beach
« Tomkins um Chelsea og Mourinho | Aðalsíða | Kirkland vill vera áfram hjá W.B.A. »

07. desember, 2005
United út, Simao inn? (uppfært! x2)

Jæja, Benfica frá Portúgal gerðu sér lítið fyrir og unnu manchester united í kvöld, og komust fyrir vikið áfram í 16-liða úrslit Evrópu. United sitja eftir með sárt ennið ( smile ) í neðsta sæti riðils síns og komast því ekki einu sinni í Evrópukeppni Félagsliða ( smile smile ) …

Hins vegar þá setur þessi óvænta velgengni Benfica fyrirhuguð kaup Liverpool á Simao Sabrosa í algjört uppnám. Útvarpsstöðin Radio 5 í Liverpool sagði frá því í dag, fyrir leiki kvöldsins, að það væri búið að ganga frá og undirrita kaupsamninga þannig að það væri öruggt að hann kæmi til okkar í janúar, hvernig sem leikur kvöldsins færi, en eftir kvöldið í kvöld hlýtur maður að spyrja sig hvort það standist.

Ég gjörsamlega dýrka það að United séu dottnir út úr Evrópu (ó hvað vinnan á morgun verður skemmtileg) … en að sama skapi finnst mér verulegt áhyggjuefni ef helsti kostur Rafa á hægri vænginn er núna ekki á leiðinni til okkar eftir allt saman. Við fáum örugglega frekari fréttir af Simao-málunum á næstu dögum, en þangað til hef ég áhyggjur af því.

Ojæja, við verðum þá bara að láta okkur nægja það að United séu dottnir út … :-)


Uppfært (Kristján Atli): Annars þýða úrslit kvöldsins það að eftirtalin lið eru komin í 16-liða úrslitin:

1. POTTUR: Juventus, Barcelona, Arsenal, Villareal, AC Milan, Lyon, LIVERPOOL, Internazionale.

2. POTTUR: Bayern Munchen, Werder Bremen, Ajax, Benfica, PSV Eindhoven, Real Madríd, Chelsea, Rangers.

Staða okkar er einföld; þar sem verndin fyrir lið frá sama landi gildir ekki um okkar menn, þá getum við mætt hvaða liði sem er af þessum átta í öðrum pottinum … nema Chelsea, sem koma upp úr sama riðli og við. Þá er bara spurningin: Hvaða lið er óskaliðið okkar í ár??? :-)


Uppfært (EÖE): Jæja, ég var búinn að skrifa færslu um þetta sama mál, en þarf greinilega að henda henni núna. Það eina, sem ég hef við þetta að bæta er að það verður dregið 16.desember, sem er fimmtudagur eftir viku.

Og þótt að landsverndin gildi ekki um okkur, þá skiptir það engu máli því Arsenal vann riðilinn og manchester united komst ekki einu sinni í UEFA keppnina :-) . Í næstu umferð, þá held ég hins vegar að landaverndin falli hvort eð er niður fyrir öll lið.

Mín spá: Liverpool-Rangers.

.: Kristján Atli uppfærði kl. 21:54 | 385 Orð | Flokkur: Meistaradeild
Ummæli (25)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Heimsmeistarakeppni Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Bolton 2 - L'pool 2
·Liverpool 1 - W.B.A. 0
·Everton 1 - L'pool 3
·Liverpool 2 - Newcastle 0
·Sao Paulo heimsmeistarar! (uppfært)

Síðustu Ummæli

Hinrik: Ég vona að Liverpool fái Bayern Munchen. ...[Skoða]
SSteinn: Ég held að þessi Simao mál séu komin mun ...[Skoða]
Höski Búi: Nákvæmlega það sem ég vildi sagt hafa. ...[Skoða]
Kristján Atli: Höski - við vissum vel að Simao yrði cup ...[Skoða]
Höski Búi: Aumingja manú :-) ég var samt að ...[Skoða]
Kristinn J: Öll liðin í potti 2 eru lakari en Liverp ...[Skoða]
gisli h: Snilldar síða.. komin í bookmarks.. ! ...[Skoða]
Satan: Liverpool er í Meistaradeildinni til að ...[Skoða]
Einar Örn: >vill ekki falla í þá grifju manju manna ...[Skoða]
Doddi: Miðað við prógram okkar í fyrra (vor) þe ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Paul Anderson semur við Liverpool
· Gerrard og Nolan (uppfært)
· Bolton 2 - L'pool 2
· Bolton á morgun!
· Ársuppgjör 2005!
· Liverpool 1 - W.B.A. 0

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License