beach
« B'ham 2 - L'pool 2 | Aðalsíða | Sálfræðistríðið hafið... »

26. september, 2005
Chelsea-vikan hefst... (uppfært)

Gráttu, Gallas, Gráttu...

Man einhver eftir þessu?

Hélt það líka. Það er kominn mánudagur og framundan eru tveir stórleikir við besta lið Englands um þessar mundir, meistar Chelsea. En þar sem við erum líka meistarar þá þykist ég viss um að þetta verði nokkuð spennandi viðureignir.

Chelsea-liðið er sennilega það eina á Bretlandseyjum í dag sem ég er reiðubúinn að viðurkenna að sé betra en Liverpool. Þannig að bara til að þetta sé opinbert, þá er Chelsea betra lið en Liverpool í dag. Það er bara staðreynd, ef við horfum á deildargengi liðanna sl. tvö tímabil - og bætum við gengi liðanna í deildinni í haust, þá er alveg augljóst og þarf ekkert að rífast um það að Chelsea eru með betra lið en við.

HINS VEGAR…

Þegar kemur að Meistaradeildinni og Evrópukeppnum almennt, þá er eitthvað annað uppi á teningnum. Það er eitthvað við Liverpool-liðið hans Rafa sem hrekkur í gírinn í Evrópu og við förum að hætta að minna menn á jafnteflislið eins og Bolton eða Middlesbrough (eins og í deildinni) og förum að minna á lið eins og Juventus, Barcelona … og jú, Chelsea.

Við erum Evrópumeistarar og við gerðum það með því að vinna bestu lið Evrópu. Við fáum enga greiða fyrir þau afrek núna, vissulega, en þau minna okkur á að það er ekkert lið þarna úti sem á sigur gegn Liverpool í Evrópukeppni vísan. Chelsea-menn vita það manna best, en þeir eru enn að kvarta og væla eftir tapleikinn í apríl: José Mourinho, Frank Lampard, aðdáendurnir

En við örvæntum svo sem ekki, Rafa segir a Chelsea geti tapað, Alonso er ekki hræddur við þá … og Abel Xavier hefur fulla trú á okkur. :-)

Spennandi vika framundan. Gleymið öllu tali um deildina í smástund, við getum rifjað hana upp fyrir helgina (enda líklegra að við töpum á sunnudag en á miðvikudag) … í dag á bara eitt að komast fyrir í huga ykkar: CHELSEA, í Meistaradeildinni, Á ANFIELD á miðvikudaginn!

Þetta verður skemmtileg vika. :-)


Uppfært (Aggi): Uuuussss já þessi vika verður Rooooosaleg og ég get varla beðið eftir basic-inu, lesa upphitunina hans Kristjáns, dreyma sigur, mæta á pub-inn klst. fyrir leik og ræða við dönsku félagana um leikinn.
Það hafa mörg pirrandi úrslit litið dagsins ljós í upphafi tímabilsins en eins og við vitum ALLIR þá er meistaradeildin önnur keppni þar sem allt getur gerst. Það er klárt mál að ég var að vonast til að við myndum mæta öflugri til leiks í deildinni þar sem við vorum búnir að spila marga leiki m.a. í undankeppni meistaradeildarinnar en sóknarlega er þetta ekki að smella. Hvort það sé vegna þess að Gerrard er ekki að spila nógu vel, að kantmennirnir okkar séu ekki nógu góðir, senterarnir ekki nógu góðir, Rafa að spila vitlausa taktík o.s.frv. Aðalatriðið er að leikmennirnir sem valdir eru hverju sinni leggi sig 100% fram, séu andlega klárir þegar dómarinn flautar til leiks og njóti þess að berjast fyrir hvorn annan.
Ég trúi því að við munum vinna Chelsea bæði í meistaradeildinni og í deildinni. Hvernig verður umræðan þá í ensku pressunni? Bíðið og njótið :-)

.: Kristján Atli uppfærði kl. 09:27 | 515 Orð | Flokkur: Liverpool
Ummæli (8)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Heimsmeistarakeppni Félagsliða · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Bolton 2 - L'pool 2
·Liverpool 1 - W.B.A. 0
·Everton 1 - L'pool 3
·Liverpool 2 - Newcastle 0
·Sao Paulo heimsmeistarar! (uppfært)

Síðustu Ummæli

Hössi: Hlakka mikið til leiksins annað kvöld. K ...[Skoða]
Kristján Atli: Já, það hafði í raun ekki hvarflað að mé ...[Skoða]
Friðgeir Ragnar: já og fari svo að Chelsea menn fari úr j ...[Skoða]
Krizzi: Hárrétt hjá þér Mgh þessir leikir verða ...[Skoða]
Mgh: Báðir leikir er álíka mikilvægir. Ég h ...[Skoða]
Sjúrður Reynis.: Smá leiðrétting, það er ekkert lið BETRI ...[Skoða]
Ólafur: Hvort skiptir meira máli að vinna fyrri ...[Skoða]
Öddi: Nú er bara að girða brók, bretta upp sok ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Paul Anderson semur við Liverpool
· Gerrard og Nolan (uppfært)
· Bolton 2 - L'pool 2
· Bolton á morgun!
· Ársuppgjör 2005!
· Liverpool 1 - W.B.A. 0

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License