beach
« 2005/06 = Riðill G | Aðalsíða | Cisse, Evra, Owen, Real Madrid, Monaco, Marseille, Liverpool og Lyon »

25. ágúst, 2005
CSKA Moskva á morgun! (uppfært)

Eftir dapran leik á þriðjudaginn er eflaust einbeittur vilji okkar manna að leiðrétta þá frammistöðu sem allra fyrst. Þeir fá tækifæri til þess strax á morgun, föstudag, þegar Liverpool - Evrópumeistarar Meistaraliða - mæta CSKA frá Moskvu - Evrópumeisturum Félagsliða - í leik sem er yfirleitt titlaður Meistarar Meistaranna, eða European Super-Cup á ensku.

Leikurinn fer fram í Mónakó, hefst kl. 18:00 og verður sýndur beint á SÝN þannig að það er um að gera að fylgjast með. Menn muna eflaust eftir því þegar Liverpool léku um sama titil haustið 2001, en þá unnum við Bayern München 3-2 í stórskemmtilegum leik. John Arne Riise skoraði þá sitt fyrsta mark fyrir Liverpool.

Andstæðingarnir að þessu sinni eru að vissu leyti svolítil ráðgáta. Þetta CSKA-lið er greinilega feykisterkt, fyrst þeir gátu unnið Evrópukeppni Félagsliða í vor (þar með talið Sporting Lisbon í úrslitaleiknum á heimavelli Sporting), en það sem ég sá til þessa liðs í Meistaradeildinni fyrir áramót var hins vegar ekkert sérstakt. Þeir voru þar í riðli með Chelsea, Porto og París SG og enduðu í þriðja sæti og rétt misstu af sæti í 16-liða úrslitunum. En þeir fóru í keppni Félagsliða í staðinn og unnu hana, þannig að eitthvað geta þeir.

Ég gróf upp upplýsingar um þetta lið og hvernig þeir voru vanir að stilla upp í fyrra og það var nokkurn veginn svona:

Akinfeev

V. Berozoutzki - Ignaschevich - A. Berozoutzki

Odiah - Aldonin - Rahmic - Zirkov
Daniel Carvalho
Ivica Olic - Wagner Love

Þetta lítur nokkurn veginn rétt út, en mig minnir einmitt að þetta hafi verið nokkuð sókndjarft lið sem ég sá velgja Chelsea örlítið undir uggum í leiknum í Moskvu sl. haust, en á móti kemur að þeir eru ekki með neina rosalega vörn og fengu haug af mörkum á sig í Evrópukeppnunum á síðasta tímabili.

Þá minnir mig að þeirra besti maður í fyrra, brasilíski framherjinn Wagner Love (sem er tvífari Florent Sinama-Pongolle í útliti) hafi farið aftur heim til einhvers brasilísks liðs í sumar, en ég finn engar upplýsingar um það. Kemur bara í ljós á morgun hvaða leikmenn þeir mæta með, en ég held miðað við hvernig þeir spiluðu í fyrra og þá markagleði sem einkenndi leik þeirra, að við megum búast við liði sem mætir til að sækja á morgun og ætli sér fyllilega að sigra Liverpool.

Nú, hvað líklegt byrjunarlið okkar varðar þá held ég að Rafa muni hiklaust stilla upp sínu sterkasta liði. Með það í huga að það kemur landsleikjahlé í Evrópu eftir þennan leik og umferðir helgarinnar í evrópsku deildunum þá sé ég enga þörf á að hvíla nokkurn mann, og þar sem þeir Carra, Alonso og Reina horfðu á leikinn á þriðjudag af varamannabekknum sé ég ekkert því til fyrirstöðu að þeir byrji inná á morgun.

Eina spurningarmerkið er að sjálfsögðu með fyrirliðann Steven Gerrard - mikilvægasta leikmann í Evrópu - sem að á enn við smávægileg meiðsli að stríða og er tæpur. Ég held að flest annað sé nokkuð ljóst varðandi byrjunarlið, en það mun líklegast vera annað af þessum:

Ef Gerrard er heill:

Reina

Finnan - Carragher - Hyypiä - Warnock

García - Alonso - Sissoko - Zenden
Gerrard
Morientes

Ef Gerrard er meiddur:

Reina

Finnan - Carragher - Hyypiä - Warnock

García - Alonso - Sissoko - Zenden

Cissé - Morientes

Kannski Riise verði á kantinum, en að öðru leyti er að verða nokkuð ljóst hvað Rafa telur sitt ‘sterkasta lið’ vera í vetur.

MÍN SPÁ: Þetta er sýningarleikur UEFA og sem slíkur þá kæmi mér á óvart ef við fáum einhvern leiðinlegan 0-0 eða 1-0 leik á morgun. Mig grunar að við fáum að sjá markaleik og að skorað verði á báða bóga. Eigum við ekki bara að segja 4-2 fyrir Liverpool? (að sjálfsögðu samt 0-0 ef Gerrard er ekki með, þar sem við getum ekki skorað án hans… )

Áfram Liverpool! Það er bikar í boði! :-)


Uppfært (Kristján Atli): Ókei, ég leiðrétti villuna í liði Moskvu-manna. Þetta ætti að vera rétt núna, þeir spila svona 3-4-3 kerfi með væng-bakvörðum á köntunum, frekar sókndjarft. Og skv. því sem kemur fram í ummælum þessarar færslu er Wagner Love ennþá hjá liðinu, þannig að við getum búist við góðu sóknarliði á morgun.

.: Kristján Atli uppfærði kl. 19:02 | 701 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (9)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Aston Villa 0 - Liverpool 2
·Liverpool 3 - Anderlecht 0
·Liverpool 2 - West Ham 0
·C. Palace 2 - Liverpool 1 (uppfært)
·Fulham 2 - Liverpool 0

Síðustu Ummæli

Kristján Atli: Einar sagði: >"En Cisse skorar á morg ...[Skoða]
Einar Örn: Hvað voðalega eru margir lesendur sérfræ ...[Skoða]
Sverrir: Þú hefur örugglega ekki fundið neinar up ...[Skoða]
Steewen: Hehehe, góður. Akinfyv var lofaður mjög ...[Skoða]
Kristján Atli: Jæja, búinn að leiðrétta þetta. Lítur be ...[Skoða]
Kristján Atli: Er Akinfeev markmaðurinn þeirra? Skv. ei ...[Skoða]
Zlatan: Held að Olic hafi fótbrotnað í vikunni o ...[Skoða]
Steewen: Og Olic er framherji. Spilar með Króatíu ...[Skoða]
Steewen: Akinfeev, eða Akinfyv eins og það er vís ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Kewell biður um þolinmæði, Riise vill framlengja samninginn sinn og fleira til.
· Sabrosa falur!
· Hinn Króatíski Beckham
· He's big, he's red ...
· Rafa í hálfleik í Istanbúl
· Liverpool að fá bandaríska fjárfestingu?

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License