12. september, 2005
Carragher raunhæfur... eins og ávallt og fleira.
Carragher segir að það sé óraunhæft að liðið stefni á að vinna titilinn í ár, raunhæft sé að stefna á topp þrjú. Carra er raunhæfur og tel ég að flestir séu þessu sammála þ.e. að við verðum nær toppbaráttunni en í fyrra (ekki -30 stig á eftir toppliðinu) og náum að minnka þennan mun um í það minnsta helming.
Alonso segir að framherjarnir í Liverpool séu með þeim bestu í enska boltanum. Ég er sammála því að nöfnin Morientes og Cisse eru öflug og eru þeir leikmenn sem eiga að geta verið með 20+ mörk á tímabili. Pongolle er með eflilegri framherjum í Evrópu og Crouch er stór… ég vona að hann komi mér á óvart í vetur.