04. október, 2005
Hef ég sagt það hér áður hvað landsleikjahléin eru ógeðslega glötuð? Ég á erfitt með að ákveða mig, hvort mér þykir verra að þurfa að þola 2ja vikna hlé eftir sigurleik eða eftir rassskellingu eins og þá sem við máttum þola á sunnudaginn. En allavega, hér erum við með Liverpool-síðu og verðum að halda henni gangandi á meðan ekkert er að gerast. Þannig að ég ætla að viðra smá pælingu hérna, í von um að umræða skapist.
Áður en ég byrja finnst mér rétt að taka fram að ég er með þessari grein ekki að gagnrýna Peter Crouch á neinn hátt. Ég er fyrir löngu búinn að éta orð mín á þessari síðu frá því í vor, Crouchie er frábær leikmaður og ótrúlega lunkinn. Hann hefur leikið reglulega vel fyrir okkur í haust og átti stóran þátt í sigrinum gegn Real Betís í Meistaradeildinni. Staðreyndin er hins vegar sú að hann er mjög illa nýttur sem eini framherjinn okkar, á meðan vængmennirnir eru jafn daprir og raun ber vitni.
Þannig að ég er eiginlega kominn á þá skoðun að hann sé ekki okkar besti kostur sem framherji eins og staðan er í dag. Ef ég fengi að ráða myndum við svissa yfir í 4-4-2 strax í gær, en aftur á móti þá heiti ég ekki Rafa Benítez. Hann vann Meistaradeildina, La Liga tvisvar og Evrópukeppni félagsliða - ekki ég. Þannig að ég hef fulla ástæðu til að áætla að hans skoðun sé réttari en mín. Og það er orðið fullljóst að Rafa ætlar sér að spila 4-5-1, 4-3-3, 4-2-3-1, hvað sem þið kallið það.
Einn í marki. Fjórir í vörn. Þrír á miðju, Gerrard þar fremstur. Tveir á vængjunum. Einn frammi. Kallið kerfið hvað sem þið viljið, en þetta eru þær stöður sem í boði eru.
Hvað er þá til bragðs að taka? Við erum flest sammála um að Djibril Cissé sé langbesti framherjinn í herbúðum Liverpool í dag. Við erum líka flest sammála um að hann sé ekki besti kosturinn til að spila einn frammi. Er það ekki?
Ég hef allavega verið á þeirri skoðun, en hún er samt annmörkum háð. Ef við erum með gott vængspil eru Crouch og Morientes betri kostir í framherjastöðuna. Ef við erum að sækja á fleiri miðjumönnum en bara Gerrard og García, þá eru Crouchie og Nando betri kostir.
Við erum hins vegar ekkert með gott kantspil og við erum ekki að sækja á fleiri miðjumönnum en Gerrard og García. Og, í hreinskilni, þá eru þeir tveir ekkert eins duglegir að koma sér inní teiginn og þeir gætu verið þessa dagana.
Með öðrum orðum, Rafa ætlar að spila 4-5-1 sama hvað það kostar, en við erum með gjörsamlega glataða leikmenn í 4-5-1. Eða hvað?
Þegar ég hugsa um 4-5-1 hugsa ég yfirleitt um tvö lið sem viðmiðun, Chelsea og AC Milan. Chelsea nota Drogba eða Crespo frammi eftir því sem við á, Duff og Robben á vængjunum og Essien, Lampard & Makelele á miðjunni. Milan nota Schevchenko oftast einan fremstan, með Kaka og Gilardino þar fyrir aftan, og Gattuso, Pirlo & Seedorf á miðjunni.
En í kvöld datt mér í hug annað lið sem spilar 4-5-1 með góðum árangri. Lið sem mér hefði átt að vera löngu búið að detta í hug, í rauninni. Lið sem notar sama og ekkert kantspil, og ef eitthvað þá bara hægra megin. Lið sem hefur náð ótrúlegum árangri og var sennilega skemmtilegasta lið Evrópu í fyrravetur. Liðið er BARCELONA:
Valdes
Belletti - Puyol - Oleguer - Gio
Giuly - Deco - Marquez - Xavi - Ronaldinho
Eto’o
Einn í marki. Fjórir í vörn. Þrír á miðjunni. Tveir þar fyrir framan, hvort sem er á væng eða milli sóknar og miðju. Einn frammi.
