02. september, 2005
Benitez að breyta "scouting" kerfinu hjá okkur.
Það getur skipt sköpum að vita nákvæmlega hvernig leikmann þú ert að kaupa, hvernig karakter hann er o.s.frv. Þetta er oft spurning um mikla peninga og því er mikilvægt að hafa góða njósnara (scouts) út um alla veröld til að fylgjast með efnilegum leikmönnum sem og leikmönnum sem geta gengið strax inní byrjunarliðið.
Benitez hefur tekið til á mörgum stöðum á Anfield og þ.m.t. skipt út njósnurum og skilvirkni “njósnarakerfisins” virkar(já ég veit asnalegt orð). Mér finnst vera ansi langt síðan við keyptum ungan strák, ódýrt, sem skilaði sér uppí aðalliðið. Wenger virðist vera snillingur í þessu en eitthvað klikkaði hjá t.d. Houllier í þessu dæmi. Hann t.d. keypti fullt af ungum leikmönnum en þeir líka kostuðu dágóða summu t.d. Le Tallec og Pongolle.
Ef vel tekst til þá munum við bera ríkulegan ávöxt af breyttu og betra kerfi sem þýðir betri og yngri leikmenn koma fyrr til Liverpool til að læra fræðin. Einnig að færri mistök ættu að eiga sér stað varðandi leikmenn sem ætlast er til að gangi beint inní byrjunarliðið.