04. desember, 2005
Geisp!
Jæja, þá megum við búast við fullt af fréttum um Rafa Benitez og Real Madrid á næstunni, því að Real Madrid voru að reka Luxemburgo. Samkvæmt Soccernet hafa 4 helst verið orðaðir við stöðuna: Capello, Sven-Goran, Rafa og Victor Fernandez, stjóri Porto.
Aðrir, sem hafa verið nefndir eru m.a. Bernd Schuster hjá Getafe, Luiz Felipe Scolari, Marco Van Basten, Vicente del Bosque, Jose Mourinho, Javier Irureta, Arsene Wenger, Jólasveinninn og Guðjón Þórðarsson.
Við verðum víst bara að þola þetta á næstunni. Ég efast ekki um það í eina sekúndu að Rafa væri besti maðurinn í starfið hjá Real Madrid og hann er mikill Real aðdáandi. En samt finnst mér aðrir líklegri, t.d. Fabio Capello, sem segist vera heiðraður af því að vera orðaður við starfið.
En það er vonandi að Real Madrid-ar menn klári þetta fljótt því það er fúlt að við þurfum alltaf að heyra þessa orðróma þegar þeir eru í þessum stöðugu þjálfaramálum sínum. Megi einhver annar lenda í að þjálfa hjá þessar útbrunnu stjörnur hjá þessu fúla liði.
Uppfært (Aggi): Rafa var snöggur að gefa út yfirlýsingu þess efnis að hann hefur ekki áhuga á því að taka við Real Madrid.
“I am happy at Liverpool, I am Liverpool’s manager and I have a job to do here…”
En það er samt ljóst að þetta er ekki nóg til þess að blaðamennirnir hætti að skrifa um þetta þangað til þjálfari hefur verið ráðinn hjá RM.