Með öðrum orðum, nákvæmlega sama leikskipulag og við höfum í dag. Hjá Barca er boltinn spilaður með jörðinni, gengur manna á milli fyrir utan teig andstæðinganna og þeir eru sérfræðingar í að þræða boltann inn í allar glufur í vörnum hinna liðanna, sérfræðingar í að koma boltanum í fæturna á Eto’o í góðu færi.
Nú spyr ég ykkur: er Samuel Eto’o ekki minni en Djibril Cissé? Eru þeir ekki svipað fljótir? Eru þeir ekki svipað grimmir - fæddir til að skora mörk? Eru þeir ekki svipað góðir/sæmilegir skallamenn? Man einhver lesandi þessarar síðu eftir að hafa séð Eto’o skora fyrir Barca með skalla?
Ég er mikill Barca-maður og horfi á nær alla leiki þeirra á Sýn. Ég man ekki eftir að hafa séð Eto’o skora með skalla undanfarið … en þið megið bóka það að ef hann fær séns á skotinu þá er hann stórhættulegur. Sennilega bara Schevchenko í Evrópu í dag sem er hættulegri í dauðafærunum.
Ég veit að við höfum engan Deco og engan Ronaldinho í okkar liði, en við erum samt ekki með neitt slor á miðjunni. Um leið og við frelsum “vængmennina” okkar frá þeirri byrði að þurfa að komast upp að endalínu og gefa fyrir, þá er ljóst að við erum með andskoti góða miðlínu hvað varðar það að halda bolta innan liðsins, láta hann ganga milli manna og finna glufur á vörn andstæðinganna:
García - Gerrard - Alonso - Sissoko - Zenden
Og þar fyrir framan … Djibril Cissé.
Gæti það ekki alveg eins gengið? Við vitum að Rafa ætlar sér að leggja upp með sterkt kantspil, við vitum að Crouchie og Nando eiga að leika stórt hlutverk - þ.e. að skalla allar fyrirgjafirnar í netið. En þangað til í janúar (í fyrsta lagi) … þangað til við fáum menn í liðið sem geta hlaupið upp að endalínu með boltann og gefið fyrir, af hverju þá ekki að reyna nýja nálgun? Af hverju ekki að mæta á Anfield með tvo bakverði sem sækja hátt upp - Finnan og Warnock myndu duga alveg jafn vel og Belletti og Gio van Bronckhorst - fimm miðjumenn sem geta haldið bolta innan liðsins og fundið glufur á vörn andstæðinganna, og svo einn grimmasta framherjann í deildinni þar fyrir framan?
Ég verð að viðurkenna að ég bara skil ekki af hverju Djibril Cissé fær ekki fleiri sénsa. Hann er með 7 mörk á tímabilinu, og það hefur ekkert þeirra verið skorað með skalla eða eftir fyrirgjafir. Crouch hins vegar þarfnast fyrirgjafanna til að skora mörk. Hvor þeirra á að fá að spila … í liði sem ekki getur gefið fyrir? Segið þið mér það.
Ég treysti Rafa alveg og þrátt fyrir tapið á sunnudag - sem var óþarflega stórt miðað við spilamennsku okkar manna - þá er ég alveg bjartsýnn á að hann sé á réttri leið með þetta lið. En það eru augljósir gallar í liðinu, vandamál sem þarf að laga í janúar. Hins vegar er Rafa ekkert undanþeginn gagnrýni frekar en aðrir, þótt hann hafi unnið Meistaradeildina í fyrra, og það skilur það sennilega enginn nema bara hann og Paco Ayesteran hvers vegna þeim lá meira á að setja Sissoko inn fyrir Hamann á miðjuna, Pongolle inn fyrir Traoré á vænginn (og Riise niður í bakvörð) í stöðunni 3-1 og svo 4-1 … og bíða samt þangað til 10 mínútur voru eftir með að setja Cissé inná völlinn.
Ég skil það ekki. Ég veit þið skiljið það ekki. Ég bara neita að trúa því að jafn hæfileikaríkur piltur og Djibril Cissé geti ekki með nokkru móti gert sóknarleik okkar beittari og hættulegri. Hugsið ykkur Newcastle í fyrra án Alan Shearer, Arsenal í vetur án Thierry Henry, manchester united
í fyrra án van Nistelrooy, Tottenham án Jermain Defoe. Ef að hættulegasti leikmaðurinn er tekinn úr þessum liðum, þá eru þau strax töluvert bitminni. Það bara sést á þessum liðum þegar hættulegasti leikmaðurinn, mesti markahrókurinn, er fjarri góðu gamni.
Hvers vegna er þá laaaang hættulegasti leikmaðurinn okkar alltaf á bekknum?