22. ágúst, 2005
Jæja, Rafael Benitez er aldeilis með munnræpu í dag. Hann tjáir sig nú vanalega ekkert um leikmannkaup, en í dag er hann gjörsamlega óstöðvandi.
Fyrir það fyrsta, þá segir hann að Milan Baros sé á leið til Aston Villa og muni sennilega semja við þá innan þriggja daga.
Ekki nóg með það, heldur hefur Rafa viðurkennt (óspurður að mér skilst) að hann hafi mikið álit á Dirk Kuyt og geti hugsað sér að fá hann til liðsins. Rafa segir:
Kuyt is a good striker. Maybe he is cheaper than other players but we will have to see what happens.”
Rafa er nú ekki vanur að segja mikið meira í svona málum.
Kuyt hefur áður sagst hafa áhuga á að koma til Liverpool. Við höfum fjallað um Kyut oft á þessari síðu og hann er álitlegur kostur í framherjastöðuna. Það er alveg ljóst að næstu dagar verða fjörugir.
Uppfært: (Aggi) Jæja þá er það endalega ljóst að Milan Baros er á leið til Aston Villa. Hann neitaði Lyon sem átti víst hærra tilboð en AV í Baros en hann hafði ekki áhuga að fara frá Englandi. Þetta verður frágengið á morgun en félögin hafa komist að samkomulagi um verð sem talið að sé um 6.5 mill. punda.