beach
« Luton í bikarnum | Aðalsíða | Luxemburgo rekinn (uppfært) »

04. desember, 2005
Eruði ekki að grínast í mér?

250px-Stevieg.jpgBreska pressan í London á í vissum erfiðleikum þessa dagana.

Hvers vegna?

Jú, Liverpool gengur bara fjandi vel í enska boltanum og í Evrópu. Við höfum unnið 6 leiki í röð í deildinni og af síðustu 8 leikjum í deild og Meistaradeild höfum við unnið sjö leiki og gert eitt jafntefli. Við höfum ekki fengið á okkur mark í þeim leikjum. Við erum líka komnir í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar án þess að riðlakeppnin sé búin. Ekki slæmt, ha?

Breska pressan gat hins vegar forðast að tala um þetta góða gengi Liverpool með því að skrifa einungis um þá staðreynd að einn framherjinn okkar, Peter Crouch, var ekki að skora mörk. Þeir kusu að líta framhjá góðu gengi allra annarra leikmanna og framhjá því hversu vel Crouch var að spila, en fókusa frekar á að hann skoraði ekki mörk.

Gott og vel, en því miður fyrir pressuna þá skoraði Crouch tvö mörk í gær. London pressan reyndi þá að gera lítið úr því afreki og segja að fyrra markið hafi ekki verið hans. Öll bresku blöðin eyddu því meira plássi í að gera lítið úr fyrra markinu, heldur en að fjalla um seinna markið sem hann átti algerlega sjálfur.

En hann skoraði allavegana og því varla hægt að skrifa lengur um markaleysi Crouch.

Hvað gerir þú þá þegar þú ert breskur blaðamaður í London, sem þolir ekki Liverpool? Hvað er hugsanlega hægt að skrifa um? Kewell leikur vel. Crouch skorar. Liverpool vinnur. Liverpool spilar vel.

Hvað er hægt að skrifa um? Hvað væri hugsanlega hægt að skrifa neikvætt um Liverpool núna þrem dögum fyrir leik gegn Chelsea í Meistaradeildinni.

Hmm…. Liverpool… CHelsea…. Hmmmmm…..

Hey, ég veit!!!

Byrjum að tala um að Steven Gerrard sé óánægður hjá Liverpool. Byggjum það ekki á neinum staðreyndum, heldur getgátum okkar um að hann sé óánægður á hægri kantinum, þrátt fyrir að hann hafi farið í 10 viðtöl og sagst vera sáttur við þá stöðu og þrátt fyrir þá staðreynd að hann hafi spilað á miðjunni í síðustu tveim leikjum.

Nei nei, hann hlýtur að vera óánægður. Plús, helvítis melirnir í Liverpool eru að fara að spila við hið yndislega Chelesea lið í vikunni. Ég veit, bætum líka þessari setningu inní fréttina:

Chelsea, as ever, continue to monitor Gerrard’s Anfield status

Þarna gefum við í skyn að þetta sé allt saman tengt og því hljóti Gerrard að vera að fara til Chelsea. Gleymum því bara að Liverpool sé í þriðja sæti, og efstir í riðlinum í Meistaradeildinni. Nei, hann hlýtur að vera fúll og þessi ánægja hans með gengi liðsins að undanförnu og tilhlökkunin um að geta hugsanlega gert liðið að heimsmeisturum félagsliða. Þetta er allt tilbúningur, því blaðamenn í London hljóta að vita best. Ekki satt?

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 20:39 | 452 Orð | Flokkur: Fjölmiðlar
Ummæli (10)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Heimsmeistarakeppni Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Bolton 2 - L'pool 2
·Liverpool 1 - W.B.A. 0
·Everton 1 - L'pool 3
·Liverpool 2 - Newcastle 0
·Sao Paulo heimsmeistarar! (uppfært)

Síðustu Ummæli

Aggi: Æi þetta er óþolandi... og maður reynir ...[Skoða]
Guðni E. G.: Sammála ykkur, Kristján og Einar Örn; þe ...[Skoða]
Kristján Atli: Þetta er bara Lundúnar-pressan í hnotsku ...[Skoða]
Óli Þ.: Næsti bær við :-) ...[Skoða]
Einar Örn: Já, var að sjá þetta um Luxemburgo. Pre ...[Skoða]
Kristinn J: Og nú er búið að reka Luxemburgo hjá Rea ...[Skoða]
sildi: :-) :-) hehehe ég hló vel ...[Skoða]
Óli Þ.: Why am I not surpriced ?? Það er bara p ...[Skoða]
Satan: Þetta eru fávitar. Það er ekkert annað h ...[Skoða]
Árni: hehehe af hverju bjóst ég alveg við þess ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Paul Anderson semur við Liverpool
· Gerrard og Nolan (uppfært)
· Bolton 2 - L'pool 2
· Bolton á morgun!
· Ársuppgjör 2005!
· Liverpool 1 - W.B.A. 0

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License