04. október, 2005
Alonso ... vill ... Simao

Xabi Alonso segist búast við að nýjum leikmönnum í janúar. Hann er á því að við þörfnumst þess nauðsynlega að fá liðsstyrk, og það sem fyrst:
“We are trying to use all the options we have at the moment, but I think you can see we still need a little more.
All we can do is wait until the transfer window opens again in January. Until then we must start winning as soon as possible because we are not in a comfortable position.”
Hann er ekki einn um þá skoðun.
Skv. fréttum í dag þá hefur Rick Parry nánast viðurkennd að Simao Sabrosa, fyrirliði Benfica, verði efstur á óskalista Liverpool þegar leikmannaglugginn opnar að nýju á nýársdag. Þeir eru nokkrir innherjarnir og/eða fréttamennirnir í Bretlandi sem vilja meina að það sé þegar búið að ganga frá kaupum á Sabrosa, það sé bara verið að bíða með að tilkynna það þangað til í janúar … til að gefa aðdáendum Benfica séns á að venjast tilhugsuninni. Við munum öll hvað gerðist í lok ágúst, við vorum nánast búnir að ganga frá kaupum á honum þegar allt varð vitlaust meðal aðdáenda Benfica - og í kjölfarið þorðu þeir ekki að selja hann.
Ég sá Sabrosa spila með Benfica gegn manchester united
í Meistaradeildinni í síðustu viku, á Old Trafford. Þar var hann alveg frábær, sennilega besti leikmaður vallarins ásamt Manuel Fernandes og Luisao liðsfélögum sínum. Vinnslan í honum var rosaleg, hann tók menn á upp báða vængina, dældi fyrirgjöfum inn í teiginn og skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu. Virðist vera leiðtogi á velli, maður sem félagarnir geta leitað til þegar þá vantar þetta ‘extra’ og einnig vera akkúrat sá kantmaður sem við þurfum. Kaup’ann, verst að hann á ekki tvíburabróður…
Allavega, slúðrið fer að fara almennilega af stað aftur. Það styttist í áramótin og leikur Liverpool-liðsins ber það með sér að menn bara trúa ekki öðru en að einn miðvörður og allavega einn kantmaður verði verslaðir í janúar. Þannig að við eigum örugglega eftir að vera orðaðiðr við haug af leikmönnum næstu þrjá mánuðina. Sem er ágætt svo sem, ef það styttir þessi helvítis landsleikjahlé eitthvað.