beach
« Framfarir - klárlega! | Aðalsíða | Wigan í hádeginu á morgun! »

02. desember, 2005
Jewell á leiðinni með sitt lið

Það er svo sem ýmislegt að frétta í dag, og þá eru Wigan-menn duglegir að koma sér í fréttir. Til dæims, þá er Paul Jewell hundfúll út í áhangendur Wigan, sem hafa gerst svo dónalegir að gagnrýna leikmenn Wigan-liðsins, sem hefur núna tapað tveimur deildarleikjum í röð:

“I keep forgetting we are Wigan and we should be top of the league week in and week out,” said Jewell. “But I know some of the supporters are getting a bit anxious because we’ve lost to Arsenal and Tottenham. We’ve slipped to fifth in the league, so we are really panicking.”

Það er ekki hægt að vera ósammála honum. Við erum að tala um nýliða, lið sem var í þriðju deildinni fyrir fjórum árum, og þeir eru í fimmta sætinu, byrjuðu nóvember í öðru sætinu og eru nú þegar nánast öruggir með sæti sitt í deildinni, og í baráttu um Evrópusæti.

Hvernig er hægt að kvarta yfir því? Í fyrra var þetta hálfgerður míní-brandari í Championship-deildinni, en Wigan unnu þá deild nokkuð auðveldlega þrátt fyrir að spila jafnan heimaleiki sína fyrir hálftómu húsi. Wigan-völlurinn er fullur í nær hverri viku, en það er fyrir rúgbý-liðið sem er eitt það besta í Englandi. Knattspyrnuliðið hefur hins vegar ekki unnið sér neitt til frægðar, ekki fyrr en þeir komust upp í Úrvalsdeildina í vor og byrjuðu svo með látum nú í haust.

Og enn, þrátt fyrir frábært gengi, virðast áhangendur liðsins ákveðnir í að sýna hversu slappir þeir eru:

“Let’s have it right. We’ve lost two games, the first against Arsenal who we pushed all the way in front of 25,000.

Then we play Tottenham and we lose 2,500 off the gate. How’s that? How does that work?”

Heimaleikur gegn Tottenham Hotspur er greinilega ekki nógu spennandi fyrir “aðdáendur” Wigan, sem eru greinilega vanir einhverju betra í gömlu þriðju deildinni …

Annars, fyrir þá sem ekki vita, þá er Jewell Liverpool-maður í húð og hár, þannig að það verður örugglega sérstök lífsreynsla fyrir hann að leiða lið sitt út á Anfield-völlinn á morgun.

Já, og einn leikmaður Wigan mun aldrei fyrirgefa Rafa syndir sínar. Ég fíla Henchoz og er honum þakklátur, hann og Sami voru frábærir saman í nokkur ár hjá okkur, en Rafa gerði rétt í að láta hann fara. Hann var orðinn of gamall, og Carra var einfaldlega búinn að hirða af honum stöðuna. Henchoz kom alltaf fram af mikilli prúðmennsku þegar hann lék fyrir Liverpool, en virðist ekki geta þagað um það hversu stór og vondur kall Rafa sé eftir að hann fór frá klúbbnum í janúar.

Vonandi verður samt tekið vel á móti honum á Anfield á laugardag. Hann á ekkert minna skilið: frábært fagn og mikið klapp frá The Kop … og svo tvær eða þrjár straujanir frá Carra. Þið vitið að það mun gerast … :-)

.: Kristján Atli uppfærði kl. 10:08 | 471 Orð | Flokkur: Enski Boltinn
Ummæli (4)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Sunderland 0 - Liverpool 2
·Manchester City 0 - Liverpool 1
·L'pool 0 - Betis 0 (uppfært x2)
·L'pool 3 - Pompey 0
·Fulham 2 - Liverpool 0

Síðustu Ummæli

Einar Örn: Fyrir utan það að Henchoz fær blóðnasir ...[Skoða]
Sverrir:

og svo tvær eða þrjár strauj ...[Skoða]
Satan: Henchoz stóð sig virkilega vel þessi ár ...[Skoða]
Gunnar: Henchoz var ágætur svosem en hann var kl ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Mark, Jerzy og Flo-Po
· Wigan í hádeginu á morgun!
· Jewell á leiðinni með sitt lið
· Framfarir - klárlega!
· Pongolle á leið til Betis?
· Sunderland 0 - Liverpool 2

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License