beach
« Byrjunarliðið gegn Deportivo Saprissa komið. | Aðalsíða | Okkar maður! »

15. desember, 2005
L'pool 3 - D. Saprissa 0

Okkar menn unnu lið Deportivo Saprissa með töluverðum yfirburðum í morgun. Lokastaðan var þrjú-núll og þótt Saprissa-menn hefðu með smá heppni getað skorað mark í þessum leik var sigurinn einfaldlega aldrei í hættu. Liverpool-liðið mætir því Sao Paulo á sunnudaginn í úrslitaleik þessarar Heimsmeistarakeppni félagsliða, en sá leikur verður alveg svakalega spennandi.

Byrjunarliðið í dag var sem hér segir:

Reina

Josemi - Carragher - Hyypiä - Traoré

Gerrard - Alonso - Sissoko - Riise

Cissé - Crouch

Pongolle, García og Hamann komu síðan inná í síðari hálfleik fyrir Gerrard, Hyypiä og Alonso.

Allavega, maður var varla sestur í sófann þegar Peter Crouch var búinn að koma okkar mönnum yfir. Gerrard og Cissé léku með boltann upp að teignum stra á þriðju mínútu og Cissé lagði hann að endingu á Crouch í teignum. Crouch tók boltann á lofti með svokölluðu sniðskoti og setti hann út við stöngina. Eitt-núll fyrir Liverpool og leikurinn í rauninni búinn.

Undir lok fyrri hálfleiksins kom svo önnur góð sókn, John Arne Riise fékk boltann upp vinstri vænginn og gaf hann fyrir til móts við vítateiginn, yfir á hægri vænginn þar sem Stevie Gerrard kom aðvífandi og negldi hann viðstöðulaust í nærhornið. Stöngin-inn og staðan orðin tvö-núll fyrir okkar mönnum.

Peter Crouch skoraði síðan þriðja mark leiksins eftir seinagang í vörn Saprissa-liðsins. Hann stakk sér á milli tveggja varnarmanna, hirti boltann og lagði hann framhjá markverðinum. Þrjú-núll og eftir það kláruðu okkar menn þennan leik í hlutlausa gírnum, þannig séð.

Þetta var eiginlega hálfgerður æfingaleikur bara, engin spenna í þessu og menn í raun bara gerðu nóg til að vinna leikinn, en um leið spöruðu eins mikla orku og hægt var. Það segir sína sögu að Hyypiä, Gerrard og Alonso skyldu hafa verið teknir útaf í þessum leik - Rafa er að spara menn fyrir stórleikinn á sunnudag, sem verður væntanlega talsvert erfiðari viðureign en þessi leikur í dag.

MAÐUR LEIKSINS: Liðið átti svo sem engan stórleik, en þó léku flestir ef ekki allir bara nokkuð vel. Heiðursnafnbótina í dag hlýtur þó Peter Crouch, að sjálfsögðu, fyrir að skora tvö mörk. Hann virðist vera að slá í gegn fyrir austan, en Japanirnir ku vera mjög hrifnir af honum. Ekki að furða, hann er helmingi stærri en þeir flestir :-)

Allavega, sigur í höfn og nú geta menn farið að hlakka til stórleiksins á sunnudaginn. Þá verður sko gaman! :-)

.: Kristján Atli uppfærði kl. 12:09 | 392 Orð | Flokkur: Leikskýrslur
Ummæli (7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Heimsmeistarakeppni Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Bolton 2 - L'pool 2
·Liverpool 1 - W.B.A. 0
·Everton 1 - L'pool 3
·Liverpool 2 - Newcastle 0
·Sao Paulo heimsmeistarar! (uppfært)

Síðustu Ummæli

Höski Búi: Crouchinn góður og svo var hann víst að ...[Skoða]
Svavar: Hva.. voru bara allir að horfa á leikinn ...[Skoða]
Sindri: ...og svo var náttúrlega sett nýtt félag ...[Skoða]
Doddi: Þó svo að þetta Kosta Ríka lið hafi ekki ...[Skoða]
Einar Örn: Jamm, þetta var ljómandi fínt alveg hrei ...[Skoða]
VBH: Allir syngja með; "He's big, he's red, h ...[Skoða]
Gunnar: Mér finnst ég knúinn til að minnast á Ci ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Paul Anderson semur við Liverpool
· Gerrard og Nolan (uppfært)
· Bolton 2 - L'pool 2
· Bolton á morgun!
· Ársuppgjör 2005!
· Liverpool 1 - W.B.A. 0

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License