01. desember, 2005
Skv. SkySports hefur Real Betis komist að samkomulagi við Liverpool um kaup á Florent Sinama-Pongolle. Hver upphæðin er kemur ekki fram. Báðir aðalframherjar Betis, þeir Ricardo Oliveira og Dani eru meiddir. Dani næsta mánuðin vegna ökkla meiðsla og Oliveira er frá út tímabilið með slitin liðbönd í hnéi. Betis hefur einnig komist að samkomulagi við Porto um Helder Postiga og hafa ekki ákveðið hvorn leikmanninn þeir taka í janúar. Ef Pongolle verður seldur þá tel ég ljóst að Cisse verði 100% áfram hjá okkur. Pongolle hefur sýnt það að hann er gríðarlegt efni og getur náð langt en ég er ekki viss um að hann passi inn í leikkerfi Rafa og þá er betra að selja hann en að hafa hann í varaliðinu/bekknum.