13. september, 2005
Ókei, nú súpa margir hveljur … en við verðum að treysta Rafa. Hann vann Meistaradeildina, La Liga (tvisvar) og UEFA Keppnina, ekki við.
Allavega, byrjunarlið Liverpool fyrir Betís-leikinn í kvöld er svona:
Reina
Josemi - Carragher - Hyypiä - Traoré
García - Alonso - Sissoko - Zenden
Pongolle - Crouch
BEKKUR: Carson, Gerrard, Finnan, Warnock, Hamann, Cissé.
Það fyrsta - og eina - sem mér dettur í hug er að hann sé að hvíla Gerrard, Finnan, Warnock og Cissé fyrir átökin á sunnudag. Hvað United-leikinn varðar getur það reynst algjört snilldarverk … en ég vona, hans vegna, að það komi okkur ekki í koll í kvöld.
Pongolle frammi, Josemi í vörninni, Gerrard á bekknum … þetta verður svakalegt!!!