06. október, 2005
Rafa hefur trú...
Rafa segir strákunum okkar að halda áfram og hafa trú á því sem hann er að gera, það muni bera árangur… bráðlega! Það er klárt mál að ef allir eru samstíga og hafa einlæga trú á því sem þjálfarinn er að gera þá er líklegra að árangur náist en ella.
Rafa tjáir sig einnig um Kewell og ljóst er á þessu að hann hefur trúa á kappanum.
“When he’s back with us it’ll be like signing a new player because he has a lot of quality…”
Ég er sammála Rafa, ég hef ekki gefist uppá Kewell og vona svo innilega að hann komi til með að spila á eðlilegri getu hið fyrsta.
Við höfum margir undrað okkur af hverju Rafa noti Cisse svona lítið og ég rakst á ágæta grein um þetta málefni.
Speed to burn, an eye for a goal, the ability to drift out wide and provide goals for others? It’s going too far to compare Cisse to Thierry Henry, but France manager Raimond Domenech obviously feels that the 24 year-old is an adequate replacement.
Ég vil sjá Cisse fá meiri séns og líkt í kemur fram í greininni þá grunar manni eins og eitthvað persónulegt sé á milli Benitez og Cisse en samt hefur ekkert komið fram um það. Mér er bara algjörlega óskiljanlegt af hverju hann fær ekki séns þá til að sýna okkur að hann sé lélegri en Crouch.
Hvað finnst þér?