beach
« Fimmti Bítillinn | Aðalsíða | Crouchy og Cisse byrja »

25. nóvember, 2005
Man City á morgun!

mancityfowler.jpgJæja, næsti leikur, en á morgun fara okkar menn í stuttan bíltúr yfir til helvítis, og mæta þar Manchester City á útivelli. Þetta verður nánast örugglega hörkuleikur, en leikir þessara liða síðustu ár hafa jafnan verið spennandi og skemmtilegir. Fyrir tveimur árum gerðum við jafntefli við þá á útivelli, og í fyrra unnu þeir okkur 1-0 með marki frá Kiki Musampa. Þá er City-liðið tveimur sætum ofar en við í deildinni, með tveimur stigum meira, en hafa spilað tvo aukaleiki á okkur. Þannig að það er alveg ljóst að við getum hæglega tapað á morgun.

CITY-liðið hefur verið sterkt í vetur, þótt þeir hafi aðeins dalað í síðustu örfáu leikjum. Þeir Andy Cole og Darius Vassell hafa farið á kostum í framlínunni, og fyrir aftan þá hefur Stuart Pearce byggt á duglegri og öflugri miðju og vel skipulagðri vörn. Fyrir aftan þá vörn hefur David James síðan verið í banastuði í haust og fyrir vikið endurheimt sæti sitt í enska landsliðshópnum.

Þá er aldrei að vita nema að Robbie nokkur Fowler komi við sögu á morgun, en hann er víst byrjaður að æfa aftur og spila með varaliði City eftir meiðsli.

LIVERPOOL-liðið spilaði mjög vel gegn Real Betís á þriðjudaginn og voru hreinlega óheppnir og/eða klaufar að uppskera ekki sigur, auk þess sem liðið hefur leikið reglulega vel í síðustu fimm leikjum og ekki fengið á sig mark í þeim. Þannig að ég tel nokkuð líklegt að Rafa Benítez stilli upp óbreyttu liði á morgun, en gæti þó gert eina breytingu. Ég held að Luis García komi inn í liðið fyrir Dietmar Hamann og fari þá á hægri kantinn, en Stevie Gerrard fari þá niður á miðjuna. Liðið myndi þá líta svona út:

Reina

Finnan - Hyypiä - Carragher - Riise

García - Gerrard - Sissoko - Zenden

Crouch - Morientes

Ef við ímyndum okkur þetta lið, þá sjáum við að fyrir utan liðið standa leikmenn eins og Carson, Dudek, Traoré, Warnock, Josemi, Hamann, Potter, Kewell, Cissé og Sinama-Pongolle, þannig að það er ljóst að við erum með hörku samkeppni um stöður í liðinu í dag. Sem er gott. :-)

MÍN SPÁ: Ég hef sterklega á tilfinningunni að við gerum jafntefli á morgun, annað hvort 0-0 eða 1-1, í skemmtilegum og spennandi leik. Væri persónulega ekkert ósáttur við að gera jafntefli í Manchester á morgun, þótt maður vilji náttúrulega alltaf vinna. En við megum ekki tapa, alls alls alls ekki.

Áfram Liverpool!!!

.: Kristján Atli uppfærði kl. 20:46 | 403 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (13)

http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/eng_prem/4450938.stm

Liverpool look certain to be without Xabi Alonso, who sustained a knee injury in the win against Portsmouth.

Fellow Spain international Luis Garcia has recovered from a hip injury, while Peter Crouch is expected to keep his place in attack.

BBC lýgur ekki oft

Stefán sendi inn - 26.11.05 01:41 - (Ummæli #7)

Jú Alonso er enn meiddur og líklegt að hann spili ekki samhvæmt greyn á liverpool.is.

Annas held ég að Cisse muni koma aftur inn í liðið og jafnvel Kewell fyrir Zenden.

Ég trúi því að okkar menn haldi áfram frábæru formi og vinni þennan leik 2-0. staðan verður 0-0 í hálfleik og svo kemur eitt tilturlega snemma í fyrrihálfleik frá Morientes og svo Crouch setji hann loksins þegar hann kemur inná og klári þetta. Hef trú á því núna að það komi, hef aldrei áður spáð því að hann skori en ég hef einhvernveginn trú á því að það komi núna sjáiði bara til...

Svo er þetta flott, núna þurfum við ekki að bíða lengi á milli leikja hjá okkur. Sunderland á Miðvikudaginn, Wigan á Laugardaginn næsta og svo Chelsea í meistaradeildinni á Miðvikudaginn 3.des og Middlesboroug strax helgina eftir... Mikið fjör. Sem sagt 5 leikir á næstu tveimur vikum. Vonandi við komum út úr þessu taplaust og verðum komnir upp fyrir Arsenal og Man U í deildinni...:-)

Svo hvað haldiði að Rafa geri á móti Chelsea? Ætli hann leifi mörgum að hvíla eða vilji svo heitt taka Chelsea og jafnframt 1.sæti riðilsinns að hann stilli upp okkar besta liði þrátt fyrir gríðarlegt prógramm á næstuni. Ég held að það sé ómögulegt að sega hvað hann gerir enda sagði hann það sjáfur eftir leikin á móti Betis að hann vissi ekki hvernig hann myndi stilla liði sínu upp í lokaleik riðilsins.

Spennandi tímar frammundan....

Andri sendi inn - 26.11.05 01:58 - (Ummæli #8)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 0 - Betis 0 (uppfært x2)
·L'pool 3 - Pompey 0
·Fulham 2 - Liverpool 0
·Anderlecht 0 - Liverpool 1
·L'pool 1 - Blackburn 0

Síðustu Ummæli

Siggi: Jæja þá er Zenden orðinn meiddur. Frá í ...[Skoða]
Hallgrímur: Þessi umræða um hvort og hvenær Crouch s ...[Skoða]
Mgh: Við tökum þennann leik í dag, eftir góða ...[Skoða]
Einar Örn: Kewell og Cisse inn fyrir Zenden og Moro ...[Skoða]
Sverrir: Ætla ekki að segja að það sé pottþétt... ...[Skoða]
Andri: Jú Alonso er enn meiddur og líklegt að h ...[Skoða]
Stefán: Skoða]
Stefán: er ekk bara alonso meiddur ennþa? :roll ...[Skoða]
petur: þarf ekki alltaf að breyta á milli leikj ...[Skoða]
Eiki Fr: Ég spái því að við náum í MESTA lagi jaf ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Crouchy og Cisse byrja
· Man City á morgun!
· Fimmti Bítillinn
· Liverpool bjóða í Serba
· Whitbread til Millwall
· 16 liða úrslitin

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License