beach
« Helguera neitar | Aðalsíða | Liverpool búnir að kaupa Mark Gonzales »

19. október, 2005
Anderlecht 0 - Liverpool 1

Liverpool vann góðan sigur á Anderlecht í Belgíu í kvöld, 0-1 með marki frá Djibril Cisse. Þetta þýðir að við erum með 7 stig eftir þrjá leiki, höfum unnið báða leikina okkar á útivelli og ef að Liverpool og Chelsea vinna sína næstu leiki (Chelsea gegn Betis á útivelli og Liverpool gegn Anderlecht á Anfield), þá gætum við verið búnir að tryggja okkur farseðil í 16 liða úrslitin strax í byrjun nóvember. Fyrir mig, þá var þetta fyrsti leikurinn, sem ég hef séð í Meistaradeildinni í vetur.

En allavegana, þetta var mjög kaflaskiptur leikur. Liverpool liðið var frábært í fyrri hálfleiknum og yfirspilaði Anderlecht algjörlega, en í seinni hálfleiknum þá datt þetta niður og Anderlecht hefði þess vegna getað náð jafntefli.

En að lokum var sigurinn nokkuð sanngjarn.

Ég er hálfpartinn farinn að vorkenna Kristjáni þegar hann reynir að spá fyrir um uppstillinguna, því að Rafa kemur nánast alltaf á óvart. Allavvegana, Rafa stillti þessu upp svona í byrjun:

Reina

Josemi - Carragher - Hyypiä - Traore

Sissoko - Alonso - Hamann - Riise
Garcia
Cissé

Semsagt, Sissoko var á hægri kantinum og Garcia var í holunni fyrir aftan Cisse.

Ensku sjónvarspmennirnir voru sannfærðir um að þetta yrði varnarsinnað Liverpool, en annað kom á daginn því Liverpool yfirspiluðu Anderlecht algerlega í fyrri hálfleik og hefðu auðveldlega getað skorað 3 mörk. Riise var m.a.s. nálægt því að skora með hægri.

En eina mark leiksins kom eftir hornspyrnu frá Didi Hamann. Hamann gaf háan bolta fyrir og þar var Kofi Annan mættur á fullkomnum stað og DÚNDRAÐI boltanum í markið. Og þá meina ég dúndraði! Boltinn var eiginlega beint á markmanninn, en hann hafði ekki tíma til að rétta upp hendurnar. Bresku sjónvarpsmennirnir mældu boltann á 100 kílómetra hraða. Frábært mark.

Cisse hélt svo áfram að pína vörn Anderlecht og Riise var ógnandi upp kantinn. Cisse, Luis Garcia (dauðafæri) og Riise hefðu allir getað skorað.

En þetta var semsagt 1-0 í hálfleik. Leikurinn breyttist síðan mjög mikið í seinni hálfleiknum og Anderlecht pressaði miklu meira. Flestar sóknir þeirra komu upp hægri kantinn, þar sem Djimi Traore var í sannkölluðu jólaskapi og hleypti mönnum framhjá sér einsog hann fengi bónus fyrir hverja Anderlecht fyrirgjöf. Án efa hans slappasti leikur í langan tíma. Í raun voru báðir Malí mennirnir slappir, en Sissoko var þó ekki að spila í sinni stöðu og því er hann afsakaður.

En semsagt, Anderlecht sóttu talsvert og hefðu átt að fá vítaspyrnu, þegar að Jamie Carragher handlék boltann augljóslega í vítateignum, en við vorum heppnir og sluppum fyrir horn. Auk þess var Reina öruggur í markinu og varði nokkrum sinnum mjög vel.

Þegar að líða tók á leikinn kom svo Harry Kewell inná fyrir Cisse, Zenden fyrir Sissoko og svo að lokum Warnock fyrir Riise. Það var ánægjulegt að sjá Kewell og Liverpool hefði alveg getað potað inn einu marki í lokin, en Sissoko, Garcia og Kewell fengu allir ágæt færi.

En semsagt, þetta hafðist og það er allt sem skiptir máli. Þetta var þó alltof tæpt, því Liverpool hefði auðveldlega getað klárað þetta 4-0. Við bara nýtum ekki færin. Chelsea átti í kvöld 7 skot á markið og skoruðu 4 mörk. Við áttum 6 skot á markið og skoruðum 1.

Maður leiksins: Ég var ósammála Kristjáni á laugardaginn varðandi mann leiksins, því ég hefði valið þann mann, sem ég ætla að velja núna: Xabi Alonso. Hann byrjaði tímabilið rólega, en mér finnst hann hafa verið frábær í síðustu tveimur leikjum.

Reina spilaði líka vel og mér fannst Riise frískur á kantinum. En Alonso er einfaldlega allt í öllu. 90% af sendingum fara í gegnum hann, hann vinnur varnarvinnuna gríðarlega vel og hann var okkar besti maður í þessum leik, sem og á laugardaginn.

Svo fær Cisse auðvitað sinn plús fyrir að skora enn einu sinni.

