beach
« Daniel Agger? (uppfært) | Aðalsíða | Hvaða leikmenn koma fyrir 1. sept? »

22. ágúst, 2005
Leikskýrslur ensku blaðanna

Eftir að hafa lesið leikskýrslur úr Independent, The Guardian og fleiri blöðum, þá hef ég komist að eftirfarandi hlutum:

  1. Heimurinn er að farast
  2. Liverpool er sennilega með lélegasta lið á Englandi
  3. Djibril Cisse og Fernando Morientes munu ekki skora eitt einasta mark á þessu tímabili fyrir Liverpool.
  4. Ólíkt því sem var þegar Michael Owen gat ekki neitt hjá Liverpool (skv. blöðunum), þá er hann allt í einu orðinn besti framherji í heimi og hann mun leysa öll vandamál Liverpool.
  5. Liverpool vörnin er léleg.
  6. Luis Garcia er aumingi og leikari.
  7. Liverpool er búið að tapa möguleikanum á að vinna enska meistaratitilinn.
  8. Liverpool voru heppnir að vinna um helgina.
  9. Liverpool munu aldrei vinna neitt
  10. Chelsea, sem vann Wigan á enn meira ósannfærandi hátt var hins vegar bara óheppið. Það að Liverpool vinni botnlið 1-0 er hins vegar merki um að liðið sé ómögulegt.

Því miður var Harry Kewell ekki í liðinu, svo ekki var hægt að endurprenta gamlar lummur um hann.

.: Einar Örn uppfærði kl. 11:42 | 169 Orð | Flokkur: Fjölmiðlar
Ummæli (12)

Það er ástæða fyrir því að ég kveiki ekki á útvarpinu á mánudögum. Gerði þá skyssu áðan að kveikja á XFM og það fyrsta sem ég heyrði var Valtýr Björn að segja eftirfarandi orð: “Já, og Steven Gerrard er eitthvað lítið meiddur … ekkert alvarlegt, en hann missir af leiknum gegn Sofia á morgun. Og … ég verð að segja, að ég sé Liverpool ekki fyrir mér geta skorað mörk án hans.”

Ég slökkti bara og ákvað að gera eitthvað annað en lesa fréttir & hlusta á íþróttaþætti í dag.

Við unnum 1-0 í leik sem hefði, miðað við gang leiksins, átt að enda svona 3-0 (Cissé skoraði löglegt mark og hann & Moro klúðruðu dauðafærum, svo skaut SG í stöng) en þetta var einn af þessum dögum þar sem boltinn bara vildi ekki inn.

Chelsea hins vegar lágu í vörn í 90 mínútur á heimavelli og skoruðu ólöglegt rangstöðumark óvart, þar sem Drogba ætlaði ekki að láta boltann skoppa í hnéð á sér og þaðan framhjá Lehmann. Og er minnst á það að Chelsea hafa núna spilað illa, legið í vörn og verið ósannfærandi í þremur leikjum í röð? Neibb, bara talað um hvað þeir eru góðir.

Arsenal í Samfélagsskildinum, Wigan fyrir viku og svo aftur Arsenal í gær. Það eru 270 mínútur af heppni og fjögur mörk.

Liverpool? 180 mínútur af sókn og 1 mark - allt rétt nema hvað boltinn vill ekki innfyrir línuna þessa dagana. Og þar áður skoruðum við rúmlega 20 mörk á undirbúningstímabilinu - Cissé er þegar kominn með 4 mörk á þessu tímabili og Morientes 2 - og skyndilega getum við ekki skorað án Gerrard?

Þoli ekki mánudagspressuna.

Kristján Atli sendi inn - 22.08.05 12:42 - (Ummæli #2)

Viljiði sjá þetta rugl??????

Frank Lampard er í liði vikunnar á BBC!!! Fyrir hvað? Ég horfði á þennan leik í gær og hann gat EKKI NEITT! Makelele hefði getað verið í liði vikunnar, og kannski Del Horno, en enginn annar úr Chelsea-liðinu.

Xabi Alonso, Momo Sissoko og Edgar Davids - þrír miðjumenn sem fóru mikinn á laugardag - komast hins vegar ekki í liðið.

Er ekki verið að grínast í mér? Ég hefði valið Davids fram yfir Lampard í þetta lið, hvað þá Alonso (á það skilið fyrir markið) eða Sissoko (tower of destruction).

En nei … Frank Lampard er heilagur, það er alveg ljóst! :-)

Kristján Atli sendi inn - 22.08.05 12:48 - (Ummæli #4)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liv'pool 1 - Chelsea 4
·L'pool 0 - Chelsea 0
·B'ham 2 - L'pool 2
·Liverpool 0 - Man U 0
·Betís 1 - Liverpool 2 (uppfært)

Síðustu Ummæli

dfmkjf: liverpool er vonlaust, sorrý en þetta er ...[Skoða]
K!ddi: Þessi leikskýrsla hjá Independent er bar ...[Skoða]
árni úrsbekistan: lampard gat ekki blautann á móti arsenal ...[Skoða]
Doddi: Hef lært það í gegnum tíðina að láta ekk ...[Skoða]
egill: hvað segiði spekúlantar um sissoko!! hva ...[Skoða]
Chris: Kristján, sástu líka að Cenderos er í li ...[Skoða]
Guðni: Sammála ykkur strákar. Þetta er alveg ...[Skoða]
Eiki Fr: Come on guys!! Látið ekki blöðin fokka ...[Skoða]
Kristján Atli: Viljiði sjá þetta rugl?????? F ...[Skoða]
Stjáni: Persónulega kippi ég mér ekkert upp við ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Speedy: spurning um Hvenær ekki Hvort
· Gerrard aðeins frá í 11 daga og styttist í Kewell og Mellor.
· Hvað gerir Rafa núna?
· Marseille blankir + tyrkneskt undrabarn
· Landsleikjahlé rokka!!!
· Gerrard frá í 2-3 vikur.

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License