ...[Skoða]
Svavar: Hehe.. frábærar greinar hjá ykkur eins o ...[Skoða]
Einar Örn: Ég tippa á að þessi Vidic sé flughræddur ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Martin Jol belgir sig út
· Dudek slær á sögusagnirnar
· Rafa segir Sissoko að slaka á.
· Nýr markvörður kominn til Liverpool.
· Rafa þjálfari mánaðarins (AFTUR!)
· Tottenham á morgun!

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License