19. nóvember, 2005
Jæja, þetta var hinn fínasti leikur í rauninni. Okkar menn tóku grútlélegt lið Portsmouth í kennslustund í fótbolta í dag og unnu verðskuldaðan 3-0 sigur, og var sú markatala síst of stór. Þetta Portsmouth-lið, það verður að segjast, er eitthvert það allélegasta sem hefur komið á Anfield í langan tíma. Minnti mig helst á Leeds árið sem þeir féllu, eða hreinlega Sunderland-liðið sem féll árið þar áður með lélegasta stigafjölda í sögu Úrvalsdeildarinnar. Þetta Portsmouth-lið var einfaldlega ömurlegt, og ef ekki er eitthvað gert fljótlega þá eru þeir í stórkostlegum vandræðum!
Hvað okkar menn varðar þá var þetta bara fínn leikur. Engin blússandi knattspyrna leikin í dag svo sem, en heldur engin þörf á því þannig séð. Um leið og liðin hófu leik sá maður eiginlega strax hvað í stefndi, Portsmouth-liðið ógnaði Reina í marki okkar nákvæmlega ekki neitt og þetta var bara spurningin um hvenær og hve mörg mörk við myndum skora.
Rafa ákvað að hvíla nokkra menn í dag; Alonso og Morientes voru á bekknum og Riise og Kewell voru hafðir fyrir utan hópinn. Sniðug ákvörðun, enda mikið af leikjum núna framundan fram að áramótum eða svo. Byrjunarliðið í dag leit því svona út:
Reina
Finnan - Carragher - Hyypiä - Warnock
García - Gerrard - Hamann - Zenden
Cissé - Crouch
BEKKUR: Dudek, Josemi, Traoré, Alonso, Morientes
Það var eiginlega bara tvennt neikvætt við þennan leik í dag:
Meiðsli: Luis García meiddist í fyrri hálfleik og var loks skipt útaf fyrir Nando Morientes, eftir að hafa haltrað um völlinn í einhverjar fimm mínútur. Hann virtist sárkvalinn. Svo í síðari hálfleik, um tíu mínútum eftir að hann kom inná, fór Xabi Alonso meiddur útaf og virtist kvarta undan meiðslum á framanverðu læri, að mér sýndist. Vonandi er hvorugur þeirra eitthvað alvarlega meiddur, þetta eru lykilmenn sem við megum alls ekki við að missa núna.
Markaþurrð Peter Crouch: Karlgreyið. Ég stend enn við þá skoðun mína að hann er að spila betri fótbolta en Fernando Morientes í dag, og sennilega að spila betur en Djibril Cissé líka. En á meðan mörkin virðast loksins vera að byrja að detta fyrir Morientes (hann er kominn með fjögur í vetur) og Cissé heldur áfram að skora í nánast hverjum einasta leik (kominn með ellefu eða tólf mörk núna, að mig minnir) þá bara getur Crouch ekki skorað. Hann fékk meira að segja að taka víti í dag en lét Jamie Ashdown verja slakt skot frá sér.
Annars voru það þeir Bolo Zenden, Djibril Cissé og Fernando Morientes sem skoruðu mörkin okkar í dag. Zenden skoraði með skalla úr frákastinu eftir að Jamie Ashdown hafði varið víti frá Peter Crouch - sem Zenden hafði sjálfur fiskað. Cissé brunaði upp kantinn framhjá Grégory Vignal í liði Portsmouth og ætlaði að gefa fyrir en sendingin fór of nærri markinu … og steinlá alveg uppí markhorninu fjær. Óverjandi fyrir Ashdown, og Cissé hló með The Kop og yppti öxlum, til merkis um að þetta hafi verið óvart. Samt virtist Rafa hrósa honum á hliðarlínunni eftir markið … hefur sennilega sagt honum að halda áfram að klúðra fyrirgjöfum sínum.
Morientes skoraði svo í síðari hálfleik eftir að Gerrard hafði átt háa sendingu fyrir á fjær, Crouch hafði þar skallað boltann niður í teiginn þar sem Sami Hyypiä lagði hann fyrir Morientes, sem lagði hann fyrir sig og setti hann svo í hliðarnetið af stuttu færi.
Sem sagt, fín mörk, fín frammistaða og það besta við þetta var að þetta var frekar áreynslulaus sigur … manni leið á köflum eins og Liverpool-liðið væri bara í hlutlausum gír, eins og bíll sem rennur niður brekku og hefur ekkert fyrir því. Það eina sem vantaði í þennan leik var mark frá Crouchie, en ég bara trúi því ekki að hann verði markalaus mikið lengur. Hann gerði allt rétt í dag - eins og svo oft áður - nema skora!
MAÐUR LEIKSINS: Tja, það lék enginn illa í rauninni. García og Alonso voru of stutt inná til að gera eitthvað af viti og Josemi - sem kom inná undir lok leiks fyrir Gerrard - í raun líka. Vörnin okkar var góð, hafði nánast ekkert að gera en réð vel við það litla sem á þá kom, og þeir Finnan og Warnock voru duglegir að sækja upp vængina. Reina fyrir aftan þá var öryggið uppmálað og duglegur að koma boltanum fljótt aftur í leik.
Á miðjunni voru þeir Didi Hamann og Stevie Gerrard nokkrum númerum of stórir fyrir leikmenn Portsmouth - sérstaklega vorkenndi ég Viafara, sem hefur eflaust vaknað í morgun og sagt við sjálfan sig, “ég get pakkað Steven Gerrard saman!” Hann reyndi og reyndi en gekk vitaskuld ekki baun … Gerrard tók hann í knattspyrnukennslustund í dag og fyrir það er hann minn maður leiksins. Sannkölluð fyrirliðaframmistaða.
Á vængjunum voru Zenden og Cissé hættulegir og spiluðu að mínu mati mjög vel, og þá sérstaklega Zenden sem var mikið í boltanum og spilinu. Þeir skoruðu báðir sem er jákvætt, og það er vonandi að miðjan haldi áfram að leggja sitt af mörkum til sóknarinnar svona. Þetta er miklu betra en það sem við erum vanir að sjá til vængmanna okkar.
Frammi voru Morientes og Crouch svolítið spes, eiginlega. Crouch átti betri leik en Morientes, var meira í spilinu og sýndi meira í leiknum, en á endanum þá er Morientes enn miklu líklegri til að skora mörk í leik en Crouch. Og þá er sko mikið sagt! En ég hef engar áhyggjur af þessu, finnst gott að sjá Nando vera byrjaðan að skora reglulega, vonandi heldur það áfram, og ég er handviss um að Crouch muni ná sínu fyrsta marki í næstu 2-3 leikjum okkar. Það bara hlýtur að fara að gerast.
Ágætur sigur í dag og við erum komnir í 8. sæti deildarinnar eftir daginn, með 19 stig. Þetta er allt á uppleið og nú erum við búnir að vinna fjóra leiki í röð, og markatalan í þeim leikjum er 11-0. Geri aðrir betur!