beach
« Marseille blankir + tyrkneskt undrabarn | Aðalsíða | Gerrard aðeins frá í 11 daga og styttist í Kewell og Mellor. »

10. október, 2005
Hvað gerir Rafa núna?

Ok, semsagt Gerrard er meiddur og verður frá næstu 2-3 vikur. Það er nú hefðbundið að Gerrard sé frá í nokkrar vikur á tímabili, þannig að það er eitthvað sem við höfum þurft að sætta okkur við og lifa með.

En einsog áður, þá gefur fjarvera Gerrard okkur ávallt ákveðin tækifæri. Það kemur auðvitað enginn í staðinn fyrir besta miðjumann í heimi, en þetta gæti þó boðið uppá athyglisverða möguleika.

Til dæmis varðandi leikinn á laugardaginn. Ef að Gerrard er meiddur, þá erum við ekki með neinn sókndjarfann miðjumann, þannig að ég ætla að leyfa mér að fullyrða að Rafa spili 4-4-2, eða þá í versta falli að hann hafi Luis Garcia sem næst fremsta mann.

Ég held að uppstilling með Sissoko, Alonso og Hamann á miðjunni yrði alltof varnarsinnuð, þar sem að enginn þessara leikmanna er þekktur fyrir mikla sóknartilburði. Á móti liði einsog Blackburn á heimavelli hljótum við því að blása til sóknar.

Þannig að ég ætla að spá því að Rafa stilli upp með Zenden, Sissoko, Alonso og Garcia á miðjunni og Crouch og Cisse frammi. 4-4-2 og hann gefi Cisse tækifæri til að standa við stóru orðin. Það verður allavegana spennandi að sjá.


Svona á persónulegum nótum, þá verður leikurinn á laugardaginn minn fyrsti leikur á Anfield. Ég og tveir félagar úr vinnunni ætlum að fara, þar sem við getum sameinað vinnuferð og þennan fótboltaleik. Ég hef bara farið á einn Liverpool leik, sem var háður í Istanbúl og því hef ég ágætis reynslu af því að sjá Liverpool í eigin persónu.

Ég krefst allavegana sigurs. Ef við vinnum ekki Blackburn á laugardaginn, þá fyrst fara viðvörunarbjöllur að hringja af alvöru. Núna er tækifærið að sýna að þetta lið snúist ekki um Gerrard og að við getum spilað alvöru sóknarbolta. Vonandi að Rafa gefi Crouch og Cisse smá tækifæri saman, ég er sannfærður að það gæti gefist vel.

.: Einar Örn uppfærði kl. 09:19 | 312 Orð | Flokkur: Vangaveltur
Ummæli (8)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Aston Villa 0 - Liverpool 2
·Liverpool 3 - Anderlecht 0
·Liverpool 2 - West Ham 0
·C. Palace 2 - Liverpool 1 (uppfært)
·Fulham 2 - Liverpool 0

Síðustu Ummæli

Gummi M: sjáumst á Anfield... eins gott að Liverp ...[Skoða]
GK: Sjáumst á The Park fyrir leik á laugarda ...[Skoða]
sildi: Þið eruð að tala um 2-3 vikur en þetta s ...[Skoða]
Pétur:

Það kemur auðvitað enginn í
...[Skoða]
Aron: Sjáumst á laugardaginn :-) YNWA ...[Skoða]
Kristján Atli: Rafa bara hlýtur að hafa séð hvað Crouch ...[Skoða]
Krizzi: Tek undir með Einari, þetta bíður upp á ...[Skoða]
Aggi: Sammála þér einar! Við hljótum að spila ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Kewell biður um þolinmæði, Riise vill framlengja samninginn sinn og fleira til.
· Sabrosa falur!
· Hinn Króatíski Beckham
· He's big, he's red ...
· Rafa í hálfleik í Istanbúl
· Liverpool að fá bandaríska fjárfestingu?

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License