beach
« Rafa staðfestir áhugann á Stelios | Aðalsíða | Liverpool og Chelsea »

24. ágúst, 2005
Dregið í riðla

Jæja, á morgun klukkan 14 verður dregið í riðla í Meistaradeildinni. Við erum í efsta styrkleikaflokk ásamt liðum einsog Real Madrid, Barca, AC Milan, manchester united og fleirum. Það þýðir að við lendum EKKI gegn liðum úr þeim flokki.

Hins vegar munum við dragast gegn einu liði úr hverjum styrkleikaflokki. Liverpool er ekki með “country-protection”, þannig að við getum lent á móti Chelsea þrátt fyrir að Arsenal og manchester united geti það ekki.

Einsog þið sjáið þá eru gríðarlega sterk lið í öllum flokkum. Ef við veljum martraða-riðil, þá gætum við lent með Chelsea, Olympiakos og Real Betis. Í fyrra vorum við eins óheppin og kostur var, en það er vonandi að drátturinn í ár verði okkur hagstæðari (ekki að það hafi breytt miklu í fyrra :-) )

1. flokkur

Real Madrid
AC Milan
FC Barcelona
Liverpool - Evrópumeistarar
Man U
Inter
Bayern Munchen
Arsenal

3. flokkur

Club Brugge
Anderlecht
Olympiakos
Schalke
Sparta Prag
Lille
Rangers
Werder Bremen

2. flokkur

Porto
Juventus
PSV
Lyon
Panathinaikos
Chelsea
Villareal
Ajax

4. flokkur

Benfica
Rosenborg
Real Betis
Udinese
Fenerbache
Rapid Wien
FC Thun
Bratislava

Þetta verður spennandi!

.: Einar Örn uppfærði kl. 22:57 | 183 Orð | Flokkur: Meistaradeild
Ummæli (17)

Neibbs, ég er ekkert sérstaklega upptekinn af þessu Everton máli. Finnst það frekar slappt að þeir skuli hafa dottið út vegna skandals hjá Collina (við erum ekki búnir að gleyma) - en allavegana, mönnum er velkomið að gera grín að Everton í þessum þræði.

Minni bara á þetta. :-)

FC Thun lentu í öðru sæti í svissnesku deildinni.

Einar Örn sendi inn - 24.08.05 23:20 - (Ummæli #4)

Hannes

Liverpool á í raun ekkert að vera í Meistaradeildinni í ár. Liðið náði ekki Meistaradeildarsæti með árangri í heimadeildinni og það eru ekki til neinar reglur(voru ekki til, það er búið að breyta þessu núna eftir þetta fíaskó) sem segja að sigurvegarinn eigi að fá sæti. Þannig að í raun fékk Liverpool algjöra sérmeðferð hjá Uefa sem hleypti okkur inn, en þá í fyrstu umferðina, eitthvað til að fegra sína samvisku sjálfsagt.

Ég skal alveg vera sammála þeim sem segja það fáránlegt að sigurvegararnir fái ekki tryggt sæti að ári í Meistaradeildinni, en það breytir því ekki að í fyrra voru ekki til reglur sem sögðu svo. Reglunum var sem sagt breytt undir lok tímabilsins til að hjálpa Liverpool. Ef breyta á reglum, þá verður að gera það við upphaf keppni, þannig að allir standi jafnir og við sama borð, að allir séu að keppa að því sama.

Ég er á því að Uefa hafi tvöfallt gert í buxurnar. Fyrst með því að hafa ekki regluna um að meistararnir fái sæti, sérstaklega þar sem þeir höfðu fordæmi fyrir þessu síðan fyrir fimm árum á Spáni, og svo með því að breyta reglunum til að koma Liverpool inn.

Fyrir mér er þetta svipað og með lyfjamálið hjá Rio Ferdinand. Hann mætti ekki í lyfjapróf og að mæta ekki jafngildir falli, þannig eru bara reglurnar. Liverpool náði ekki fjórða sætinu og náði því ekki inn í Meistaradeildina. Plane and simple. Ég mun þó að sjálfsögðu hvetja mína menn í vetur í CL því eins og allir þeir sem þekkja mig, bæði hér eða persónulega, vita að ég er mjög harður og rauður í gegn.

Þeir sem ætla að andmæla þessu vil ég biðja að anda rólega og setja þetta þannig upp að þetta væri Man Utd í stað Liverpool sem Uefa hefði breytt reglunum fyrir. Hvað hefðu menn sagt þá?

Innvortis sendi inn - 25.08.05 08:25 - (
Ummæli #10)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liv'pool 1 - Chelsea 4
·L'pool 0 - Chelsea 0
·B'ham 2 - L'pool 2
·Liverpool 0 - Man U 0
·Betís 1 - Liverpool 2 (uppfært)

Síðustu Ummæli

Hannes: Já ég heyrði þá Valtý og Bödda tala um þ ...[Skoða]
Kristján Atli: Þeir hafa samt komist tvisvar í röð í un ...[Skoða]
Innvortis: Við erum í efsta styrkleikaflokki því vi ...[Skoða]
Hannes: Innvortis Ég þakka þér fyrir langt sv ...[Skoða]
EikiFr: Og í guðanna bænum ekki eyða orðum á E** ...[Skoða]
EikiFr: Ég vil fá: Chelsea - Rangers og Fener ...[Skoða]
Sævar Sig: Liverpool fær Lyon skráð kl 9:02 ...[Skoða]
Innvortis: Hannes Liverpool á í raun ekkert að v ...[Skoða]
Hólmar: já eða Lyon útaf Houillier ...[Skoða]
ReddersFan: Það væri algjör snilld að fá Panathinaik ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Nýr pistill
· Meira um Djibril
· Framherjavandinn
· Alonso ... vill ... Simao
· Hyypia var veikur
· Hvað á að gera?

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License