beach
« Jewell á leiðinni með sitt lið | Aðalsíða | Mark, Jerzy og Flo-Po »

02. desember, 2005
Wigan í hádeginu á morgun!

Jæja, eftir fimm sigurleiki í röð í deildinni, og þar af þrjá á útivelli, er komið að næsta leik. Okkar menn mæta spútnikliði Wigan Athletic á Anfield Road í Liverpool-borg á morgun, en með sigri getum við komið okkur upp í annað sætið í deildinni, þó ekki sé nema í nokkra tíma. Manchester United taka á móti Portsmouth og vinna þann leik væntanlega síðar sama dag, og fara þá aftur upp fyrir okkur, en Arsenal eiga erfiðan útileik gegn Bolton og gætu því hæglega endað helgina fyrir neðan okkur. Þannig að ef við vinnum á morgun er ekki ólíklegt að okkar menn verði í þriðja sætinu eftir helgina. Sem væri frábært! :-)

En fyrst þarf auðvitað að vinna þennan leik, og það er ekkert gefið í þeim efnum. Við erum sem stendur í fjórða sæti, með einu marki betra í markatölu en liðið í fimmta sæti … sem er einmitt, jú, lið Wigan Athletic. Þeir eru með jafnmörg stig og við, eftir jafnmarga leiki, og hafa meira að segja skorað marki meira en við í vetur (en fengið tveimur fleiri á sig). Allir sem hafa séð þetta Wigan-lið spila í vetur vita sem er að þeir eru stórhættulegir, og að þeir geta hæglega farið með öll þrjú stigin í burtu frá Bítlaborginni á morgun.

Paul Jewell tók við Wigan-liðinu fyrir þremur og hálfu ári, en þá voru þeir í fjórðu efstu deild Englands. Hann kom þeim strax upp um tvær deildir, staldraði svo í eitt ár í næst-efstu deildinni (sem hét þá 1. deildin en heitir nú Championship-deildin) og svo í fyrra unnu þeir þá deild frekar auðveldlega. Eru nú komnir upp í Úrvalsdeild og virðast ætla að taka hana með svipuðu trompi - þannig að við getum alveg eins búist við að þetta lið sé komið til að vera og muni blanda sér í toppbaráttuna á næstu árum. Það er ekki ólíklegt, en eigandi liðsins, Dave Whelan, hefur dælt peningum í klúbbinn og ætlar að halda áfram að gera það sem til þarf til að koma liðinu fyllilega í fremstu röð.

Wigan-menn töpuðu fyrsta leik sínum í deildinni, gegn Chelsea í ágúst, en voru svo taplausir þangað til í miðjum nóvember þegar Arsenal tóku þá, 3-2 í stórskemmtilegum leik. Svo töpuðu þeir gegn Tottenham í síðasta deildarleik, og misstu okkur fyrir vikið upp fyrir sig, en náðu þó að rétta úr kútnum á miðvikudag þegar þeir lögðu Newcastle, 1-0 í deildarbikarnum, og eru þar með komnir í 8-liða úrslit þar.

Okkar menn á móti hafa unnið fimm leiki í röð í Úrvalsdeildinni, og er markatalan í þeim leikjum 10-0. Já, við höfum engin mörk fengið á okkur í nóvember, unnið alla okkar leiki í deildinni og virðumst loksins vera komnir á það ról sem við aðdáendurnir viljum sjá liðið á: að sækja á efstu liðin í deildinni og berjast jafnvel um titilinn!

Hvernig ætli Rafa stilli svo upp á morgun? Á miðvikudag unnum við Sunderland, 2-0, í leik sem vakti athygli fyrir þær sakir að hvorki Djibril Cissé né Dietmar Hamann voru í leikmannahópnum. Það er því spurning hvort þeir komi aftur inn í hópinn fyrir helgina, en ég hef ekki mikla trú á að þeir fari inn í byrjunarliðið.

Ég ætla að spá því að Rafa stilli upp óbreyttu liði frá því á miðvikudaginn - fyrir utan það að Momo Sissoko er í leikbanni - og er það vel því þessi kjarni sem hefur verið nokkuð óbreyttur í undanförnum leikjum hefur staðið sig vel og er sennilega grunnurinn að góðu gengi liðsins:

Reina

Finnan - Hyypiä - Carragher - Riise

García - Alonso - Gerrard - Kewell

Morientes - Crouch

Óbreytt lið, og vonandi líka áfram óbreytt úrslit leikja. :-)

MÍN SPÁ: 2-1 fyrir okkar mönnum. Já, við fáum á okkur mark gegn hressum Wigan-mönnum sem munu sækja til sigurs á morgun, en höfum þó á endanum sigur. Og í svona tíunda skiptið í röð ætla ég að spá því að Peter Crouch muni loksins skora … en ef hann gerir það ekki á morgun, ætla ég að íhuga það alvarlega að spá honum markaskorun á næstunni. En við vinnum þennan leik á morgun, ég er eiginlega frekar sannfærður um það!

Áfram Liverpool!!!

.: Kristján Atli uppfærði kl. 12:04 | 695 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (18)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Sunderland 0 - Liverpool 2
·Manchester City 0 - Liverpool 1
·L'pool 0 - Betis 0 (uppfært x2)
·L'pool 3 - Pompey 0
·Fulham 2 - Liverpool 0

Síðustu Ummæli

Eiki Fr: Framkvæmdastjóri nóvembermánaðar hlýtur ...[Skoða]
Kristinn J: Þetta Wigan lið hefur sýnt að það er erf ...[Skoða]
Villli Matta: 3-1 fyrir Liverpoool og Riise með sjálfs ...[Skoða]
egill: unnu sunderland ekki championship deildi ...[Skoða]
svavar: 1-0, 35mín. Alonso með þrumufleyg í slán ...[Skoða]
Satan: Þetta verður erfiður leikur. Ég held að ...[Skoða]
Hraundal: við nánari íhugun held ég að Garcia verð ...[Skoða]
Hraundal: Reina- Finnan-Hyypia-Carra-Traore Gerrar ...[Skoða]
Eiki Fr: Við klárum þetta 3-0. ...[Skoða]
Elías Már: Þegar menn fá annað gult í leik, þá er f ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Mark, Jerzy og Flo-Po
· Wigan í hádeginu á morgun!
· Jewell á leiðinni með sitt lið
· Framfarir - klárlega!
· Pongolle á leið til Betis?
· Sunderland 0 - Liverpool 2

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License