beach
« Cisse, Evra, Owen, Real Madrid, Monaco, Marseille, Liverpool og Lyon | Aðalsíða | Mourinho kvót »

26. ágúst, 2005
Stelios skrifa undir við Bolton

Jæja, þá getum við strikað út eitt nafn af slúður-listanum. Stelios Giannakopoulos er búinn að skrifa undir samning við Bolton.

.: Einar Örn uppfærði kl. 12:18 | 20 Orð | Flokkur: Leikmannakaup og sölur
Ummæli (9)

Vandamálið með García er það að hann getur spilað hægri kantinn og gert það vel, en það er þó ekki hans sérgrein. Þú sérð hann t.d. aldrei fá boltann við miðlínu og taka bakvörðinn á sprettinum eftir hliðarlínunni. Það er einfaldlega ekki hans stíll. Hann getur leikið á menn og platað þá upp úr skónum, en þá aðallega með snöggum hreyfingum, ekki með hröðum hlaupum.

Þannig að þótt García sinni góðri vinnu og sé mjög skapandi (og skori mikilvæg mörk) á hægri vængnum þá vantar okkur samt sem áður mann sem er sérfræðingur í vængstörfum. Mark Gonzalez hefði getað orðið sá maður, skv. lýsingum, þar sem hann hafði víst nóg af hraða og tækni til að taka menn á sprettinum. En hann kemur ekki og því þarf að finna einhvern annan.

Og úr því að við erum að ræða þetta, þá er kannski gott að Stelios kemur ekki til okkar, þar sem hann er að mínu mati of líkur García. Stuttur, snöggur og marksækinn leikmaður sem hefur góða tækni og snöggar hreyfingar, en er ekki þessi hlaupatík upp og niður eftir hliðarlínunni. Okkur vantar mann sem býður upp á allt það sem García skortir, á svipaðan hátt og Zenden & Riise bjóða upp á mismunandi hluti og því aukna breidd á vinstri vængnum.

Það verður spennandi að sjá hvern Rafa fær þarna fyrir 1. sept, ef þá nokkurn. Ég er sannfærður um að við fáum einn miðvörð og það virðist vera að gerast að við fáum Owen, en ég er ekki jafn viss með hægri vængmann. Kannski Rafa bara taki sénsinn með García, Cissé og Potter og bíði fram í janúar eftir að geta keypt Mark Gonzalez?

Kristján Atli sendi inn - 26.08.05 16:45 - (Ummæli #8)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liv'pool 1 - Chelsea 4
·L'pool 0 - Chelsea 0
·B'ham 2 - L'pool 2
·Liverpool 0 - Man U 0
·Betís 1 - Liverpool 2 (uppfært)

Síðustu Ummæli

Guðni Guðmunds: Mér finnst eitt athugavert varðandi nöfn ...[Skoða]
Kristján Atli: Vandamálið með García er það að hann get ...[Skoða]
Einar Örn: Ég held að flestir séu sammála, Elías, u ...[Skoða]
Elías Már: Ég skil ekki eitt í þessu framherjamáli ...[Skoða]
Jónas H: Hafliði, farðu bara á www.textavarp.is/3 ...[Skoða]
Ólafur: Igor Tudor til Bolton á láni - Hefðu men ...[Skoða]
Hafliði: Vitið þið kl hvað leikurinn hefst í kvel ...[Skoða]
Hólmar: Owen kemur og ætli Cisse og Pongolle ver ...[Skoða]
Kristján Atli: Hmmm... hver þá? Ég var að verða orðinn ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Cisse aðeins minna fúll í dag
· Cisse hundöskufúll
· Rafa hefur EKKI áhuga á Joaquin
· Rafa hefur trú...
· Nýr pistill
· Meira um Djibril

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License