En allavegana, fínn útisigur og við getum verið sáttir. Ef við förum bara að nýta færin einsog menn, þá hlýtur þetta að fara að koma. Ég held að við tökum Fulham í kennslustund á laugardaginn.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 21:35 | 661 Orð | Flokkur: Leikskýrslur
Ummæli (17)

Er Cisse bara 24 ára????

Jóhanna sendi inn - 19.10.05 22:09 - (Ummæli #2)

Jæja, kominn heim af Airwaves.

Horfði á leikinn á Players, meðal annars með Einari og bróður mínum, og ég tek nokkurn veginn undir allt sem Einar segir í þessari skýrslu. Við hefðum getað verið 3-0 yfir í fyrri hálfleik, en við hefðum líka getað tapað þeim seinni 3-0, þannig að þótt við hefðum verið betri á heildina litið og skapað áfram góð færi í seinni hálfleik - og sigurinn því verið sanngjarn - þá verðum við að teljast eilítið heppnir að hafa sloppið með þrjú stigin þarna.

Sammála því að Alonso átti stórleik í kvöld, var algjörlega frábær og nálægt því að skora með góðu skoti í fyrri hálfleik. Það fór allt í gegnum hann, vonandi heldur hann uppteknum hætti!

Þá langar mig að minnast á Christian Wilhelmsson, sænska hægri kantmanninn hjá Anderlecht. Ég hreifst fyrst af honum á EM í fyrra og fannst hann stórgóður gegn Íslandi á Laugardalsvellinum fyrir ári, sem og gegn Englendingum í æfingaleik í vor. Í kvöld var hann gjörsamlega langbesti leikmaður Anderlecht, síógnandi á kantinum og fór illa með Djimi Traoré hvað eftir annað, nokkuð sem stærri og frægari nöfn en hann hafa ekki getað hingað til.

Allavega, Wilhelmsson er 25 ára og að mínu mati maður sem við mættum alveg skoða. Ég væri til í að sjá hann hjá Liverpool, hvað svo sem Sabrosa/Gonzalez/Joaquín líður. Hann væri eflaust ódýr kostur (5m punda í mesta lagi) og hefur að mínu mati bara allt sem okkur vantar. Ég meina, við spiluðum með Sissoko á hægri kantinum í kvöld. Við ÖRVÆNTUM hérna ... okkur vantar hægri vængmann og það helst í gær!

Annars jákvætt að landa þremur stigum og einnig gott að sjá Harry Kewell (loksins) aftur með okkur. Hann meiddist ekki, virkaði frískur (miðað við langa fjarveru) og var búinn að safna hári, þannig að það er vonandi að hann komi sterkur inn á næstunni. Hann gæti leyst hægri vængstöðuna fyrir okkur næstu 2-3 mánuðina, fram að janúar.

p.s.

Einar, eins og ég sagði á laugardaginn þá fannst mér Alonso og Sissoko spila best gegn Blackburn, en ég gaf Cissé heiðurinn vegna marksins, fannst hann bara svara gagnrýnendum sínum frábærlega í þeim leik - og í raun gerði hann það í kvöld líka. Menn tala um að hann geti ekki verið eini framherjinn okkar af því að hann sé ekki nógu sterkur líkamlega, en í kvöld lét hann finna fyrir sér og var meira að segja að leggja upp fyrir García og Riise með skallasendingum eftir langa bolta fram, a la Crouch ... þá fékk hann nokkur góð færi til að bæta við öðru marki en tókst það ekki.

Ég sé lítið annað í stöðunni en að hann byrji inná aftur gegn Fulham. Hlakka til að sjá þann leik ... þetta er allt að smella saman, mér finnst bara ákveðinn bragur á liðinu. Eins og þú segir Einar, ef við förum að nýta færin og leysa hægri vængstöðuna þá fer þetta tímabil á flug, ég er viss um það. :-)

Kristján Atli sendi inn - 20.10.05 00:07 - (Ummæli #5)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Heimsmeistarakeppni Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Bolton 2 - L'pool 2
·Liverpool 1 - W.B.A. 0
·Everton 1 - L'pool 3
·Liverpool 2 - Newcastle 0
·Sao Paulo heimsmeistarar! (uppfært)

Síðustu Ummæli

Kristján Atli: Alger snilld! Þetta er orðið staðfest nú ...[Skoða]
sildi: Hvernig líst mönnum að fara að fá Speedy ...[Skoða]
Geiri: Það er alltaf svo ljúft þegar Liverpool ...[Skoða]
Krizzi: Frábært að ná sigri á útivelli þar sem ö ...[Skoða]
Doddi: Sigur er sigur, fyrri hálfleikurinn góðu ...[Skoða]
Mummi: Hann Christian Wilhelmsson er ávallt kal ...[Skoða]
Hannes: Ég er sammála Friðgeiri þarna með eitt, ...[Skoða]
Friðgeir Ragnar: sekjum = seljum!!! ...[Skoða]
Friðgeir Ragnar: Ég er ótrúlega sammála Kristjáni Atla í ...[Skoða]
toggipop: Það verður skálað hraustlega á mínu heim ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Paul Anderson semur við Liverpool
· Gerrard og Nolan (uppfært)
· Bolton 2 - L'pool 2
· Bolton á morgun!
· Ársuppgjör 2005!
· Liverpool 1 - W.B.A. 0

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License