beach
« Pongolle á leið til Betis? | Aðalsíða | Jewell á leiðinni með sitt lið »

01. desember, 2005
Framfarir - klárlega!

Gerrard segir að liðinu fari fram og sé að verða betra og betra. Vörnin sé öflug og með nokkrum gæðakaupum í janúar þá sé að myndast öflugt lið. Ennfremur hrósar hann Alonso:

“It’s nice to have him back, he’s one of the best passers of the ball I’ve ever played with,”
“You know if you make the runs he’s going to get you the ball, every time he gets the ball I make a run, he doesn’t find me all the time but 90 percent of the balls he plays get there.”

Ég er hjartanlega sammála fyrirliðanum. Undanfarið spilar liðið solid bolta með öflugri vörn og nægilega góðri nýtingu til að vinna leikina. Það er langt síðan ég hef verið svona rólegur fyrir útileik líkt og í gærkvöldi. Sumir voru undrandi yfir því að Cisse var ekki í leikmannahópnum gegn Sunderland í gærkvöldi og telja þá að sjálfsögðu að Rafa og hann séu óvinir. Rafa segir við þessu m.a.:

“Why was he not playing? Because (Peter) Crouch and (Fernando) Morientes were playing. “

.: Aggi uppfærði kl. 17:38 | 173 Orð | Flokkur: Liverpool
Ummæli (13)

Ég sagði aldrei að þetta væru ekki framfarir, því eins og kom fram í fyrri athugasemd minni, þá hefðu liverpool líklegast gert jafntefli í 1-2 af þessum leikjum í fyrra.

Og já, hvað stóru liðin varðar, þá hefur ekki einn sigur unnist gegn þeim liðum, báðir leikirnir við bestu liðin á heimavelli (0-0 jafntefli og eftirminnilegt 1-4 tap), og jafntefli á útivelli við Middlesbrough og Tottenham.

Síðan verð ég núna að benda á, að þótt þeir séu skítlélegir þessa dagana, þá telst Newcastle sem einn af stóru klúbbunum (þeir hafa jú Michael Owen og Alan Shearer :-) ).

Ég get vel viðurkennt að liverpool liðið er betra í ár en í fyrra, því að jú Josemi er ekki að spila, þeir skiptu út Biscan fyrir Sissoko, og Reina fyrir Dudek.

En ef þeir fá 9+ stig út úr leikjunum á milli 28.des-22.jan þá erum við að tala um alvöru framfarir. En þá keppa þeir við Everton úti (Goodison Park eru nú aldrei gefin 3 stig, plús það að Everton eiga ekki að vera svona neðarlega), West Brom heima (3 stig þar), Bolton úti, Tottenham heima og Man Utd úti.

Ef út í það er farið, þá virðast fyrstu þrír mánuðirnir á næsta ári ætla að verða nokkuð strembnir hjá Liverpool. Man Utd og Chelsea á útivelli, Arsenal tvisvar, Newcastle úti, Wigan úti, Tottenham heima, Man City heima, Charlton heima. Enginn af þessum leikjum er örugg 3 stig.

Annars vil ég að auki benda á það að mér finnst liverpool liðið alltaf vera allt öðruvísi þegar það spilar í meistaradeildinni heldur en þegar þeir spila í deildinni. Virðist eins og þetta séu tvö gjörólík lið þótt þau innihaldi sömu leikmennina. Menn geta reynt að halda því fram að þetta sé út af því að það henti þeim betur að spila evrópubolta, en ef menn taka svo báða Chelsea leikina, þá fór evrópuleikurinn 0-0, en deildarleikurinn 1-4, svo að maður veit ekki... kannski eru þeir bara alltaf í svo góðu formi í um miðja viku eða eitthvað, maður veit ekki :-)

En já... aldrei að vita nema að liverpool verði bara taplausir það sem eftir lifir tímabils... hver veit? :-)

Sverrir sendi inn - 02.12.05 01:51 - (
Ummæli #11)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Heimsmeistarakeppni Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Bolton 2 - L'pool 2
·Liverpool 1 - W.B.A. 0
·Everton 1 - L'pool 3
·Liverpool 2 - Newcastle 0
·Sao Paulo heimsmeistarar! (uppfært)

Síðustu Ummæli

Geiri: Við eigum ekkert að þurfa að rýna í tölu ...[Skoða]
sævar: Við eigum nú ekki að vera henda skít í S ...[Skoða]
Sverrir: Ég sagði aldrei að þetta væru ekki framf ...[Skoða]
Stebbi: Samanburðurinn milli ára er svona (í þei ...[Skoða]
Aron: Sundurliðun: <a href="http://www.redand ...[Skoða]
Einar Örn: Er bætingin 12 stig, Guðni? Ég hef nefn ...[Skoða]
Guðni E. Guðmunds: Sammála Hraundalnum í einu og öllu. Við ...[Skoða]
Einar Örn: Sammála, Hraundal. Mér fannst reyndar P ...[Skoða]
Hraundal: það þarf ekki snilling til að sjá að Liv ...[Skoða]
Sigtryggur Karlsson: Ansi á hann erfitt þessi Sverrir. Er ek ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Paul Anderson semur við Liverpool
· Gerrard og Nolan (uppfært)
· Bolton 2 - L'pool 2
· Bolton á morgun!
· Ársuppgjör 2005!
· Liverpool 1 - W.B.A. 0

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License