beach
« Rafa talar... | Aðalsíða | Sumarið Á Markaðnum (uppfært) »

31. ágúst, 2005
Simao kemur ekki (staðfest)!

Þá er það orðið staðfest: Simao Sabrosa kemur ekki til Liverpool!

Skv. frétt BBC þá buðu Liverpool fyrst 7 milljónir punda sem Benfica höfnuðu. Þá buðu Liverpool 10.2m en Benfica svöruðu því að hann væri aðeins falur fyrir 13.6m punda. Þrátt fyrir að atburðarásin hafi gengið svo langt í dag að hann hafi gengist undir læknisskoðun í Portúgal, að mér skilst (sökum þess hve tíminn var naumur var sennilega farið of snemma í læknisskoðunar-dæmið) þá gekk þetta ekki eftir og hann kemur því ekki til okkar.

Og miðað við að maður hefur ekki heyrt nokkurn skapaðan hlut um Bonera, Mexés eða neinn annan en Simao í dag tel ég að það sé nokkuð ljóst að það verða engar viðbætur á leikmannahópi Liverpool fyrir miðnætti í kvöld.

Leyfum þessu samt að klárast, enn eru 3klst 41mín eftir skv. breskum tíma. Þegar dagurinn er síðan endanlega búinn - á morgun - þá mun ég síðan fara aðeins yfir stöðuna og meta það hvar við erum staddir eftir kaup & sölur sumarsins.

En allavega, Simao kemur ekki, því miður því þar er spennandi leikmaður á ferð sem hefði gert mikið fyrir liðið.

.: Kristján Atli uppfærði kl. 20:26 | 190 Orð | Flokkur: Leikmannakaup
Ummæli (24)

Ok... við unnum stærsta titilinn í maí - gaman gaman. En burtséð frá því, þá hefur titlaleysið verið meira en maður hefði viljað síðustu 14 árin eða svo. Síðustu tímabil, t.d. með Houllier við stjórnvölinn, þá fengum við meðalmenn til okkar og álitlega menn til okkar og alltaf voru vonir, alltaf töldum við okkur vera með lið í titlabaráttu. Og það gerum við í ár auðvitað líka.

En burtséð frá þrennunni frábæru og þegar Michael Owen var fyrstur enskra manna valinn European Footballer of the Year síðan Kevin Keegan 1979...og titlunum núna, hvað hefur batnað hvað varðar móral og skipulag og stöðugleika?

Við áttum jú í fáránlega miklum meiðslum í fyrra, en samt finnst mér mórallinn vera sá svipaði hvað varðar getu leikmanna og hópsins: við eigum að gefa þeim séns, við þurfum ekki stórstjörnur.... o.s.frv. En ég tel að til að við getum keppt við Chelsea, Manure og Arsenik af fullri alvöru þá þurfum við sterkari nöfn. Það getur enginn keppt við peningamaskínur eins og Chelsea, og Real Madrid kann að eyða peningum og fá peninga! En hvernig stendur á því að lið eins og Tottenham og Newcastle virðast geta eytt meira en við og fengið stór nöfn, og hvernig stendur á því að Aston Villa nær í Bouma (og fær Baros) og Solano verður þar áfram, í stað þess að Liverpool fái þá? Bouma talaði um að Villa gerði mest enskra liða til að vilja sig ... sem fær mann alvarlega til að hugsa: er ekki eitthvað skrýtið að Evrópumeistarar Liverpool geti ekki eytt meiri peningum og lokki ekki sterkari nöfn til sín?

By the way, ég verð fyrsti maður til að hrópa húrra ef mínar áhyggjur reynast ótrúlega rangar og Liverpool stingur af í deildinni - því alltaf er ég Púlari - en þetta eru réttmætar áhyggjur finnst mér.

Doddi sendi inn - 31.08.05 22:45 - (Ummæli #12)

Nú verður hópnum ekki breytt úr þessu og það hlýtur að vera fúlt fyrir leikmennina og stjórnina alla að vita það að þeir klikkuðu á leikmannamarkaðinum. Rafa hefur sjálfur sagt marg oft að það vanti hægri kantmann og varnarmann. Þetta er ekki eitthvað frá stuðningsmönnum komið sem vilja alltaf fá einhverja leikmenn. Hann sagði þetta sjálfur margoft og hverju skilaði það sér? Ég tek undir með ykkur hérna að það er ótrúlegt að Newcastle og Tottenham geti keypt nánast hvaða leikmenn sem þeir vilja en við erum alltaf að horfa í einhverjar krónur. Ég er alveg hættur að skilja þetta, Rick Parry sagði eftir síðasta tímabil að það ætti að skipta út leikmönnum og koma með virkilega góða spilara inn í liðið. Var það gert? Zenden frítt, Reyna - fínn markmaður, Crouch - á alveg eftir að sanna það að hann sé 7 miljón punda virði en vonandi á hann eftir að gera það, og Sissoko sem ég er mjög hrifinn af en eru þetta stjóru nöfnin? Tóm steypa og ég er ekki sáttur. Þetta eru miljón leikir í öllum keppnum og þetta er ekki gott. Rafa hefur sjálfur sagt að fá leikmenn í janúar sé erfitt og venjulega eru þetta leikmenn sem eru ekki að standa sig í sínum liðum og það er enginn tími til að koma þeim inn í hópinn, þeir verða bara að vera til strax og ég er ansi hræddur um að það takist ekki. Haldið þið að Gerard sé fúll núna? Hann talaði nú ekki svo lítið um að hann vildi fá hann. Ekki mikill metnaður hjá þessu liði að klikka á þessu.

Clinton sendi inn - 01.09.05 00:45 - (
Ummæli #20)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Liverpool 2 - West Ham 1
·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1

Síðustu Ummæli

Sigtryggur Karlssons: Saga yfirlýsinga Rafa og stjórnar LFC u ...[Skoða]
Sneglubondi: Þann 29.mai þegar athygglin hafði skyndi ...[Skoða]
Bolli: Góðu fréttirnar í gær voru þó þær að Pot ...[Skoða]
Kristján Atli: Já, svona er þetta ... þetta gekk ekki n ...[Skoða]
Clinton: Nú verður hópnum ekki breytt úr þessu og ...[Skoða]
Hannes: Svo er eins gott fyrir Benítez og félaga ...[Skoða]
Hannes: Við verðum einfaldlega að treysta á það ...[Skoða]
Doddi: Grátlegt að sjá enn einn meðalmanninn fa ...[Skoða]
Davíð Már: Bara algjör meðalmennska að kaupa ekki m ...[Skoða]
Halli: Jæja þá er tíminn útrunninn.... ég er bú ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Gúrka
· Lið vikunnar
· Liverpool 2 - West Ham 1
· Liðið gegn West Ham
· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License